Fálkinn


Fálkinn - 30.05.1966, Qupperneq 33

Fálkinn - 30.05.1966, Qupperneq 33
ið í þrjátíu klukkustundir. Hann átti erfitt með að einbeita augun- um og varð að hrista höfuðið duglega til þess að sjá 'greini- lega. Og hugsanir hans höfðu hvarflað í draumkenndri ósam- kvæmni burt frá vandamálum þeim sem fyrir hendi voru, til árásarinnar á Eben-Emael, til stúlku, sem hann hafði þekkt í ^annover —r og til þess leiðinda- ciugnabliks í Saloniki fyrir tveim qiögum, þegar hann kvaddi Kyru hún hafði grátið. Konutár komu ávallt illa við hann. Það var ekki vegna þess að hann væri svo viðkvæmur gagnvart konum. Það var blátt óíram af því, að gráthljóðið virt- ist boða hans eigin ófarir. Það var til dæmis þarna í Belgíu þegar gamla konan hafði grátið, vegna þess að hann hafði drepið kúna hennar. Tveim dögum síðar saérðist hann. Eða á Krít, þegar aginn hafði krafizt þess að þeir roðuðu nokkrum kvæntu mönn- unum upp við múr og skytu þá niður. Mánuði síðar hafði hann fengið taugaveiki í Benghazi. Á Italíu höfðu nokkrir ungir her- menn klófest unga ítalska stúlku. Hún grét eins og hún væri barin. I Tveim dögum síðar varð slysið í fallhlífarstökkinu ... Hann vildi auðvitað ekki viðurkenna svo órökræna og barnalega hjátrú. Eh ef hann kvæntist einhvern tíma, þá myndi hann velja stúlku, sem ekki gréti, jafnvel þótt hann refsaði henni duglega. Hún mátti öskra eins og hana lysti, hún mátti reyna að drepa hann ef hana langaði til og þyrði það — en grát vildi hann ekki hafa. Hann boöaði ógæfu. -Það var hægra framhjólið, sem rakst á sprengjuna. Liðþjálfinn fann bílinn lyftast upp broti úr sekúndu, áður en hann skall naeð höfuðið upp undir þakið. Svo var eitthvað vott á andliti háns og hann heyrði gjallandi hljóð fyrir eyrunum. Hann lá með andlitið niðri við jörðina og allt var svart fyrir augum hans að undanteknum deplandi ljós- geisla. Eitthvað stakkst harka- lega í síðu hans, en hann var of máttfarinn til að kveinka sér. Hann heyrði karlmannsraddir og skildi að töluð var gríska. Síðan hurfu raddirnar og hann tók að íalla... ..Þegar hann komst aftur til naeðvitundar, var ekki lengur neitt vott á andliti hans, en það strikkaði svo undarlega á húð- inni. Ljósgeisiinn var þarna enn, en hann deplaði ekki lengur. Hann varð var við handleggi sína sem voru uppteygðir eins og hann ætiaði að fara að stinga sér til sunds. Hann fann hjartað slá — kvalirnar streymdu úr öll- um líkamanum upp til höfuðs- ins með hverju slagi. Hann hreyfði fingurna og fann hvern- ig þeir grófust í sand og möl. Hann var nú méð fullri með- vitund. Það var eitthvað að augnalokum hans, og hann gat ekki séð eðlilega, en hann hélt áfram að stara á ljósgeislann og hreyfði höfuðið örlitið til. Alit í einu varð honum ljóst, að hann stafaði frá litlum, hvítum steini, sem lá í sólargeislanum. Loks mundi hann, að hann vgr í Grikk- landi og að jarðsprengja hafði sprengt flutningabílinn í loft upp. Með þvi að neyta allrar orku, gat hann velt sér á hliðina. Sprengingin hafði velt bílnum og mölbrotið pallinn á honum en stýrishúsið var óskemmt. Ekkert hljóð heyrðist nema tístið í skor- dýrunum og látlaust dropahljóð frá bílnum. Hann hreyfði varlega annan fótinn og fann mikinn sársauka í mjöðminni, en það hafði hann fundið alltaf síðan slysið varð, ef hann var þreytt- ur. Sýnilega var ekkert alvarlegt að. Hann hleypti í sig kjarki og reyndi að setjast upp. Nú upp- götvaði hann að útbúnaður hans var allur horfinn. Hann minntist grisku raddanna og höggsins, og honum fór að verða ljóst, hvað gerzt hafði. Hann hafði ofboðslegar þraut- ir í höfðinu, en honum tókst að komast á kné. Litlu siðar seldi hann upp. Áreynslan gerði hann magnþrota, og hann varð að leggjast aftur til að safna kröft- um. Hann vissi, að hann var særður á höfðinu og sárið væri ef til vill hættulegt. Það var greinilegt að honum blæddi mik- ið, en hann hafði oft séð foss- blæða þannig úr yfirborðssárum á höfuðleðrinu. innvortis blæð- ing var öllu varhugaverðari. En hann myndi nógu fljótt komast að því. og við því gat hann hvort sem er ekkert gert. Fyrsta verk- efni hans hlaut að vera að kom- ast að því hvað orðið hefði um hina mennina og koma reglu á hlutina ef mögulegt væri. Hann reyndi enn að komast á fætur og tókst það loksins. Hann litaðist um. Armbands- úr hans var horfið, en staða sól- arinnar sagði honum, að enn væri ekki liðin klukkustund frá því að sprengingin varð. Bíl- ræksnið lá þvert yfir veginn og lokaði honum gjörsamlega. Lík bílstjórans var hvergi að sjá. Hann skjögraði út á miðjan veg- inn og leit niður eftir hliðinni. Annar bíllinn hafði numið stað- ar á vegarbrúninni hundrað metrum neðar. Þrir þýzkir her- menn iágu á veginum við hliðina á honum. Bak við sá hann glitta í sóltjaldið á aftasta bílnum. Hann lagði hægt af stað niður veginn en varð að stanza hvað eftir ahnað til að safna kröft- um. Sólarhitinn var steikjandi og flugurnar suðuðu um höfuð hans. Honum fannst vegalengd- in að öðrum bílnum ótrúlega löng. Flökurleikinn yfirbugaði hann aftur, og hann lagðist fyr ir í skugganum af runna til þess að jafna sig. Að stundarkorni liðnu hélt hann áfram. Hermennirnir á veginum voru allir dauðir. öll vopn og annar útbúnaður var horfinn, en inni- haldi tveggja bakpokanna hafði verið fleygt á jörðina. Nú gat hann séð þriðja bílinn án þess að neitt bæri á milli — og í honum fleiri dauða menn. Einn þeirra hékk út úr hliðinni. Hann var skorinn á háls. Það leit svo út sem þeir hefðu allir farizt. Hernaðarlega séð var flokkurinn úr sögunni. Hann gat því með góðri samvizku snúið sér að því að tryggja eigin ör- yggi- Hann hallaði sér upp að flutn- ingabilnum til þess að hvíla sig aftur — og kom auga á spegil- mynd sína í afturspeglinum. Blóðið var storkið í hári hans og ennfremur í öllu andlitinu. Höfuðið var jafnómennskt að sjá og það hefði verið flatt í klessu. Það var auðskilið, hvers vegna hinir grisku andartes höfðu álit- ið hann dauðan. Snöggur ótti gagntók hann. Óvinirnir voru horfnir í bili, en það var ekkert líldegra en að þeir myndu koma aftur innan skamms með bílstjóra í hina tvo nothæfu bíla. Það var jafnvei hugsanlegt að þeir hefðu skilið eftir vörð og að hann væri ein- mitt á þessu augnabliki að miða riffli sínum á hann. En á samri stundu sagði skynsemin honum, að enda þótt svo væri, myndi maðurinn þegar hafa haft kapp- nógan tíma til að skjóta hann. Engu að síður var staðurinn of hættulegur. Ef þorpararnir kæmu ekki aftur, myndi ekki iíða á löngu áður en íbúar hér- aðsins kæmu á vettvang til að ræna. Það var af nógu að taka: stigvélin, benzinbrúsarnir, hjól- barðarnir, verkfærakassarnir. Hann yrði að hafa sig á brott sem skjótast. Hann hugsaði snöggvast um hvort honurn myndi takasl að ganga til benzinstöðvarinnar. en gaf það strax á bátinn. Jafnvel þótt hann hefði krafta ti) þess voru ekki miklar líkur fil þess að hann gæti komizt hangað óséður um hábjartan dag Og á þessum slóðum gat særður, ó- vopnaður þýzkur hermaður eins og á stóð prísað sig sælan, ef hann yrði ekki pyndaður, áður en hann væri grýttur í he) af konunum. Enn hættulegri virt- ist honum leiðin til Vodena. Hann yrði þvi að biða myrkursins. Þá ynnist honum líka tími ti) að endurheimta krafta sína. Það stóð honum skýrt fyrir hugskots- sjónum: hann yrði að finna vatn, mat og fylgsni. Seinna gæti hann svo tekið ákvörðun um næsta skref — ef hann héldi lífi. Öllum hermannapelunum hafði verið rænt. Hann dró tóman benzínbrúsa út úr bílnum og lét kælivatnið renna í hann. Þegar hann var hálfur, varð honum Ijóst, að hann myndi ekki hafa krafta til að bera meira. Það var enn mikið eftir í kælidunk- inum og það var ekki of heitt til að drekka það. Þegar hann hafði svalað þorstanum, vætti hann vasaklút í vatninu og þvoði blóðið af andliti sínu og augum. Sjálft höfuðið lét hann eiga sig til þess að blæðingin byrjaði ekki aftur. Næst var það maturinn. Grikk- irnir höfðu tekið matvælapok- ann, en hann þekkti sína menn og leitaði í verkfærakassanum. Þar voru tveir nestispakkar, nokkrar súkkulaðiplötur og úlpa bilstjórans. Hann stakk matvæl- unum i vasann á úlpunni og lagði hana yfir herðarnar. Svo tók hann vatnsbrúsann og bökti seinlega upp veginn. Hann hafði þegar valið sér fyigsni. Hann mundi hve sak- leysisleg fjallshlíðin fyrir ofan hafði sýnzt, þegar þeir komu akandi, og hversu vel hún hafði leynt árásarmönnunum. Hún myndi veita honum samsvar- andi skjól. Hánn gekk út af veg- inum og byrjaði að klifra. Það tók hann hálfa klukku- stund að klifra hundrað metra. Einu sinni varð hann að liggja kyrr í tíu minútur allt of magn- þrota tii þess að halda hinni kvalafuilu uppgöngu áfram. Hann varð að draga þungan FÁLK.INN 33

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.