Fálkinn - 09.10.1963, Side 36
Hispursmey
Framh. af bls. 17.
„Þá orða ég spurningaiid
svona, herra Compton,“ sagði
Parma.
„Er það ekki rétt, að Henrí-
etta Hull hafi í umboði ákærðu
í þessu máli falið yður að setja
á laggirnar eitthvað, sem líkt-
ist skrifstofu til að taka á móti
umsækjendum, og að þér ættuð
að ráða konu, sem líktist mest
tiltekinni ljósmynd?“
Vitnið hikaði.
„Svarið spurningunni,“ sagði
Flint dómari byrstum rómi.
„Tja — jú.“
„Réðuð þér ekki konu að
nafni Dorrie Ambler, og símaði
hún ekki til yðar daglega til
að fá fyrirmæli?“
„Jú.“
„Og fenguð þér ekki þessa
konu, samkvæmt fyrirmælum
frá Henríettu Hull, til þess að
ganga fram og aftur um Holly-
woodstræti nálægt Vesturgötu,
til að ganga úr skugga um,
hvort vitni að nafni frú Ella
Granby mundi kannast við
hana sem konu, er ók bíl, sem
olli slysi þarna á horninu?"
„Ég sagði henni ekki allt
þetta.“
„En þér sögðuð henni að
ganga fram og aftur um Holly-
woodstræti og að gefa yður
skýrslu um hvaðeina, sem hún
yrði vör við?“
„Já.“
„Og hún sagði yður, að kona
hefði borið kennsl á sig?“
„Já.“
„Gagnspyrjið,“ hreytti Parma
út úr sér.
Mason sagði: „Hvernig vissuð
þér, að Henríetta Hull var að
reka erindi ákærðu?“
„Hún sagði mér það.“
„Augliti til auglitis eða sím-
leiðis?"
„Símleiðis.“
„Þér hafið þá aldrei séð
Henríettu Hull. Er það rétt?“
„Það er rétt. Ég talaði við
hana í síma.“
„Fenguð þér starf yðar
greitt?“
„Já.“
„Með ávísun?“
„f peningum."
„En ef þér hafið aldrei séð
Henríettu Hull, hefði hún ekki
getað fengið yður peningana.“
„Hún sendi mér þá.“
„Hversu mikið?“
„Þrju þúsund og fimm
hundruð dollara.“
Mason lét augun hvíla á
vitninu. „Þér getið með engu
móti vitað, herra Compton,"
sagði hann, „nema það hafi
ekki verið hin ákærða, sem
réð yður til starfsins, heldur
Dorrie Ambler.“
„Hvað segið þér?“ spurði
vitnið hvumsa.
„Herra Compton, ef Dorrie
Ambler hefði óskað að vekja
athygli á því, hvað hún var
ótrúlega lík hinni ákærðu í
þessu máli, og ef hún hefði
sagt yður, að hún væri Henrí-
etta Hull og beðið yður að lát
þessa auglýsingu í blaðið og
að ráða Dorrie Ambler þegar
hún kæmi, til að sækja um
starfið, var þá nokkuð í atvik-
um málsins, eins og þér þekkið
þau, og eins og þau koma fram
í framburði yðar, sem gæti af-
sannað þá tilgátu?“
„Mótmæli,“ sagði Parma,
„þar sem svarið krefst álykt-
unar af hálfu vitnisins, og það
snertir mál, sem ekki er til
meðferðar.“
„Tekið til greina," sagði
dómarinn.
Mason, sem hafði kornið því
að, sem nann viidi, brosti ul
vitnisins. „Þér vitið ekki, hvort
konan, sem þér töluðuð við í
símann var Henríetta Hull, er
það?“
„Nei, herra.“
„Hringduð þér nokkurn tíma
í Henríettu Hull meðan þér
gegnduð þessu starfi?“
„Nei, herra. Ég hafði fyrir-
mæli um að hringja ekki til
hennar.“
„Og fyrirmælin voru frá ein-
hverjum, sem vel hefði getað
verið Dorríe Ambler án þess
að þér vissuð það, eða einhver
önnur kona?“
„Þetta var bara rödd í síma,“
sagði Compton.
„Og öðru hverju talaði þessi
sama rödd í yður og í síma og
sagði hvað þér ættuð að gera?“
„Já.“
„Og þér hafið aldrei hitt
ákærðu áður en hún var tekin
föst?“
„Nei.“
„Þér hringduð aldrei í á-
kærðu til að ganga úr skugga
um, hvort hún hefði gefið Hen-
riettu Hull heimild til að g.era
slíkt samkomulag við yður og
þér hringduð aldrei í Henri-
ettu Hull?“
Palmolive gefur yður fyrirheit um . . .
aukinn yndisfiokka
Frá og með fyrsta degi verð-
ur jafnvel þurr og viðkvæm
húð unglegri og fegurri, en
það er vegna þess að hið ríku-
lega löður
Palmolive er mýkjandi.
Palmolive er framleidd
tneð olívuolíu.
Aðeins sápa, sem er jafn
mild og mjúk eins og Pal-
molive getur hreinsað jafn
fullkomnlega og þó svo mjúk-
lega. Hættið því handahófs-
kenndri andlitshreinsun: byrjr
ið á Palmolive hörundsfegr-
un i dag. — Læknar hafa
sannað hvaða árangri er hægt
að ná með Palmolive.
ÞvoiS
tiuddið
í eina
mínútu
Skolið
og þér
megið búast
við að sjá
árangurinn
strax.
Mýlcri,
unglegri,
aSdáanlcgri
húS.
with Palmolive
Palmolive með
olívuolíu er
mildari og mýkri
36 FÁLKINN