Fálkinn


Fálkinn - 04.04.1966, Síða 45

Fálkinn - 04.04.1966, Síða 45
ALMENNARI IRYEGINGARf Póslhússtrœli 9, sími 17700 verki ekki sem hormónar, sé það borið á útvortis. í stað þess að hleypa af stokkunum fjölda andverkana um allan líkam- ann, eins og það gerir við inn- töku, virðist það sem áburður eingöngu auka frumuvöxt í leðurhúðinni. Þetta gefur einmitt skýringu á því, hvers vegna ekki hefur orðið vart minnstu óæskilegra aukaáhrifa hjá neinum afsjúkl- ingum dr. Papa. Möguleiki slikra aðkomugalla er þó eigi að síður enn sem komið er hugsanleg hætta við alla út- vortis notkun sterkra hormóna- efna. Þegar þau eru t. d. tekin inn í stórum skömmtum, geta þau valdið óhæfilegri teppu á vatni og saltefni í líkamanum, sáru misræmi í kirtlastarfsemi og fleiri hættulegum kvillum. Nú er spurningin, hvenær hormónalyf halda innreið sína í daglega höfuðþjónustu lækn- islistarinnar. Dr. Papa ritar eftirfarandi klausu í Tímarit bandaríska læknasambandsins: „Við lítum ekki svo á, að við höfum f undið óbrigðult ráð við venjulegum skalla með út- vortis notkun hormónalyfja. Mikilvægi þessara rannsókna liggur í því, að opnuð hefur verið leið til könnunar og fram- leiðslu á öðrum læknisdómum, er komið gætu að fyllsta gagni við útvortis notkun.“ í ritstjórnargrein tímaritsins er þessu bætt við: „Á þessum tímum lífefnafræðilegra töfra- bragða getur lítill efi á því leikið, að framleidd verða lyf úr karllegum hormónum (and- rogen), sem bæði verða örugg til hárvaxtar og laus við allar aðskotaverkanir. Eigi að síður gefa yfirstandandi rannsóknir aðeins góðar vonir, bæði lækn- um og sjúklingum, og krefjast bæði þolinmæði og umburðar- lyndis.“ # Búðtrtgurinn Framh. af bls. 21. Það er mjög mikilvægt, að unga stúlkan fari huldu höfði um tíma, strax og hún hefur náð gimsteininum, til þess að hún verði ekki yfirheyrð, ekki spurð neinna spurninga. Þess vegna er því komið þannig fyr- ir, að hún fái einnig að dvelja hér á Kings Lacey og látið í veðri vaka, að hún sé systir hins ráðsnjalla, unga manns, Sara stundi hátt. — Ó, nei! Ekki hérna! Ekki með mig í húsinu! — En þannig er það, sagði Poirot. — Og með því að toga í fáeina þræði, er ég einnig orð- inn gestur hér um jólin. Unga stúlkan er sögð vera nýkomin af sjúkrahúsi. Hún er miklu hressari við komuna til Kings Lacey. En svo kvisast það, að ég muni koma hingað líka, leynilögreglumaður — frægur leynilögreglumaður. Hún verð- ur óttaslegin og felur rúbíninn á fyrsta staðnum, sem henni dettur í hug, og örskömmu síð- ar versnar henni aftur og hún fer í rúmið. Hún vill ekki að ég sjái sig, þar sem ég muni án efa hafa af henni ljósmynd og bera kennsl á hana. Það er allt annað en gaman fyrir hana, en hún neyðist til að halda kyrru fyrir á herbergi sínu, og bróðirinn færir henni sjálfur allan matinn. — Og hvað með rúbíninn? spurði Michael. — Ég held, sagði Poirot, — að á því augnabliki, sem hún heyrði nefnt, að ég ætlaði að koma, hafi hún verið stödd í eldhúsinu ásamt ykkur hinum, allir hlæja og tala saman og hræra í plómubúðingnum. Búð- ingnum er hellt í mótin, og unga stúlkan felur rúbíninn með því að þrýsta honum vel niður í eina skálina. Ekki þá, sem við eigum að fá fyrsta jóladag! Ónei, hún veit, að sá búðingur er í sérstöku móti. Hún lætur steininn í hitt sem á að nota á nýársdag. Áður en að því kemur, mun hún vera farin úr húsinu, og þegar hún fer, hefur hún plómubúðinginn án efa á brott með sér. En sjáið nú, hve grátt örlögin leika hana. Á sjálfan jóladagsmorg- un verður óhapp. Plómubúð- ingurinn í jólamótinu fellur á gólfið, og mótið brotnar. Og hvað er þá tekið til bragðs. Jú, okkar ágæta frú Ross tekur hinn búðinginn og sendir hann inn í staðinn. — Þremillinn sjálfur, sagði Colin, — eigið þér við, að það hafi verið ósvikinn rúbín- steinn, sem afi fékk upp í sig? — Einmitt, sagði Poiroh — Og við getum rétt ímyndað okkur tilfinningar Lee-Wort- leýs, þegar hann sá það. Og hvað gerist svo? Ég lít á rúbín- inn og sting honum síðan í vasann svo lítið ber á. En einn maður hefur tekið eftir því. Þegar ég er lagztur til svefns, rannsakar maðurinn herbergi mitt. Hann leitar á mér sjálf- um. En hann finnur hvergi rú- bíninn. Hvers vegna? Framh. á bls. 47. BLAUPUNKT BLAUPUIVKT SjOItVÖrp, margar gerSir, þekkt fyrir m. a. • LANGDRÆGNI • TÓNGÆÐI • SKARPA MYND 10% afsláttur. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — %imnai -Sfygeiióóon h.f. Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Slmnefni: »Volver« - Slmi 35200 FALKINN 45

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.