Fálkinn - 04.04.1966, Page 58
• KvenþjóðSn
Frami:. aí bls. 53.
APPELSÍNU-
SÚKKULAÐIKAKA.
325 hveiti
100 g kakó
3 tsk. lyftiduft
Rifinn börkur af
4 appelsínum
400 g smjörlíki
300 g sykur
4 egg
IV2 dl mjólk
IV2 dl vatn
100 g hjúpsúkkulaði.
Hveiti kakói og lyftidufti
sáldrað saman, berki blandað í.
Smjörlíki og sykur hrært vel
eggin þeytt saman við. Mjólk
og vatni blandað saman, hrært
til skiptis við hveitiblönduna
í deigið. Byrjið og endið á
hveiti. Deigið sett í vel smurt
sandkökumót. Bakað um 1 klst.
við 180°.
Kakan kæld i 5—6 mínútur,
áður en hún er látin á grind.
Súkkulaðið brætt við gufu, bor-
ið á kökuna með pensli, sléttað
úr því með heitum pönnuköku-
hníf.
VALHNETUKAKA.
125 g smjörlíki
150 g sykur
2 egg
200 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
100 g valhnetukjarnar
2 eggjahvítur
125 g flórsykur
1 dl vatn
1 eggjahvíta
1 tsk. sítrónusafi.
Smjörlíki og sykur hrært
vel, eggjarauðunum hrært
saman við, síðan sáldruðu
hveiti og lyftidufti. Valhnetu-
kjarnarnir saxaðir gróft (geym-
ið 8—10 til skrauts), blandað
í deigið, ásamt stífþeyttum
eggjahvítunum. Bakað við 180°
í nál. 1 klst.
Þegar kakan er orðin köld
er hún hulin með sykurbráð:
Vatn og sykur soðið við vægan
hita, þar til það fer að þykkna
(10—15 mínútur). Hellt sjóð-
andi í eggjahvíturnar, þeytt
vel á meðan. Sítrónusafa hrært
saman við, þeytt áfram þar til
bráðin er jöfn og gljáandi.
Bráðin sett utan á kökuna,
skreytt með valhnetum.
58 FÁLKINN
SÚKKULAÐI-
HNETUKÖKUR.
V2 bolli hveiti
V2 tsk. lyftiduft
Y-i tsk. salt
4 msk. kakó
2 msk. vatn
V3 bolli smjörlíki
2 egg
1 bolli sykur
1 tsk. vanilla
1 bolli saxaðir hnetu-
kjarnar,
Ath. amerískt bollamál.
Kakó og vatn hitað saman
yfir vatnsbaði, smjörlíkið brætt
þar í. Tekið af eldinum. Eggin
þeytt, sykri og vanillu bland
að saman við. Hrært saman við
brætt súkkulaðið og smjörlík-
ið. Hveiti, lyftidufti og salti
sáldrað saman við. Hrært vel.
Söxuðum hnetunum blandað i.
Deigið sett í smurt ferkantað
mót. Bakað við meðalhita í nál.
30—35 minútur. Kælt í mót-
inu. Skorið i bita, þegar það
er orðið alveg kalt.
BANANA-HVOLFKAKA
2 msk. smjör
V2 bolli púðursykur
3 bananar
2 msk. rúsínur
V alhnetuk j arnar
y4 bolli smjörlíki
% bolli sykur
2 egg
1 tsk. vanilla
1% bolli hveiti
2 tskl lyftiduft
V2 tsk. salt
% bolli mjólk.
Smjörið brætt, púðursykrin-
um hrært saman við, hrært
þar til það hefur jafnað sig
vel. Hellt í . ferkantað mót
20X20 cm, botninn þakinn vel.
Bananasneiðum, rúsínum og
valhnetukjörnum raðað ofan á.
Venjulegt hrært deig búið
til, hellt í mótið. Bakað við
175° í 50—60 mínútur.
TEKÖKUR.
% bolli smjör
V2 bolli sykur
1 egg
1 tsk. vanilla
1% bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
V2 tsk. salt.
Smjör og sykur hrært vel,
saman við og vanilla. Hveiti,
lyftidufti og salti sáldrað í
deigið, hrært vel. % hluti
deigsins tekinn frá, hrærið 1
msk. af kakói og 1 msk. af
sykri saman við.
Hvíta deigið látið með te-
skeið á ósmurða plötu, sléttað
úr deiginu, brúna deiginu
sprautað á hverja köku. Bakað
við 200° í 7—10 mínútur.
HNETUKÖKUR.
200 g hnetukjarnar
2 egg
200 g sykur.
Til skrauts:
Hneta í hverja
köku
Hnetukjarnarnir rifnir fínt.
Sykur og egg hrært saman
(ekki þeytt) hnetunum bland-
að saman við. Mótaðar litlar
kúlur með teskeið. Raðað á vel
smurða plötu. Kökurnar jafn-
aðar með hendi. Hnetu stung-
ið í miðju hverrar köku.
Bakað við vægan hita, 150°,
þar til dálítill litur er kominn
á kökurnar (nál. 10 mínútur).
ÞRJÁR KÖKUR f EINU.
2V2 bolli hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
V2 bolli sykur
V2 bolli púðursykur
1 bolli smjörlíki
2 egg
1 tsk. vanilla
V2 bolli mjólk.
í 1. hluta:
1 tsk. kanell
V2 bolli smátt brytj-
aðar döðlur
f 2. hluta:
1 tsk. möndludropar
f 3. hluta:
50 g brætt suðusúkku-
laði
1 msk. vatn
V2 bolli kókósmjöl.
Sykur, púðursykur og smjör-
líki hrært lint, eggin hrærð
saman við og vanilla, öllu
þurru sáldrað saman við ásamt
mjólkinni. Hrært vel. Deig-
inu skipt í þrennt og í 1. hlut-
ann hrært kanel og döðlum,
í 2. hluta möndludropum og
í 3. hlutann bræddu súkkulaði,
vatni og kókósmjöli.
Setjið litla teskeið af öllum
deigtegúndum á smurða plötu,
þannig að þær snerti hverja
aðra og myndi eins og þrí-
hýrning (sjá mynd). Setjið
hluta af rauðu beri ofan í hvíta
deigið.
Bakað við 200°—225° í
10—12 mínútur.
KORNFLAKESKÖKUR.
120 g smjörlíki
100 g sykur
1 egg, lítið
1 tsk vanillusykur
1 msk. rifinn
appelsínubörkur
150 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Kornflakes.
Venjulegt hrært deig. Mót-
aðar kúlur á stærð við val-
hnetu, sem velt er upp úr
muldu kornflakes. Settar á
smurða plötu.
Bakað við 200° í nil. 15
mínútur.
• Páskaegg
Framh. af bls. 55.
Sett á smurða plötu eða á eld-
fast fat. Bræddu smjöri hellt
yfir, sett inn í 225° heitan ofn.
Borið fram strax, þegar eggja-
hvítan er hlaupin. Saxaðri
steinselju stráð yfir og paprika
látin á miðju hverrar eggja-
rauðu.
EGG MEÐ RÆKJUSALATI
í TÓMÖTUM.
4 egg
4 stórir tómatar
Salt, paprika
1 dós rækjur
Fiskibollur
4-5 msk. majonnes
Sítrónusafi.
Grænt salat.
Tómatarnir holaðir að innan,
hvolft á disk. Eggin harðsoðin,
kæld í köldu vatni, skurnið
tekið af þeim og þau skorin í
sneiðar. Ljótustu sneiðarnar
saxaðar smátt og blandað f
majonnesið ásamt rækjunum
(takið dálítið frá til skrauts),
og smátt skornum fiskibollum,
kryddað með sítrónusafa, ögn
af karry, salti og pipar. Saltið
sett í tómatana, eggjasneið lögð
yfir, skreytt með rækjum og
steinselju.
Græna salatið hreinsað og
klippt niður, raðað á röndina
á fatinu og eggjarauðunum þar
ofan á. Tómatarnir settir f
miðjuna.
FÁLKINN
á hverjum mánudegi