Fálkinn - 25.09.1963, Qupperneq 4
MANNASKIPTI
Jón A. Guðmundsson.
Með þessu tölublaði Fálkans verða
ritstjóraskipti á blaðinu og einnig fram-
kvæmdastjóraskipti. Gylfi Gröndal, sem
verið hefur ritstjóri blaðsins frá nóvem-
ber 1960, lætur nú af störfum og tekur
nú senn til starfa sem ritstjóri hjá
Alþýðublaðinu. Jón A. Guðmundsson,
Gylfi Gröndal.
sem verið hefur jafn lengi fram-
kvæmdastjóri blaðsins lætur nú
einnig af störfum, þar eð hann
flyzt úr bænum.
★
Er Gylfi Gröndal tók við rit-
stjórn blaðsins hafði hann um
skeið verið blaðamaður við Al-
þýðublaðið. Honum var mikill
vandi á höndum. Blaðið hafði
komið óreglulega út og upplagið
var lítið. En hann lét erfiðleikana
ekki á sig fá og í ritstjórnartíð
hans hefur upplag blaðsins marg-
faldazt og eykst enn stöðugt. Hef-
ur frammistaða Gylfa í þessu
starfi vakið verðskuldaða athygli
í blaðaheiminum og meðal almenn-
ings. Gylfi gerist nú ritstjóri
við Alþýðublaðið. Fálkinn þakkar
honum frábær störf og árnar
honum allra heilla í nýju starfi.
★
Jón A. Guðmundsson flyzt nú
úr Reykjavík. Er hann tók við
framkvæmdastjórn Fálkans var
fjárhagur blaðsins hvergi nærri
góður og störf hans því erfið.
Með vaxandi velgengni blaðsins
hefur hann þokazt í rétta átt, og
er Jón lætur nú af störfum er
ólíkt bjartara framundan, en er
hann kom til blaðsins. Fálkinn
þakkar honum vel unnin störf og
árnar honum allra heilla í fram-
tíðinni.
Gáfurrnar
Karl kom á prestssetið að
Kolfreyjustað. Þar var mynd
af Maríu mey í stofunni
— Hvaða kvenmaður er
þetta? spyr karl.
— Það er hún María mey.
Þú hlýtur að kannast við hana
er honum svarað.
— Já, líklega hef ég séð
hana á Seyðisfirði.
Brandararnir
— Segðu mér, hvers vegna
hlóstu ekki, þegar ritsjórinn
sagði ^ fína brandarann áðan.
— Ég er ekki búinn að segja
þér, að ég þoli ekki manninn
og þess vegna ætla ég að bíða
með að hlæja, þangað til ég
kem heim.
Kvenfólkið
Sýslumaður nokkur þingaði
í barnsfaðernismáli fyrir
mörgum árum. Stúlkan nefndi
8 menn með nafni, sem gætu
verið feður að barninu.
Sýslumaður spyr hana þá,
hvort hún geti ekki tilnefnt
fleiri.
Þá sneri stúlkan upp á sig
og svaraði:
— Viljið þér ekki reyna að
moða úr þessum fyrst.
Orðheppnin
Sr. Árni í Grindavík var
óvenju orðheppinn maður.
Einu sinni var hann að lýsa
túninu á Þönglabakka. Hann
komst svo að orði:
— Túnið er svo þýft, að
þar fótbrotnaði eitt sinn kött-
ur.
Vitsmunirnir
Kona kom inn í sölubúð og
spurði hvort þar væru perur
til sölu.
-—- Nei, anzaði búðarþjónn-
inn, — við höfum ekki perur,
en við höfum aprikósur.
— Jæja, segir konan, ég
ætla þá að fá eina fimmtíu
kerta.
iHcnningin
Leiklistin stendur með
blóma um land allt. í einu
þorpinu voru menn ákaflega
samvizkusamir og lærðu hlut-
verk sín alveg utan að. Nú
hófst leiksýningin og er einn
leikandinn hafði þulið hlut-
verk sitt hárrétt, tók hann
hatt sinn og staf og sagði um
leið:
— Tekur hatt sinn og staf
og gengur út til vinstri.
4 FALKINN