Fálkinn - 30.05.1966, Síða 31
HÉSAVÍK
Þar eru þaö HAUKAR,
sem sjá um fjörið
Þættinum hafa borizt allmörg bréf
með myndum af hljómsveitum úti á
landsbyggðinni og birtum við nokkrar
þeirra hér á síðunni.
Myndin, sem fylgir þessum texta er
af hljómsveitinni HAUKAR og þeir sjá
um að unga fólkið sofi ekki á dansleikj-
unum á Húsavík. Piltarnir hafa leikið
víða um Norðurland við mjög góðar
Undirtektir. Þeir heita, talið frá vinstri:
Jóhann Helgason, trommur; Grétar
Berg, gítar; Steingrímur Hallgrímsson,
söngvari, en á orgelið leikur Árni G.
Sigurjónsson.
Þátturinn þakkar sendendum mynd-
anna og nú er um að gera að þið hin,
sem eigið slíkar myndir, sendið þær
þættinum ásamt greinargóðum upplýs-
ingum. Utanáskriftin er:
Fálkinn „f sviðsljósinu" Box 1411.
Fyrir alla muni gleymið ekki að
minnast á það, hvernig ykkur líkar
það efni, sem þátturinn hefur birt
undanfarið.
AKUREYRI
GEISLAR eru vinsælir
fyrir norðan
Frá Húsavík förum við norður á
Akureyri. Þar er vinsæl „beat“-hljóm-
sveit, sem nefnir sig GEISLA. Hljóm-
sveitin er stofnuð í nóvember 1965, en
piltarnir komu fyrst fram á hljómleik-
um í Nýja Bíói á Akureyri og enn komu
þeir fram á hljómleikum þar i febrú-
ar sl. og „slógu í gegn“. Norðlenzk
æska hyllti fimmmenningana óspart og
það fór ekki milli mála, þeir áttu að-
dáun hennar óskerta. Piltarnir heita,
talið frá vinstri: Hermann Sveinbjörns-
son orgel, en hann sér um sönginn
ásamt Erlingi Óskarssyni bassaleikara.
Þá er það Friðrik Bjarnason, rythma-
gítar; Sigurður J. Þorgeirsson, sóló-
gítar og trommari er Sigurður Árnason.
Hljómsveitin hefur komið víða fram,
m. a. í klúbb unga fólksins í Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri.
REYÐARFJÖRÐUR
Það heyrist til ÓMA yfir
Austfirðina
Ein vinsælasta hljómsveitin á Aust-
fjörðum eru ÓMAR frá Reyðarfirði.
Hún er stofnuð fyrir tveim árum.
Síðan hafa orðið nokkrar breytingar á
skipan hljómsveitarinnar. Eins og sjá
má á myndinni eru piltarnir mjög
snyrtilegir, en bítlahárið virðist eiga
þverrandi vinsældum að fagna. Piltarn-
ir spila aðeins yfir sumarmánuðina,
vegna skólagöngu tveggja í hópnum
Þá er að kynna þá, en þeir heita. talið
frá vinstri: Sigurður Ármannsson sóló-
gítar; Páll Jónsson, rythmagítar; Ellert
Þorvaldsson, bassi, en hann er aðal-
söngvarinn og trommuieikarinn er Þór-
ir Steingrímsson.
AKRANES
KJARNAR eru fyrrverandi
skólahljómsveit
Nafnið vekur strax athygli, en þessir
fimmmenningar nefna sig Kjarna.
Hljómsveitin er stofnuð sem skólahljóm-
sveit við gagnfræðaskólann á Akranesi
sl. vetur. Piltarnir heita. talið frá v.:
Þórður Hilmarsson, saxófónn; Kristinn
Guðmundsson, rythmagítar; Sigurður
Árnason, trommur og syngur jafnframt;
Björn Hallsson, bassi, og Guðjón Guð-
mundsson, sólógítar.
Bréfritari segir, að þessi hljómsveit
sé ein sú vinsælasta á meðal unga fólks-
ins á Skaganum, að Sónum og Dúmbó-
sextett ekki undanskildum Það gæti
verið nógu gaman að halda hljómleika
hér í Reykjavík. eingöngu með hljóm-
sveitum utan af landi.
SRGLUFJÖRÐUR
Þeir gera stormandi lukku
á böllunum í síldarbænum
„Öllu má nú nafn gefa,“ varð úthts-
teiknaranum að orði, þegar hann sá
nafnið á þessari hljómsveit. Mér finnst
nafnið óneitanlega dálítið frumlegt, en
piltarnir nefna hljómsveitina STORM
AR. Nafnið bendir til að meðlimirnir
taki verkefni sín föstum tökum, en þeir
heita Guðbrandur Gústafsson, trommur,
Árni Jörgensen, rythmagítar; Grétai
Guðnason, sóiógítar; Theodór Júlíus-
son, söngvari; Ómar Hauksson, bassi
Piltarnir hafa það á stefnuskrá sinni að
bragða ekki áfengi. enda hefur þeim
farn vpl
FÁLKINN 31