Fálkinn - 09.10.1963, Qupperneq 39
PANDA DG TDFRAMADURINN MIKLI
Fangarnir komust undan. „Ég get ekki skilið, hvers
vegna þeir kjósa heldur ringulreið þess ytra heims,“
andvarpaði Plútanus og fékk sér kaffibolla, sem töfra-
kannan lét hann hafa. Það verður að viðurkennast,
að á þessu augnabliki ríkti mikil ringulreið fyrir
utan fangelsið. Fangarnir streymdu út og Panda og
Jollypop voru meðal þeirra. Maður, sem átti ieið þar
um, sagði: „Ég velti því fyrir mér,“ tautaði hann við
sjálfan sig, „hvort þetta er það sem þeir kalla almenna
sakaruppgjöf. En hvað sé ég? Getur þetta verið hinn
þróttmikli Panda innan um þessa þorpara? Ó, hví-
líkir tímar.“
Til allrar óhamingju var frelsi fanganna skammvinnt.
Verðirnir umkringdu þá fljótlega, þegar þeir höfðu
náð sér. Þanníg var meirihluti fanganna neyddur til
að gefast upp og rekinn inn aftur. Panda og Jolly-
pop gátu samt falið sig í bíl, sem var nálægt. Litlu
seinna hallaði vörður sér upp að hlið litla bílsins.
„Ég sá tvo fanga hér,“ stundi hann. „Og nú eru þeir
horfnir.“ Goggi góðgjarni, sem hafði fylgzt með mál-
unum af miklum áhuga tók nú til sinna ráða. Hann
settist undir stýri bílsins og ók... sem var mjög
óþægilegt fyrir vörðinn, sem hallaði sér að honum,
en kom sér vel fyrir Panda og Jollypop, sem voru
í felum inni í honum. Um leið og Goggi ók hratt
burt, lék dauft bros um varir hans. „Þessi heimski
litli Panda ætti að gleðjast yfir því að eiga svona
greindan vin.“
Er Goggi hafði ekið bílnum nokkurn spöl, stanzaði
hann. „Tími er til kominn að ræða málin í hrein-
skilin,“ tautaði hann við sjálfan sig og steig i'it. Panda
fór út að aftan. Hann hafði ákveðið að tala ekki við
ökumanninn núna, þrátt fyrir það að Jollypop segði
honum að þakka fyrir ferðina. „Hvers vegna liggur
þér svona mikið á?“ sagði vingjarnleg rödd. „Hver
er meiningi með því að ætla að læðast burt án þess
að þakka gömlum vini, sem þreif þig úr greipum
laganna?“ „Þ ... þetta ... er Goggi..“ sagði Panda
undrandi. Svo að þú hefur ekki gleymt mér,“ svaraði
Goggi daufur. „Horfðu nú í augu fyrrverandi kennara
þíns og segðu honum, hvað þú varst að gera í fang-
elsi. Þarftu endilega að fara að syndga strax og ég
sný í þig bakinu?“
FALKINN