Fálkinn - 04.04.1966, Side 45
ALMENNARI
IRYEGINGARf
Póslhússtrœli 9, sími 17700
verki ekki sem hormónar, sé
það borið á útvortis. í stað þess
að hleypa af stokkunum fjölda
andverkana um allan líkam-
ann, eins og það gerir við inn-
töku, virðist það sem áburður
eingöngu auka frumuvöxt í
leðurhúðinni.
Þetta gefur einmitt skýringu
á því, hvers vegna ekki hefur
orðið vart minnstu óæskilegra
aukaáhrifa hjá neinum afsjúkl-
ingum dr. Papa. Möguleiki
slikra aðkomugalla er þó eigi
að síður enn sem komið er
hugsanleg hætta við alla út-
vortis notkun sterkra hormóna-
efna. Þegar þau eru t. d. tekin
inn í stórum skömmtum, geta
þau valdið óhæfilegri teppu á
vatni og saltefni í líkamanum,
sáru misræmi í kirtlastarfsemi
og fleiri hættulegum kvillum.
Nú er spurningin, hvenær
hormónalyf halda innreið sína
í daglega höfuðþjónustu lækn-
islistarinnar. Dr. Papa ritar
eftirfarandi klausu í Tímarit
bandaríska læknasambandsins:
„Við lítum ekki svo á, að við
höfum f undið óbrigðult ráð
við venjulegum skalla með út-
vortis notkun hormónalyfja.
Mikilvægi þessara rannsókna
liggur í því, að opnuð hefur
verið leið til könnunar og fram-
leiðslu á öðrum læknisdómum,
er komið gætu að fyllsta gagni
við útvortis notkun.“
í ritstjórnargrein tímaritsins
er þessu bætt við: „Á þessum
tímum lífefnafræðilegra töfra-
bragða getur lítill efi á því
leikið, að framleidd verða lyf
úr karllegum hormónum (and-
rogen), sem bæði verða örugg
til hárvaxtar og laus við allar
aðskotaverkanir. Eigi að síður
gefa yfirstandandi rannsóknir
aðeins góðar vonir, bæði lækn-
um og sjúklingum, og krefjast
bæði þolinmæði og umburðar-
lyndis.“
# Búðtrtgurinn
Framh. af bls. 21.
Það er mjög mikilvægt, að
unga stúlkan fari huldu höfði
um tíma, strax og hún hefur
náð gimsteininum, til þess að
hún verði ekki yfirheyrð, ekki
spurð neinna spurninga. Þess
vegna er því komið þannig fyr-
ir, að hún fái einnig að dvelja
hér á Kings Lacey og látið í
veðri vaka, að hún sé systir
hins ráðsnjalla, unga manns,
Sara stundi hátt. — Ó, nei!
Ekki hérna! Ekki með mig í
húsinu!
— En þannig er það, sagði
Poirot. — Og með því að toga
í fáeina þræði, er ég einnig orð-
inn gestur hér um jólin. Unga
stúlkan er sögð vera nýkomin
af sjúkrahúsi. Hún er miklu
hressari við komuna til Kings
Lacey. En svo kvisast það, að
ég muni koma hingað líka,
leynilögreglumaður — frægur
leynilögreglumaður. Hún verð-
ur óttaslegin og felur rúbíninn
á fyrsta staðnum, sem henni
dettur í hug, og örskömmu síð-
ar versnar henni aftur og hún
fer í rúmið. Hún vill ekki að
ég sjái sig, þar sem ég muni án
efa hafa af henni ljósmynd og
bera kennsl á hana. Það er
allt annað en gaman fyrir hana,
en hún neyðist til að halda
kyrru fyrir á herbergi sínu, og
bróðirinn færir henni sjálfur
allan matinn.
— Og hvað með rúbíninn?
spurði Michael.
— Ég held, sagði Poirot, —
að á því augnabliki, sem hún
heyrði nefnt, að ég ætlaði að
koma, hafi hún verið stödd í
eldhúsinu ásamt ykkur hinum,
allir hlæja og tala saman og
hræra í plómubúðingnum. Búð-
ingnum er hellt í mótin, og
unga stúlkan felur rúbíninn
með því að þrýsta honum vel
niður í eina skálina. Ekki þá,
sem við eigum að fá fyrsta
jóladag! Ónei, hún veit, að sá
búðingur er í sérstöku móti.
Hún lætur steininn í hitt sem á
að nota á nýársdag. Áður en
að því kemur, mun hún vera
farin úr húsinu, og þegar hún
fer, hefur hún plómubúðinginn
án efa á brott með sér. En sjáið
nú, hve grátt örlögin leika
hana. Á sjálfan jóladagsmorg-
un verður óhapp. Plómubúð-
ingurinn í jólamótinu fellur á
gólfið, og mótið brotnar. Og
hvað er þá tekið til bragðs. Jú,
okkar ágæta frú Ross tekur
hinn búðinginn og sendir hann
inn í staðinn.
— Þremillinn sjálfur, sagði
Colin, — eigið þér við, að það
hafi verið ósvikinn rúbín-
steinn, sem afi fékk upp í sig?
— Einmitt, sagði Poiroh —
Og við getum rétt ímyndað
okkur tilfinningar Lee-Wort-
leýs, þegar hann sá það. Og
hvað gerist svo? Ég lít á rúbín-
inn og sting honum síðan í
vasann svo lítið ber á. En einn
maður hefur tekið eftir því.
Þegar ég er lagztur til svefns,
rannsakar maðurinn herbergi
mitt. Hann leitar á mér sjálf-
um. En hann finnur hvergi rú-
bíninn. Hvers vegna?
Framh. á bls. 47.
BLAUPUNKT
BLAUPUIVKT
SjOItVÖrp, margar gerSir,
þekkt fyrir m. a.
• LANGDRÆGNI
• TÓNGÆÐI
• SKARPA MYND
10% afsláttur. —
Hagkvæmir greiðsluskilmálar. —
%imnai -Sfygeiióóon h.f.
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Slmnefni: »Volver« - Slmi 35200
FALKINN
45