Fálkinn - 20.12.1965, Page 41
t
800
AF
í 8. umferð var keppnin hörð eins og jafnan áður. Þrir
aðilar voru stighærri en þeir sem röðuðu sér í efstu sætin,
en þeir höfðu allir gengið of langt í orðmyndunum að okk-
ar dómi.
Verðlaunin:
1. verðlaun, kr. 500,00, fékk Bergur Ingimundarson, Mel-
hól, Meðallandi, V-Skaftafellssýslu. Hann hlaut 343 stig.
2. verðlaun, kr. 200,00, fékk Sigrún Einarsdóttir, Skóla-
stræti 5b, Reykjavík. Hún hlaut 342 stig.
3. verðlaun, kr. 100,00, fékk Ari Hermannsson, Blöndu-
ósi A-Hún. Hann hlaut 336 stig.
Lausnirnar:
Lausn Bergs: Melakra — Almyrka — Reyksala — Klasar —
Lymskara — Elskar — Ylsamar — Smeykara — Almyrka.
Lausn Sigrúnar: Mylkar — Almyrka — Reyksala —
Keyrsla — Lesmarka — Elskara — Ylsamar — Skylmara
— Almyrka
Lausn Ara: Marka — Alskera — Ryksama — Kamars —
Laskar — Elskara — Ylsamar — Skylmara — Alskera.
Næsta þraut:
Lykilorðið er Jólasveinar. Þar sem enn eru að berast
ráðningar, sem ekki eru rétt leystar, er rétt að geta þess,
að við myndun nýrra orða út frá lykilorðinu má ekki nota
aðra stafi en í lykilorðinu og ekki oftar en þeir koma fyr-
ir í þvi. Nú eru t. d. tvö A í lykilorðinu og þá má nota
A tvisvar í hverju nýju orði, en ef A-ið er fyrsti stafur í
orði, þá má bara bæta við einu A-i til viðbótar, dæmi:
Asnar, en ekki Asnana, því þá er búið að bæta við þriðja
A-inu og öðru N-i, en það er ekki nema eitt N i lykilorð-
inu.
Eins og þið sjáið á dæminu hér að ofan þá fáið þið einn
þegar þið notið staf í fyrsta skipti, tvo í annað skipti, þrjá
í þriðja skipti og koll af kolli. Það. eru margir sem eru
Samtals:
Nafn: .....................................
Heimilisfang: .................................
nokkrum stigum neðar en þeir efstu og vantar oft ekki
nema herzlumuninn á að fá verðlaun, svo þið, sem ekki
hafið komizt á blað, skuluð ekki láta hugfallast. Þeir sem
hafa áhuga á þessari þraut þyrftu að verða sér úti um
orðabók.
Hvað má ekki gera:
Bannað er að nota persónuheiti eða staðaheiti, ennfremur
heimatilbúin orð og önnur orðskrípi. Rita skal orð eftir
ríkjandi réttritunarreglum.
Verðlaun:
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 500,00,
200,00 og 100,00 Ef margir ná sama stigafjölda verðux
dregið um verðlaunin. Frestur til að skila lausnum er
þrjár vikur. Merkið umslagið ORÐ AF ORÐI 12.
Utanáskriftin er: Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411
ann. „Hver ert þú?“ spurði kon-
an mefl málhreim, sem Chiang
gat ekki komið fyrir sig. Að
likindum var hún spök. Chiang
mundi eftir, að herra Liu hafði
tekið honum vara fyrir því, ef
hann spyrði eftir sér i símann,
að láta ekki konu sina snúa
spurningunni við. Hann sagði til
nafns sins.
„Ó, herra Chiang," sagði rödd-
in með ákefð, ,,þú ert herra Chi-
ang sem hann fer tii á hverju
kvöldi og ræðir við um bók-
menntir, er það ekki? Er hann
ekki hjá þér í kvöld? Hvar er
hann?“
Chiang flýtti sér að leggja
heyrnartólið á. Hann velti því
fyrir sér hver þessi kona myndi
vera. Hann hafði heyrt, að herra
Liu væri ókvæntur, en byggi
með einhverri konu. Að dæma
eftir ákafanum í rödd hennar,
virtist henni mjög annt um hann.
En það var auðséð að herra Liu
kom ekki heiðarlega fram við
hana. Chiang hristi höfuðið og
ákvað að halda heim.
Framh. í næsta blaði.
• Hinn nýi maður
Framh. af bls. 28.
glasi eða með vefrækt. Hann
gæti haldið meginþbrra fólks
auðveldlega í eins konar þrælk-
un með breytingum og stjórn
á heilastarfsemi þeirra, og samt
lifðu allir við sífellda þæginda-
kennd er framleidd yrði með
því að örva stöðugt stöðvar
þægindaskynsins i heilanum.
Enginn maður í slíku þjóð-
félagi hefði nokkurt valfrelsi,
en allir væru „hamingjusamir"
Og hver er að tala um ham-
ingjuleit þegar allir eru ham-
ingjusamir?
Ef við hugsum svo, segir
Sir Julian Huxley, verðum við
einu sinni enn að vita hvaða
svör við viljum gefa eftirfar-
andi spurningum: Hvers er
FÁLKINN 41