Fálkinn - 20.12.1965, Page 4
ELDFJORUGIR LOGAR
BEATHLJÓMSVEIT FRÁ VESTMANNAEYJUM ÁG/ETLEGA
TEKIÐ I REYKJAVÍK
RÍR gítarleikarar, einn trommuleik-
leikari og söngvari frá Vestmanna-
eyjum. Nafnið er rammíslenzkt, — þeir
kalla sig Loga. í fyrrasumar léku pilt-
arnir í LÍDÓ, en nú eru þeir komnir
enn á ný til höfuðborgarinnar og léku
í BÚÐINNI og í GLAUMBÆ við mjög
góðar undirtektir. Þegar Logar léku í
timburhúsinu Breiðfirðingabúð, var ég
meðal áheyrenda og þótti mér hljóm-
sveitin það góð, að vel væri þess vert
að kynna hana fyrir lesendum þáttar-
ins. Þess vegna brá ég mér daginn eftir
í Glaumbæ, vopnaður myndavél, stað-
ráðinn í að viða að mér efni um pilt-
ana frá móðurey Surts. Það hitti svo
vel á, að í sama bili og ég stikaði inn,
voru piltarnir að fara í ,,pásu“. Ég nýtti
mér þetta tækifæri strax, og vatt mér
niður á eftir þeim og áður en þeir gátu
nokkrum vörnum við komið, upphóf ég
mínar spurningar.
Hljómsveitarstjórinn er frá Fáskrúðs-
firði. Lýðveldisbarn í heiminn komið
10. september 1944, leikur á rythma-
gítar og ber nafnið Þorgeir Guðmunds-
son. Hann ber höfuð og herðar yfir
félaga sína enda elztur. Sá sem lemur
trommurnar af miklum eldmóð, er
Hörður Arsæll Símonarson. Þegar hann
var borinn í heiminn, kváðu við miklir
hvellir, og flugeldar þutu um himin-
hvolfið, ekki þó gagngert vegna til-
komu sveinsins, því þetta var á gamlárs-
kvöld 1947 í Vestmannaeyjum. 30. maí
1945 fæddist sólógítarleikarinn, Grétar
Skaftason, og grét auðvitað allt hvað
af tók, en í dag syngur hann ekki einu
sinni, þó hann sé fæddur í Reykjavík,
en það gerir Helgi Hermannsson hins
vegar og gerir það vel, en hann er
söngvari hljómsveitarinnar og það, sem
meira er, hann er fæddur í Reykjavík
27. febrúar 1948 og staðfestir það. án
nokkurrar minnimáttarkenndar, að
hann sé yngstur piltanna.
Mér tókst ekki að ná tali af bassa-
leikaranum, en hann heitir Henry Er-
lendsson og syngur oft dúett með Helga.
Ég tók strax eftir því, að þeir báru
ekki neinn einkennisklæðnað og spurði,
hvort þeir tækju Rolling Stones til fyr-
irmyndar í þeim efnum.
— Já, það er rétt, svöruðu Logar,
enda eru þeir okkar uppáhaldshljóm-
sveit og stefnum við að því að geta
skartað jafn miklu hári og Stones
þegar fram líða stundir.
— Hvert er álit ykkar á HLJÓMUM?
— Þeir eru mjög góðir, en síðari
platan þeirra stendur þeirri fyrri langt
að baki.
— Hefðuð þið áhuga á að leika inn
á hljómplötu?
— Já, því ekki það. En óneitanlega
erum við dálítið nervusir við þá hug-
mynd, en ef úr yrði, þá gæfi þetta okk-
ur að sjálfsögðu aukna möguleika, því
betri auglýsingu er tæplega hægt að fá.
— Eitt af þeim nýju dægurblöðum,
sem enn eru á lífi, hefur komið á fram-
færi þeirri hugmynd, að það ætti að
koma því til leiðar að leikin yrðu beat-
lög í kirkjum hér til að örva kirkju-
sókn unga fólksins. Hvert er ykkar álit
á þessari hugmynd?
— Hún er hreint út sagt alveg frá-
leit. „Beat“ og guðsþjónusta er tvennt
ólíkt og á engan veginn saman.
— Hefðuð þið áhuga á að gerast at-
vinnuhljómsveit í Reykjavík?
— Já, svo sannarlega. Það er nokkuð,
sem okkur þætti mikið til koma. og í
þessum töluðu orðum var tilkynnt, að
,,pásan“ væri á enda, svo ég hélt upp
á yfirborð Glaumbæjar á ný.
Er ég hafði tekið mynd af hljóm-
sveitinni, fór ég að litast um eftir fórn-
ardýrum til að fá álit þeirra á Logum
og brátt kom ég auga á Pétur Stein-
grímsson, þar sem hann var að dansa
af miklum innileik, en Pétur er annar
stjórnandi þáttarins Á NÓTUM ÆSK-
UNNAR. Ég sat fyrir honum, þegar
syrpunni var lokið og spurði hann fyrr-
nefndrar spurningar og hann svaraði:
— Þessi hljómsveit er með þeim
beztu, sem hér eru og ég verð að segja,
að ég varð mjög undrandi, þegar ég
heyrði í þeim fyrst, en það var í útvarp-
inu. Persónulega finnst mér kostir
þeirra koma betur fram, þegar maður
hlustar á segulbandsupptökur með
þeim, en að heyra þá leika á sviði,
og það er einmitt einkenni góðrar
hljómsveitar.
4
FALKINN