Fálkinn - 09.10.1963, Síða 18
Þau voru ein
á sjónum, höfðu alltaf
verið ein
og myndu alltaf
vera það.
Smásaga
eftir
JOHN
O’HARA
Fyrri hluti
Á öðrum degi lauk Donald Fisher við vinnu sína, hið daglega starf, sem
hann hafði tekið að sér, klukkan ellefu. Það var varla unnt að kalla það vinnu,
þar sem það var að miklu leyt’fól#ið í að lesa meiri og minni trúnaðarævi-
skýrslur manna og kvenna, sem hann var í sambandi við í London.
Það var auðvelt að lesa skýrslurnar, þar sem einhver nafnlaus náungi í
starfsmannadeildinni hafði undirbúið þær, en hann tók léttar á málunum en
bankinn leyfði sér venjulega að gera og trúnaðareðli skýrslanna veitti höf-
undinum nokkurt skjól.
„McPherson," samkvæmt einu uppkastinu „hefur komið sér í mjúkinn
hjá hinum ensku vinum okkar með hinum dálítið djörfu sögum sínum. Hann
er snjall í því að tala eftir kvöldverð.11
Donald Fisher var ekki viss um, að sér myndi falla McPherson vel í
geð. Á hinn bóginn hlakkaði hann til að hitta Rathburn, sem hann þekkti
aðeins gegnum bréfaviðskipti skrifstofunnar. Ratburn hafði samkvæmt
skýrslu hans dvalið í Englandi eftir stríð. Hann hafði útskrifazt úr Harvard
1916 og hafði dvalið í Oxford í eitt ár og notað sér tækifærið, sem banda-
rískum liðþjálfum bauðst, og hafði komið í bankann 1920. Rathburn var með-
limur Sunningdale og lék golf. Kvæntur. Átti fjóra syni. Nokkurs konar sér-
fræðingur í verðbréfaviðskiptum, en það vissi Donald Fisher þegar. Rathburn
virtist vera sú manngerð, sem félli honum í geð.
„Reyndu ekki að lesa þetta allt í einu,“ hafði yfirmaður hans sagt. „Tvær
á dag ætti að vera nóg og þá ruglastu ekki í þeim. Og það eru aðeins tíu
menn, sem þú þarft að vita um til að byrja með. Það eru þeir, sem þú munt
umgangast mest.
Það var athyglisverte, að á fyrsta degi, sem hann las, féll honum einn
maður vel í geð og annar illa. Það væri enn athyglisverðara að komast að
því hvernig þessi hugboð reyndust eftir ár. Hann óskaði þess, að hann vissi,
hvað raunverulega vakti fyrir bankanum með því að senda hann til London.
VIIITVR 1T
«sii
***!
>• V-*'" , « «*<■
Wm , m 1
..-■■■'
y ' '
|