Fálkinn


Fálkinn - 30.05.1966, Qupperneq 43

Fálkinn - 30.05.1966, Qupperneq 43
|«i im^nín AAm Iták ft%ri tfct ALMENNAR nvermg sem per Terc IISI TRYGGINGAR £ fprhsitrunn 1 HHhÍ PÓSTHÚSSTRÆTI 9 w iciuaiiyyy liiU \ vlc J SÍMI 17700 sem ótrúleg seigla og vilja- styrkur réðu úrslitum. Þegar hann heimsótti Seiju, kom læknirinn, sem annazt hafði Seiju árum saman, til hans. — Ég trúi varla minum eigin augum, sagði hann. — Oft hef ég skoðað lungu hennar með gegnumlýsingu og séð dökku hvilftirnar. Þær eru horfnar. Komið með mér og sjáið sjálfur. Hann tók fram lungnamyndir og sýndi Gunn- ari. Þar vottaði hvergi fyrir óeðlilegum skugga. Seija Mattsson, sem virtist ekki eiga annað eftir en bíða dauðans í fáeina mánuði, lifir enn. Meðgöngutíminn markaði þáttaskil í sjúkdómssögu henn- ar. Síðan Kai Mikael fæddist hefur hún ekki fundið til fyrri veikinda sinna. Aðeins kláða- ertingin í húðinni á það til að angra hana, en þegar hún tekur barnið á handlegg sér til að sinna því, líður það frá. Vísindaleg skýring á þessum þáttaskilum er ekki til. Sog- eitlakrabbamein er enn sem fyrr banvænn sjúkdómur. Og enginn veit, hversu lengi Seija hrósar sigri. — Við hugsum ekki mikið um það, segir Gunnar. — Við sjáum drenginn okkar vaxa og dafna og gerum áætlanir um framtíðina. Stuttu eftir að sonur hans, Kai Mikael, fæddist, settist hann niður og skrifaði bók. Söguna um ást sína til Seiju — söguna um baráttu þeirra við krabbameinið. Hann lauk við hana á þrem vikum og gaf henni nafnið: „Prinsessan“ VAR VILJI HENNAR SJÚKDÓMNUM YFIRSTERKARI? f eftirmála við bók Gunnars skrifar vísindakonan Gisela Gastrin: í Finnlandi deyja um 10.000 manns árlega úr krabba- meini. Með framförum í lyfja- meðferð fjölgar þeim sjúkling- um, sem fá bata. Það kemur einnig fyrir, að heiisufars- ástand sjúklings breytist til batnaðar — án læknishjálpar og með óskýranlegum hætti — fyrst og fremst vegna svo- nefnds líffræðilegs ónæmis sjúklingsins. Liffræðilegt ónæmi þýðir nánast, að sálarástand sjúkl- ingsins eða sáifræðilegar að- stæður gera hann ónæman fyr- ir sjúkdómnum, sem hefur hrjáð hann. Var það hin sterka ósk Seiju um að eignast barn, sem úrslit- um réði? Enginn veit það. Bók Gunnars, „Prinsessan", varð fádæma vinsæl. Á tveim mánuðum seldist hún í hvorki meira né minna en 50.000 ein- tökum í ekki stærra landi en Finnland er. Viðtökurnar í Sví- þjóð voru ekki síðri, og hún hefur síðan verið þýdd á fjögur tungumál. Gunnar er búinn að kaupa eyjuna, sem hann dreymdi alltaf um að eignast. Hún er ein'af þúsundum finnskra smá- eyja, og þar eru klettar, sand- fjara, nokkur tré og lítið hús, sem hann býr í á sumrin með Seiju, „prinsessunni", og syni þeirra. Vegna bókar manns síns er hún frægasta kona Finnlands um þessar mundir. Það er ekki hægt að segja það með fuilri vissu, að henni sé batnað. En sem stendur virðist heilsa henn- ar ágæt. Kai Mikael er orðinn sjö mánaða. Og Seija „prinsessan“ á von á öðru barni sínu. • Leirulækjar Fúsi Framh. af bls. 29. um fyrr en honum sé batnað. Þakkar maðurinn Fúsa, fer að sem hann bauð honum og fór síðan brott. Líður stuttur tími, þar til verkurinn hverfur, og tekur þá maðurinn umbúðii’n- ar frá augunum og les þá á miðanum eftirfarandi vísu: Sá er í víti, sem þig græði, sá á líti bænirnar. Úr þér slíti augun bæði og aftur skiti í tóttirnar." UNANese(JLT~DðKKGRÆNTMGULTOKKUR LJÓMAGULT sö»lRmT FÁLKIMN 43

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.