Fálkinn - 30.05.1966, Page 27
flit
!NS OG JARÐAR
IJTAIM VIÐ
TLNCARÐIMIM
Hve langt mundi þá vera til næsta bæjar — næstu sólar í
vetrarbraut? Eins og áður var getið er Alfa Centauris, í rúm-
lega 4 ljósára fjarlægð, en það mundi vera um 40 km á þeim
mælikvarða, sem við beíttum á sólkerfið, þ. e. a. s. ef sól-
kerfið væri hugsað í Reykjavík, væri litla kornið, Alfa Cen-
tauris, austur í Hveragerði, og má þá með sanni segja, að fjörð-
ur sé milli frænda, en þetta má þó teljast venjuleg vegalengd
milli sólna þessarar stærðar í vetrarbraut, og þar sem þær nú
skipta mörgum þúsundum milljóna gefur það auga nokkra
leið um það, hvílíkt óhemju rúmtak sjálft vetrarbrautarkerfið
hefur. Og um leið skilst manni að árekstur milli tveggja
stjarna væri því sem næst óhugsandi tilviljun. Sé reiknað
með meðalhraða stjarna, væri litla kornið um fimmtíu þúsund
ár að komast vegalengdina Reykjavík — Gullfoss — 70 km
leið.
Viljum við nú reyna að búa okkur mynd af öllu vetrarbraut-
arkerfinu og nota sama mælikvarða mundi sú mynd ekki koma
að haldi, því að þótt vetrarbraut sé minnkuð niður í einn billj-
ónasta mundi hún ná mörgum sinnum út fyrir umferðarbraut
tunglsins. Við herðum því ólina betur og minnkum kerfið
niður í einn trilljónasta. Trilljón er 1 með átján núllum á
eftir, tala sem gefur ekki heldur neina meiningu í sjálfu sér,
en með þeim mælikvarða mundi sólkerfið okkar verða einn
fertugasti af millimetra og er þá hægt að fá viðráðanlegt yfir-
lit yfir allt vetrarbrautarkerfið.
REYKMÖKKURINN
Við hugsum okkur reykmökk, 1 km á breida og 150 metrar á
þykkt. Hann er sem vetrarbrautarkerfið. Hvert reykkorn svar-
ar til stjörnu á borð við okkar sól. Fjöldi þeirra er um tvö
hundruð þúsund miiljónir, og þær eru orðnar svo smáar að
þær sjást ekki í smásjá, en þar sem þær hafa mörg þúsund stiga
yfirborðshita, lýsa þær svo að við getum greint þær sem
næstar eru. Við erum nefnilega sjálf inni í þessu stóra,
kílómetrabreiða reykskýi, en utan frá lítur þessi mökkur út
sem ljós þokuhnoðri.
Sólin okkar, ein af reykögnum þessa mikla reykskýs, er í
engu *sérlega frábrugðin hinum reykögnunum, og Ijósstyrkur
hennar er jafnvel fyrir neðan meðallag. En við erum svo
heppin, að hún liggur í útjaðri kerfisins, svo að við fáum
notið góðs útsýnis út í geiminn fyrir utan stjörnukerfið, og
með hinum öflugu firðsjám, sem við nú ráðum yfir, sjáum
við, að vor eigin volduga vetrarbraut er ekki hið eina stjörnu-
safn heimsins, því að geimrúmið er svo morandi af öðrum
áþekkum stjörnukerfum, að tala þeirra virðist skipta þúsund-
um milljóna.
Eitt hið nálægasta er Andrómedukerfið. Þótt við segjum
að Ijós þess sé næstum tvær milljónir ára að ná til okkar,
gefur það litla hugmynd um fjarlægðina, en ef við höldum
okkur við reykskýsmyndina, verður Andrómeda annað álíka
reykský í 15 km fjarlægð. Það gefur Ijósari hugmynd, og
þannig skulum við halda áfram. Við skulum hugsa okkur
kúlu á stærð við jörðina, þakta slíkum reykhnoðrum, með
Framh. á bls. 44.
TIZKA UNGA FOLKSINS
Beint úr
CARNABY-street
LONDON
Fæst í
KARNABÆ, týsgötu i,
REYKJAVÍK
Á drengí nýtt í hverrí viku:
JAKKAR, BUXUR, PEYSUR. BINDI, VESTI, BELTI.
SKYRTUR o. fl.
Á stúikur:
BUXUR, SKYRTUR, PILS, KjOLAR, BELTI. BINDI.
PEYSUR o. fl.
STEFMA OKKAR ER:
— ALLT Á UNGA FÓLKr —
— NYTT 1 HVERRI VIKU —
KARNABÆR
FÁLKINN 27