Fálkinn


Fálkinn - 12.06.1963, Qupperneq 11

Fálkinn - 12.06.1963, Qupperneq 11
hæfilegt mannsefni handa mér — með- an hún heldur að nokkrar líkur séu til að mér takist að ná í þig — munuð þér lifa hér eins og blóm í eggi, sagði hún feimnislaust, þótt hún hefði tekið eftir og skilið augnaráð hans, sem mat hana og vóg. ■— En einn góðan veðurdag springur sápukúln. Hún er að þjást af andþrengslum, og að síðustu hljóta allir að skilja að með svona öryrkja í húsinu er ekki nokkur leið að hafa leigjanda. — Ég veit hreint ekki hvað ég á að segja, sagði hann vandræðalega. — Þetta hlýtur að vera óþolandi fyrir yður. — Og fyrir yður, sagði hún rólega. — Ég er orðin vön þessu. Mér leið hræðilega, þegar ég uppgötvaði þetta í fyrsta sinn. Ég skammaðist mín svo hræðilega fyrir að allir — vinnukonan, nágrannarnir, vinir okkar — allir höfðu skilið að hverju mamma stefndi. En það er mesta furða hversu fljótt maður herðist gegn slíkum óþægindum. Já, það vissi Ernest Jones alltof vel. En hann minntist ekkert á það. ' Hún hélt áfram að tala. Nú, þegar hún var komin yfir þrítugt, var móðir- in farin að örvænta. Hún athugaði ekki lengur jafn gaumgæfilega allar aðstæð- ur „tilvonandi tengdasona" sinna, áður en hún leigði þeim. Og nú var hún fljót- ari að gera sér grein fyrir, hvenær öll von var úti. Hjartaköst hennar urðu tíð- ari, og hún var fljótari að ná sér aftur. — Ég skil bara ekki hvers vegna móðir yðar hefur ekki haft heppnina með sér, sagði Ernest hreinskilnislega. — Ég mundi halda....... — Það er ekkert undarlegt við það, herra Jones, svaraði hún rólega — Bíðið, þar til þér hafið fundið fyrir auðmýkingunni. Hún vissi ekki, að auðmýkingu þekkti hann. Alltof vel. Það var engin furða, þótt frú Templer vildi gjarnan að dóttir hennar giftist. Henni fannst giftingin vera eina ham- ingjan í lífi konunnar. Tækifæri henn- ar sjálfrar til að giftast, hafði komið öllum að óvörum. Þótt hún minntist fyrri heimsstyrjaldarinnar jafnan með skelfingu og viðbjóði, þá vissi hún vel að henni átti hún hamingju sína að þakka. Hermenn, sem komu heim í stuttu leyfi, niðurbrotnir af dauða og eyðileggingu, lús og ails kyns óþrifn- aði, áttu sér þá ósk heitasta að komast yfir konu og kvænast. Sjálfsbjargar- viðleitni þeirra krafðist þess. Herra Templer hafði farið eftir þessu og kvænzt henni í flýti og án þess að gera sér rellu út af útliti hennar. Þótt enginn hefði trúað því um frú Templer, þá naut hún samlífsins við karlmenn ákaft. Þetta varð hennar eina reynsla á því sviði, og hún varði ekki lengi. Herra Templer féll einhvers staðar í Frakklandi, án þess að fá vit- neskju um að kona hans átti von á barni. Vegna þessarar dásamlegu reynslu sinnar, var frú Templer fús til að leggja mikið í sölurnar til að fá eiginmann handa Susan. Susan skyldi ekki eyða ævi sinni án þess að lifa hið mikla ævintýri, sem hún sjálf hafði næstum því misst af. Þess vegna var ekki undarlegt, þó frú Templer yrði örvæntingarfull, þeg- ar hún sá hversu lítinn gaum Susan gaf karlmönnum. En ef Múhameð vildi ekki koma til fjallsins, þá skyldi fjallið koma til Múhameðs — og frú Templer bauð fyrsta leigjandann velkominn á hið ríkmannlega heimili sitt. Síðan höfðu þeir komið og farið, hver á fæt- FÁLKINN 11

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.