Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1965, Blaðsíða 12

Fálkinn - 20.12.1965, Blaðsíða 12
r AÐ liggur í hlutarins eðli, að eftir- lifendur syrgja þá, sem nýlátnir eru, og hugsunin um erfðaskrá og vá- tryggingarfé verður að bíða betri tíma. Megan Pugh, sem var kona Sams tví- fingraða varð fyrst hugsað til vátrygg- ingarfjár mannsins síns, daginn sem að- stoðarforstjórinn ofan úr námunni kom inn í eldhúsið hennar í eigin persónu og sagði henni að búið væri að gefa upp alla von um að bjarga Sam og hinum tveim verkamönnunum, sem lok- azt höfðu inni í námunni. Megan neyddi fram sársaukagrettu. En hugsanir henn- ar voru þegar á reiki. Það var hörmu- , legt að hún skyldi þurfa að ganga svart- klædd um tíma. Niðri í Parísarverzlun Lewis hafði hún séð kirsuberjarauðan kjól, sem hún var hamslaus eftir að eignast. „Það er vatnið,“ sagði herra Row- lands með sorgarhreim; „þeir hafa áreiðanlega drukknað." Tilhugsunin • um, að mennirnir þrír hefðu sennilega beðið miklu hræðilegri dauðdaga, var honum ógeðfelld og hann reyndi helzt að forðast hana; drukknun hljómaði hversdagslégar. „Að líkindum verður ómögulegt að komast inn til þeirra fyrst um sinn,“ tuldraði hann; „ef til vill aldrei. Þessir klettar eru á stærð við hús og vatnið fossar inn. Gervöll nám- an gæti fyllzt af vatni ef við sprengd- um þá.“ — Fjórum dögum áður hafði orðið mikið hrun niðri í námunni; í fjóra daga höfðu mennirnir verið inni- lokaðir. Sam hafði verið tryggður fyrir fimmtíu pund hjá Giobus og Atlas félaginu, — það hafði sent honum ókeypis dagatalið, sem hékk á veggnum hans — og svo mundi námufélagið líka greiða skaðabætur. Hún gæti ferðast niður að ströndinni; loksins gæti hún flutt burt úr dalnum og búsett sig ann- ars staðar. Og hvers vegna ætti hún að ganga svartklædd! Hún sýndist svo grá og guggin í svörtu. Ef til vill var það eðlilegt, að til- finningar Megans skyldu vera svo óeðli- legar. Sam hafði alltaf verið naumur á peninga þegar hún átti í hlut; það var J ekki viðlit að halda honum frá hunda- veðhlaupunum; en drykkfelldan var ekki hægt að kalla hann og hann hafði aldrei lagt á hana hendur. Hann gekk undir nafninu Sam tvífingraði vegna þess að hann hafði einu sinni fyrrum imisst þrjá fingur annarar handar í námuslysi. Hið einkennilega var, að sneð tímanum mynduðu fingurnir tveir, sem eftir voru, sannkallaða stálgreip. 12 FÁLKINN Það voru nú liðin tvö ár síðan þau hröðuðu sér upp að altarinu, en fáein- um mánuðum eftir brúðkaupið hafði henni orðið Ijóst, að það var glappa- skot. í tilhugalífinu hafði hann hreykt sér eins og ánægður hani við hlið henn- ar og hún hélt það stafa af gleði yfir að vera með henni. Sem eiginmaður hafði hann strax orðið ráðríkur og drottnunargjarn og þegar hún kvartaði undan því, að hann væri aldrei heima, svaraði hann: „Er kannski hægt að taka hundaveðhlaupin með.sér heim í stofu? Sef ég kannski ekki heima eins og almennilegur maður á hverri nóttu? Hvað geturðu héimtað meira?“ En hún vildi að hann tæki hana með sér út, hún vildi eignast föt, hún vildi ferðast; hún vildi ekki vera eins og holdugar konurnar í námudainum, sem aldrei komu út fyrir hússins dyr, nema þegar þær fóru í búðir eða til kirkju. Þau höfðu rifizt hroðalega. En á þess- um tveim árum hafði hún gugnað. Dal- urinn var dalur karlmannanna — vín- stofur, klúbbar. hundaveðhlaup og knattleikir — allt var eingöngu ætlað karlmönnum. „Námufélagið mun áreiðanlega greiða yður skaðabætur, það held ég að ég megi fullyrða,“ sagði herra Rowlands til þess að segja eitthvað. Hann hélt að fjarrænt augnaráð hennar stafaði af Það var búið að gefa upp alla von um að bjarga Sam. — Hann hafði verið tryggður fyrir fimmtíu pund. — Hjónabandið hafði ver- ið glappaskot og nú var um að gera að bœta sér upp tvö glöt- uð ár.. . . . taugaáfallinu og hinum riýtilkomnu áhyggjuefnum. „Hvað mikið?“ spurði hún. Herra Rowlands tinaði nieð höfðinu. „Rannsókn verður að fara fram og samningar að takast áður en allt verð- ur klappað og klárt.“ Þetta ömurlega ástand gerði hann þreytulegan og gráan í útliti en hann var hertur af margra ára reynslu í námuslysum. Svo var Guði fyrir þakkandi, að kona Sams tvífingraða missti ekki stjórn á sér eins og konur sumra þeirra, sem slösuðust, sérstaklega þær yngri. Hann stóð þung- lega á fætur til þess að halda áfram för sinni til hinna ekknanna tveggja með hina ömurlegu fregn. Þarna lágu mennirnir þeirra í sinni myrku gröf — leystir frá öllum jarðneskum sorg- um. Megan Pugh var skynsöm. Hún var ekki að bera fram kröfur um, að þeir, sem farizt höfðu, skyldu fundnir og grafnir að nýju í vígðri mold. Megan læsti útihurðinni á eftir hon- um. Hún vildi ekki að nágrannarnir færu að koma og sýna hluttekningu. Það var margt núna, sem þurfti að ráð- gera. Hún hafði frjálsar hendur. Þau áttu ekkert barn, sem gat orðið henni fjötur um fót. Morguninn eftir fór hún snemma á fætur og áður en klukkan var hálftíu, sat hún í einum sporvagn- inum, sem ók á milli hinna ýmsu námu- samfélaga. Júlísólin skein. Það yrði ekki amalegt að komast niður að strönd- inni ef þetta veður héldist. Hún fór úr vagninum á síðustu stöð, gekk að húsi einu, sem sneri út að járnbrautinni og barði að dyrum. Húsið átti Dai frændi hennar, sem var smyrj- ari við járnbrautina og veðmangari í frítímum sínum. Dai var enginn auli í peningamálum, og hann gat stundum látið sér segjast. Kona hans bjó til te, þegar hún heyrði fréttirnar. Hún dró sínar ályktanir af ógrátnum augum Megans og spurði: „Hvað ætlastu nú fyrir?“ Því það lagði enn nokkurn ljóma af Megan, hún gat borið hatt, húð henn- ar var fersk, hún hafði fallegar tenn- ur. Megan var ennþá lagleg. „Fyrst um sinn verð ég að reyna að róa taugarnar ofurlítið,“ svaraði Megan; „róa taugarnar úti í Weston-super-Mare og hugleiða málið.“ „Þú ættir nú að fara varlega í sak- irnar næst þegar þú giftir þig,“ sagði kona Dais hvassyrt. „Hann hélt mér eins og í fangelsi!" sagði Megan æst. „Já, sannkallaður gamaldags harð- stjóri — það var hann, hann Sam þinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.