Fálkinn - 20.12.1965, Qupperneq 24
ÞAÐ er engin fjarstæða að
við, sem erum uppi, árið
1965, og höfum orðið við sjálfir
á venjulegan hátt, erum sloppn-
ir frá öllum möguleikum um
að við okkur sé kákað á' fóstur-
skeiði, getum þurft að kljást
við það vandamál að vita ekki
hverjir við erum. Þar eð á-
græðsla líkamshluta og fram-
leiðsla gervilíffæra verður sí-
fellt algengari þá er ekki
alveg út í bláinn að gera sér
í hugarlund að það eigi fyrir
einhverjum okkar að liggja að
spranga um með plasthorn-
himnu, nokkur bein úr málmi,
Dacron æðar, kirla, nýru og
lifur úr öðrum mönnum, úr
dýrum, úr líffærabönkum elleg-
ar jafnvel slík líffæri sem rækt-
uð eru út frá einni sellu, með
gervihjarta, og í staðinn fyrir
vöðva og taugar sem bilað hafa
sé kominn elektrónískur útbún-
aður sem stjórnað er með
reikni. Þá hefur því og verið
spáð — en það verður naum-
ast í okkar tíð — að unnt verði
að skipta um heila í mönnum,
annað hvort setja í menn heila
sem tekinn er úr annars manns
hauskúpu eða heila sem rækt-
aður er með vefrækt, ellegar
bara að fundinn verði upp ein-
hvers konar elektrónískur vél-
heili. Dr. Lederberg spyr:
„Hver er hin siðferðilega, lög-
fræðilega og sálfræðilega sam-
semd tilbúins skrímslis?11
Dr. Seymor Kety, kunnur
sálsýkisfræðingur, bendir á að
það hafi verið gerðar djúp-
stæðar persónuleikabreytingar
með þeim aðferðum sem þegar
eru kunnar — heilaþvotti, raf-
lostlækningum og aðgerðum á
framhlutum heilans — án þess
að veruleg vandamál um hver
manninum finnist hann vera
hafi komið á daginn. En gildir
sama máli ef nýir líkamshlut-
ar eru settir inn í staðinn fyrir
þá sem greru með eðlilegum
hætti, þannig að lífefnafræði-
legt ástand líkam.ans skapaði
í rauninni nýjan persónuleika
með nýjum smekk, nýjum
hæfileikum og nýjum pólitísk-
um sjónarmiðum — jafnvel
lika minni um aðra reynslu?
Gæti hugsazt að eiginkona
slíks manns ákvæði að viður-
kenna hann ekki lengur sem
sinn mann og að hann væri
það í rauninni ekki? Eða gæti
maðurinn ákveðið að heimili
hans, atvinna hans og fjöl-
skyldu bönd væru honum ekki
að skapi og að hann hygðist
segja skilið við það allt saman
enda þótt honum hefði fallið
það allt prýðiieea eins og hann
áður var?
Slík vandamál geta skotið
upp kollinum áður en farið
verður að skipta algerlega unt
líkamshluta eða líffæri. Sra^-
vægilegar breytingar á heilan-
um geta leitt til stór.vægilegra
breytinga á persónuleikanum.
Visindamenn sem gera raf-
magnskönnun á heilanum að
sérgrein sinni eru að rannsaka
smápart í heilanum sem kall-
aður er ,,amygdala“ og hafa
komizt að raun um að þar er
aðsetur margra hélztu girnda
og ástríðna, þar á meðal óvið-
ráðanlegs kynæðis.
Verið getur að sá tími sé
furðu nærri t. d. að lögreglan
hafi hendur í hári hr. X sem
er miskunnarlaus nauðgari og:
skelfir allra kvenna, en í stað-
inn fyrir að stinga honum í
fangelsi þá sendi hún hann
á sjúkrahús til heilaaðgerð-
ar. Læknirinn lagfærir „amyg-
dala“, og nokkru seinna kem-
ur maðurinn út af sjúkrahús-
inu og þá mildur og blíðlynd-
ur og yfirhöfuð hvers manns
hugljúfi. Hann er alls ólíkur
þeim manni sem var ekið inn í
skurðstofuna. Er þetta nú sami
maðurinn? Er nýi maðurinn
ábyrgur fyrir þeim glæpum
sem hann eða hinn maðurinn
áður framdi? Á að hegna hon-
um? Eða á að sleppa honum
lausum?
Er fram líða stundir getur
orðið nauðsynlegt, án þess að
nokkur hafi dáið, að lýsa hr. X
úr sögunni, en að hr. Y hafi
orðið til í staðinn. Þetta væri
eins konar óeiginlegur dauð-
dagi eða táknrænn dauðdagi,
og endurfæðing, en frá sál-
fræðilegu sjónarmiði raunveru-
legur dauðdagi — og þá ef til
vill líka það frá lögfræðilegu
sjónarmiði.
En það verður líklega stöð-
ugt erfiðara að ákveða með
nákvæmni dauðann í hinum
gamla skilningi. Það var sam-
komulag um það að maður væri
dauður þegar hjartað stöðvað-
ist og önnur helztu líffæri
hættu að starfa, og þá lýsti
læknirinn manninn andaðan,
En nú verður það sífellt algeng*
ara að hjartanu sé komið af
stað aftur, ,,dauðir“ menn eru
lífgaðir við og það verður sí-
fellt erfiðara að segja til um
hvenær maður er dauður og
hvenær ekki. Dæmi er jafnvel
um það i Bandaríkjunum að
reynt var klukkustundum sam-
an að koma lífi í 'mann og
síðan gáfust læknarnir upp,
töldu hann endanlega dauðan
og létu tilkynna konu hans lát-
ið í síma. Konan fékk hjarta-
slag og lézt samstundis, en litlu
HINN NÝI MAÐUR-
HINN NYI HEIMUR
EFTIR
ALFRED ROSENFELD
t
SÍDARI HLUTI
EF MAÐUR ER VAKINN UPP
FRÁ DAUÐUM, HVAR HEFUR
ÞÁ SÁLIN HALDIÐ SIG?
FALKINN