Fálkinn - 25.09.1963, Side 22
Fraiiskur skinkuréttur
y2 kg tómatar
1 grænn pipar
1 stór laukur
ögn af hvítlauk
Vz pk. spaghetti
4 vænar skinkusrieiðar
Smjör
Salt
4 msk. rifinn ostur.
Hérgaterta
Vz kg ber, bláber, sólber
Sykur '
125 g hveíti
Húsráð
Látið aldrei afganga af
hveitibrauði fara til spillis,
safnið þeim saman og þurrk-
ið Þá í bakaraofninum við
vægan hita. Malið þá í
hakkayél og geymið í vel-
luktu íláti þar til brauð-
mylsnu er þörf. Athugið að
blanda ekki sætum brauð-
afgöngum saman við. Þegar
brauðið er hakkað hættir
brauðmylsnunni til að fljúga
í allar áttir, festið því plastic
poka framan á vélina, þá er
séð við því.
Spaghettíið soðið í léttsöltuðu vatni. Tómatamir
flegnir, ef hýðið er þýkkt, skomir í stóra báta. Allt
hreinsað innan úr græna pipamúm og handskorinn
í ræmur. Laukur og hvítlaukur saxaður gróft. Smjör
hitað á pönnu (ekki brúnað) Íaukur hitaður þar í
nokkrar mínútur. Tómatarnir látnir saman við, eiga
að verða meyrir, mega ekki fara í sundur. Saltað.
Spaghettíið látið í smurt eldfast mót. Leggið vel fulla
matskeið af tómat-laukjafningnum á hverja kjötsneið
og brjótið þær saman, raðið þeim ofan á spaghettíið.
Látið jafninginn í kringum kjötið. Rifnum osti stráð
yfir, 2—3 msk. af bræddu smjöri jafnað ofan á. Sett
inn í vel heitan ofn, þar til það er fallega gulbrúnt.
Borið fram með grænu saíati.
Skornar smáköknr
5 dl hveiti
V2 dl kartöflumjöl
2 dl flórsykur
1 tsk. vanillusykur
200 g smjörlíki
1 dl saxaðir hnetu-
kjarnar
Venjulegt hnoðað deig.
Skift í tvennt, mótaðar
2 lengjur 3 cm í þvermál.
Geymdar á köldum stað.
Skornar í sneiðar, reynið
að hafa þær jafn þykkar
og kringlóttar. Bakað við
200° í 10—12 mínútur.
►
Berin hreinsuð og skoluð með vatni ef þarf, látið síga vel af
þeim. Láfið í eldfast mót, sykri stráð yfir (sykurmagnið fer eftir
ber j ategundinni).
Deigið hnoðað léttilega saman. Flatt út, skorið í lengjur, sem
lagðar eru yfir berin. Deigrönd látin allt í kringum mótröndina.
Bakað við góðan hita. Borið fram volgt með þeyttum rjóma.
Nota má hraðfryst ber í þennan rétt.
22
FALKINN