Fálkinn - 20.12.1965, Blaðsíða 10
J
LEGO
leikandi -
heimur !
Á íslandi hefur Reykjalundur einkaleyfi til framleiðslu
á LEGO system.
LEGO system er alþjóðlegt vöruheiti á byggingarten-
ingum af ýmsum gerðum og stærðum, Ieikfangi, sem
ungir og gamlir hafa yndi af. LEGO system er framleitt
í fjölmörgum löndum og eignast hvarvetna aðdáendur.
vinnuheimilid ad ReykjaJundi
Kæri Astró!
Eg hef áhuga á að vita eitthvað um framtíð mína. Ég er
fædd 1949 úti á landi. Ég hef mjög gaman af að syngja og
langar mikið til að læra það. Ég hef líka mikið gaman af
ferðalögum. Á ég eftir að ferðast mikið? Núna er ég í skóla
en ég er ekki sérstaklega dugleg að læra. Ég hef verið dá-
lítið með strák, sem er tveim árum eldri en ég og ég er mjög
hrifin af honum. Verður eitthvað meira með okkur? Mig
langar til að vita hvort ég giftist seint eða snemma eða
kannski aldrei, og hvort ég verði hamingjusöm. Og að lokum
langar ihig til að vita um heilsuna og peningamálin.
Með fyrirfram þökk.
Kisa.
fremur snemma og getur það
gert töluvert strik í reikning-
inn hvað söngnám snertir. Þú
ert ákaflega stjórnsöm og vilt
ráða gangi mála við þína nán-
ustu ekki síður en aðra. Þegar
þú hefur gengið í hjónaband
er ekki víst að stjórnsemi þín
verði ávallt jafn vel þegin af
maka þínum, svo ef þú held-
ur of fast við það sem þú vilt
og gefur ekki tillögum makans
gaum, þá má búast við að
hjónabandið verði stormasamt.
Þú munt einnig vilja vera mik-
ið út á við og ef makinn er
ekki því frjálslyndari og tillits-
10 FÁLKINN
Svar til Kisu:
Ég held að þig skorti ekki
hæfileika til að syngja og ættir
þú því endilega að vinna að
því að þú getir lært að syngja,
og ættir þú að hefjast handa
við fyrsta tækifæri. Þú ættir
þó alls ekki að hætta í því
námi, sem þú ert í núna. Ég
tel að þér ætti að geta gengið
mjög vel við allan lærdóm ef
þú værir ekki svona óþolinmóð,
og óþolinmæði þín mundi geta
orðið þér mikil hindrun í söng-
námi. Því betur sem þú þjálf-
ar þig þeim mun hæfari verð-
ur þú. Ég hugsa að þú giftist
samari þá mó búast við árekstr-
um. Lagni í umgengni við hann
er það eina sem dugar. Þú
munt eiga eftir að fara í mörg
ferðalög, sérstaklega seinni
hluta ævinnar, og búast má
við að þú eigir jafnvel eftir að
vera búsett erlendis að minnsta
kosti nokkur ár. Þú verður ekki
ánægð til lengdar á sama stað,
og er því líklegt að þú flytjir
nokkuð oft búferlum.
Búast má við að þú verðir
mjög heppin í fjármálum og
er ólíklegt að þig eigi eftir að
skorta peninga, jafnvel þó þú
sért í rauninni mjög eyðslu-
söm, en þú ert ein af þeim
manneskjum, sem draga að sér
peninga. Þú gætir einnig unnið
í alls konar happdrættum og
getraunum. Þú gleymir að geta
um fæðingardag piltsins sem
þú ert hrifin af og þar af leið-
andi get ég ekkert sagt um
hann eða sambandið ykkar á
milli.
FLÝGUIt
ÚT
ENDURNÝ JUM
SÆNGUR OG KODDA
FLJÓT AFGREIÐSLA
HÖFUM EINNIG
EINKASÖLU
Á REST-BEST
KODDUM
Póstsendum
um land allt.
DÚN-
OG FIÐUR-
HREINSUNIN
VATNSSTÍG 3
(örfá skref
frá Laugavegi)
Sími 18740.