Fálkinn - 30.05.1966, Blaðsíða 12
f HRIF þess eru margvísleg
-í*- og furðuleg. Sami maður
getur orðið fyrir mismunandi
reynslu og mismunandi persón-
um reynast þau ærið sundur-
leit. Undarlegir litir flögra
fyrir sjónum manna, hljómar
hafa lit, litir hafa hljóm. Dauð-
ir hlutir öðlast líf, maður get-
ur skynjað sjálfan sig í tré eða
blómi, eða þá að honum finnst
hann svifa fyrir utan sjálfan
sig, og komizt hefur verið svo
■að orði að þessu fylgi stund-
um eins konar „snertur af
dauða“. Tilveran breytist með
manninum sem skynjar hana:
Takmörk rúms og tíma riðlast,
stundum kemur yfirskilvitlegur
friður og trúarlegt innsæi inn
í eðli mannlífsins, en stundum
er eins og manni sé sökkt niður
í víti þjáninga og eyðingar.
Miklu fleiri hafa þó fagra og
ljúfa sögu að segja. Og menn
sem venjulega eru ekki taldir
neitt trúhneigðir nefna guð oft
í lýsingum sínum.
Þetta eru sundurlaus dæmi
um það hvernig það orkar á
menp að neyta undralyfsins
LSD, og svipuð áhrif eru af
hinum tveimur öðrum undra-
lyfjategundum sem mest er um
taiað;- psilocybin og mescalin.
Þéssí lyf éru venjulega köll-
uð ofskyrijanalýf. Þau eru ekki
venjúleg eituríyf, ósambærileg
við heróín eðá ópium og annað
þess háttar. Neyzla þeirra get-
ur erðið að ávana, en þau eru
ekki eiturlyf í þeim skilningi að
menn hljóti að verða að ánauð-
ugum þrælum þeirra ef þeirra
er neytt Þar við bætist að
menn verða ónæmir fyrir a. m.
k. LSD ef ekki líður viss tími
á milli. En nú er líka farið að
nefna þau öðru nafni: hug-opn-
andi lyf,. psychedelic (hug-opn-
andi eða hug-birtandi) sökum
þess að þau opni vitund manns-
ins, leiði í ljós hvað inni fyrir
býr.
Um eðli og verkanir þess-
ara lyfja er fátt eit't vitað
með fullri vissu, en þau eru
þó — einkum LSD sem er
langsterkast — þegar orðin
heimssensasjón, eitthvað sem
virðist benda fólki á nýja til-
veru í framtíðinni. Og alveg
nýlega hafa blöð í Ameríku
verið full af fréttum af alls
konar furðulegum fyrirburðum
og óhöppum í sambandi við
LSD inntökur.
Enda þótt hér sé um að ræða
lyf, en hvorki mat eða sælgæti,
hefur verið tiltölulega auðvelt
að verða sér úti um það í
Ameríku og víðar, sennilega
meðfram af því að það er naum-
ast talið hættulegt og reglur
óskýrar um notkun þess. Fyrir
því hafa margir prófað það af
forvitni og af löngun til að
gera gráan hversdagsleikann
svolítið litskrúðugri, og vísinda-
mönnum sem trúað var til að
gera tilraunir með lyfin hefur
verið borið það á brýn að þeir
hafi notað aðstöðu sína gálaus-
lega, jafnvel farið að verða
hrifnari af áhrifum lyfjanna en
hinum vísindalegu niðurstöð-
um. Hér er einkum um að ræða
tvo prófessora frá Harvardhá-
skóla, Timothy Leary og Ric-
hard Alpert, sem báðum hefur
verið vikið frá starfi. Utan um
þessa tvo menn hefur nú mynd-
azt eins konar hreyfing áhuga-
manna um hugopnandi tilraun-
ir, en þeir telja að ofskynjana-
lyf megi ekki einasta nota til
lækninga á venjulegan hátt -
það séu bara smámunir hjá
hinu - þau megi líka nota til að
bæta rnannlífið, þau opni vit-
und mannsins og breyti henni,
og með þetta fyrir augum eigi
að haga rannsóknum á þeim.
Og staðhæft er að þau hafi a.
m. k. í sumum tilfellum svipuð
áhrif og lýst er í yoga og myst-
ískri reynslu, þau veki djúpa
trúarlega innsýn, brjóti niður
múra milli manna og skapi
kærleika til mannkynsins.
En þó að þeir félagar hafi
eitthvað til síns máls er betra
að fara að öllu með gát. Það
er staðreynd að ofskynjanalyf
eða hugopnunarlyf gefa ótví-
rætt til kynna nýja möguleika
í vitundarlífi manna. En óhöpp
með LSD-ætur eru þegar farin
að gerast harla tíð:
Fimm ára gömul stúlka í
New York át sykurmola sem í
hafði verið dreypt LSD. Hún
varð alveg óð, og þurfti að
hafa hana á sjúkrahúsi í viku
tíma undir strangri gæzlu eins
og erfiðasta geðsjúkling.
Þrítugur maður er stundað
hafði nám í læknisfræði en
ekki lokið því gerði sér lítið
fyrir og rak tengdamóður sina
í gegn með hnífi undir LSD
áhrifum. Hann sagði lögregl-
unni að hann hefði í þrjá daga
verið á LSD-túr.
Það hefur borið oftar við,
að menn hafi orðið mannsbani
undir þessum áhrifum.
Þá er það heldur ekki dæma-
laust að LSD-ætur hafi gert
sjálfsmorðstilraun undir áhrif-
um. Kona í Englandi reyndi að
hengja sig og tveir menn, þar
líka, vildu ólmir drekkja sér 1
fljóti. En læknar voru í bæði
skiptin viðstaddir og gátu
hindrað slys.
Dr. Sidney Cohen, sálfræð-
ingur í Los Angeles sem ritað
hefur einkar fróðlega bók um
LSD, telur það skipta miklu
í hvaða sálarástandi maður er
sem tekur LSD, hvort hann er
æstur eða rór o. s. frv. Og þá
er ekki nema eðlilegt að það
hafi slík mismunandi áhrif á
menn eftir upplagi (eins og
komizt er að orði), auk þess
sem ærið margt býr vafalaust
í hverjum manni.
Gálaus meðferð hugopnunar-
Iyfja er því næsta háskaleg.
Til skamms tíma hefur ver-
ið auðvelt að fá LSD hjá til-
raunamönnum, með lyfseðlum
frá læknum eða jafnvel með
því að ganga beint inn í lyfja-
búðir og kaupa það líkt og
aspirín eða kvefmixtúru. Þar
að auki er unnt að fá það á
svörtum markaði, gjarnan
dreypt í sykurmola, eða verða
sér útí um jurtir þær sem það
eða önnur hugopnunarlyf eru
unnin úr. Við þetta allt saman
bætist svo að sumar tegundir
af blómafræi virðast hafa svip-
uð áhrif og ofskynjanalyfin.
LSD er ærið viðsjált í notk-
un. Það er lyktarlaust, bragð-
laust og litarlaust, en það er
svo sterkt að það sem loðað get-
ur á nálaroddi nægir til að
framkalla áhrif, og ef einhver
yrði svo hrekkjóttur að setja
12
FALKINN