Fálkinn - 20.12.1965, Qupperneq 39
JÓLA-
SÆLGÆTI
EINN Iiður í jólaundirbúningnum er að út-
búa konfekt og annað sælgæti. Að því
gctur öll fjölskyldan unnið jafnt ungir sem
gamlir, allir komast í jólaskap, sungin jóla-
lög og sálmar eða heimilisfaðirinn les upp-
hátt meðan allir kcppast við og komast í
hið sanna jólaskap.
UM HJÚPSÚKKULAÐI.
Til að hylja konfektið þurfum við að nota
hjúpsúkkulaði, venjulegt súkkulaði er fitu-
minna og kemur ekki að til ætluðum notum.
Bezt er að rífa hjúpsúkkulaðið niður, láta
það í skál, sem sett er yfir pott með dálitlu
vatni í, vatnið má alls ekki ná upp að botni
skálarinnar. Þannig er súkkulaðið brætt við
vægan hita og þess gætt vel, að engin gufa
komizt að því. Ekki má þeyta í súkkulaðinu
aðeins hræra varlega, svo að það bráðni jafnt,
annars kemst loft inn í það og þá verður það
matt og grátt. Einnig er það þýðingarmikið
að súkkulaðið verði ekki meira en 40° heitt.
Auðvelt er' að fylgjast með því, við þolum
rétt aðeins þann hita, ef fingri er stungið
í súkkulaðið. Þá erskálin tekin af hitanum
og súkkulaðið kælt í 5—10 mínútur og þá
er bezt að hjúpa með því. Setjið aldrei kókos-
feiti eða aðra fitu saman við súkkulaðið. Þá
verður það svo bráðfeitt, að ógerningur er
að snerta það, án þess að það bráðni milli
fingra manns. Konfektið sett á smjörpappír,
látið þorna við venjulegan stofuhita — ekki
í kulda eða dragsúg.
• Framh. á bls. 42.
Búið til kúlur mismunandi á litinn
þrýstið Vi valhnetu, heslihnetu eða
rauðberi ofan í hverja kúlu. Hjúpað
ef vill.
Fletjið út 2—3 mismunandi bita af
marsipan, smurt með eggahvítu, lagt
saman, skorið í fallega lagaða bita.
Setjið marsipan innan í útsteinaðar
döðlur eða sveskjur, hjúpið með
súkkulaði.
4. blandið jimsu smátt söxuðu saman
við marsipan t. d. söxuðum hnetum,
möndlum, súkkati, súkkulaði, köld-
um mulnum nougat, einnig ýmsum
bragðefnum eins og t. d. rommi eða
öðru áfengi. Mótað á ýmsa vegu,
hjúpað að öllu eða hálfu leyti.
FÍNT MARSIPANBRAUÐ.
Fletjið marsipan, sem flórsykri að V3
hefur verið hnoðað upp í, út í ferkant-
aða köku. Hrærið mjúkan nougat linan
og smyrjið honum ofan á Mar.sinanið
vafið þétt saman. Þrýst vel sa'-^n og
á samskeytunum, Smurt með hjúp-
Svona er súkkulaði hjúpað.
súkkulaði, skreytt með valhnetum,
sykurfjólum og silfurkúlum.
MJÚSST NOUGAT.
Blandið samaai 50 g af kakó og 100 g
af sáldruðum fiórsykri og 5 g vanillu-
sykri. Brætt saman yfir gufu ásamt
75 g helzt ósöltu smjöri, hrært vel í
10—15 mínútur. Þurrkað á smjörpappír.
KARAMELLUTOPPAR.
1 dl ijóst síróp
IV2 dl rjómi
1 dl sykur
4 dl eornflakes
1 msk. vanillusykur
1 msk. kakó.
Síróp, rjómi og sykur soðið í þykk-
botna potti við vægan hita í nál. 10
mínútur. Tekið af eldinum og öllu öðru
blandað saman viS. Sett í smátoppa á
smurðan papplr. Geymt á köldum stað.
MARSIPANKONFEKT.
Auðveldast er að kaupa tilbúinn marsi-
pan, er bæði hægt að fá svonefndan „kan-
fektmarsa“ og hrÉjan marsipan. Sá síðar-
nefndi er mun betri einnig drýgri, en hann
má drýgja með flórsykri allt að sinni eigin
þyngd. En mörgum finnst hann þá verða of
sætur og einnig þornar hann fyrr. Auk þess
að hnoða flórsykri (sáldruðum) upp í marsi-
paninn, er hnoðað saman við hann eggja-
hvítu eða sherry, auk annarra bragðefna.
Oft er marsipan litað með ávaxtalit, rautt,
gult og grænt eða brúnt með kakó. Allan
marsipan þarf að geyma í loftþéttu t. d.
málmpappír eða plastik og á köldum stað.
1.
2.
3.
Slcikipinnar.
FALKINN
39