Fálkinn - 25.09.1963, Qupperneq 10
Þær myndir, sem hér birtast,
eru af sjö systkinum. Þau eru
öll á aldrinum 81—91 árs. Mun
það fátítt að jafnstór systkina-
hópur nái svo háum aldri.
Foreldrar þessara systkina
voru þau Steinunn Þorsteins-
dóttir og Þorlákur Sveinsson.
Þau bjuggu í Þykkvabæ í Land-
broti. Þau giftust árið 1870 og
bjuggu saman í rúmlega áratug.
Þá andaðist Þorlákur, 43 ára,
,,úr innanveiki,“ frá 7 börnum,
— það elzta 10 ára. Sama árið
og Þorlákur dó, gengu misling-
ar um sumarið. Það var harða
vorið 1882. Þá dó fjöldi manna
úr mislingunum um land allt,
t. d. létust 15 manns úr þeim
í Prestbákkasókn, flest börn.
Ekki gerðu þeir samt neitt
skarð í hóp ekkjunnar í
Þykkvabæ.
Eftir lát manns síns bjó
Steinunn áfram með börnunum
í Þykkvabæ. Hún var bæði
kjarkmikil og forkur til allra
verka, gekk jafnt að kvenna-
störfum og karlmannsverkum
eins og t. d. skepnuhirðingu,
slætti og veiðiskap. Nágrann-
arnir reyndust henni mjög
hjálplegir til þess að halda
heimilinu saman svo að hún
þurfti ekki að tvístra hópnum
sínum og láta börnin frá sér
til vandalausra meðan þau voru
voru í bernsku. Börnin reynd-
ust bæði tápmikil og ötul og
1 epptust við að verða að sem
rnestu og beztu liði. Var það
mörgum undrunarefni, hve
mikið þau þoldu að vinna án
þess það kippti úr þroska þeirra
cða vexti.
Framh. á bls.
10 FÁLKINN
Sveinn 91 árs
— Skrifar símareikninga —
Sveinn f. símstjóri í Vík.
Hann er fæddur 9. ágúst 1872
Kona hans er Eyrún Guð-
mundsdóttir frá Ytri-Dalbæ
í Landbroti. Hafa þau eignast
15 börn og eru 11 þeirra
á lífi. — Þau hjón Eyrún og
Sveinn voru með fyrstu
landnemunum í Víkurkaup-
túni — settust þar að aldamóta-
árið þá hafði Sveinn lært
söðlasmíði og stundaði
hann þá iðn lengi ásamt allri
þeirri vinnu, sem til féllst í
hinum unga og vaxandi höfuð-
stað Skaftárþings. — Þegar
síminn kom til Víkur 1914
gerðist Sveinn símstjóri og
var það fram yfir sjötugt. —
Og enn er Svein að hitta
dag hvern á símstöðinni
í Vík — glaðan og reifan —
með spaugsyrði á vörum. —
Þykkvibær I Landbroti,
bernskulieimili systkinanna sjö.
Stóra húsið er bæði íbúðarhús
og skóli, byggt af hinum
kunna athafnamanni Helga
ÞórarinssynL
Agnes eldri 88 ára
— Eins og fleiri, komin til
Reykjavíkur —
Hún er fædd 21. marz 1875.
Allan starfsaldur sinn dvaldi
hún í fæðingarsveit sinni —
Landbrotinu. Um tvítugt
réðst hún til Auðuns Þórarins-
sonar í Eystri-Dalbæ. Þau
bjuggu þar eftir það allan
sinn búskap og eignuðust
4 börn, sem öll eru á lífi. Mörg
undanfarin ár hefur Agnes
dvalist í Reykjavík á vegum
dætra sinna, sem þar búa.
Agnes yngri 87 ára
— Líklega raka ég ekkert í
sumar —
Hún er fædd 6. júlí 1876.
Tvær elztu dætur sínar, sem
fæddust með rúmlega árs millfe
bili, létu þau Þykkvabæjar-
hjón, Þorlákur og Steinunn
heita í höfuðið á móður hús-
freyjunnar. Agnes yngri bjó
allmörg ár með Gunnari Jóns-
syni á Hervarstöðum, sem
er heiðarbýli inn af Holtsdal
á Síðu. Þau eignuðust eina
dóttur. Nú lengi undanfarið
hefur Agnes dvalið hjá bróð-
ur sínum og mágkonu í Arnar-
dragi. Hefur ætíð verið
einkar kært með þeim syst-
kinunum.