Fálkinn - 06.06.1966, Side 5
22 daga skemmtiferö
Italla-
Frá Feneyjum.
Kaupmannahöfn
GAUTABORG - FENEYJAR - VERONA - BOLOGNA - FLÓRENS - PÍSA - RÓM -
NAPOLI - SORRENTO - ASSISI - SAN. MARINO - RIMINI - KAUPMANNAHÖFN
Þessi ferð hefur verið nær því óbreytt í
sumaráætlun' okkar ár frá ári. Hún hefur
ávallt verið vel sótt og hefur líkað sérstak-
lega vel. Kemur margt til — bæði að Ítalíu-
ferðir- sem þessar • eru alltaf vinsælar og
einnig að skrifstofan hefur fengið góða
reynslu í því að skipuleggja þessar fei;ðir
sem bezt má vera. Við sjáum flestar merk-É
ustu borgir Ítalíu auk margra fallegustu
héraða landsins. Auk þessa alls höfum við
góðan tíma bæði í Kaupmannahöfn og
Gautaborg.
5. ágúst: Flogið til Svíþjóðar um miðjan
dag og lent í Gautaborg seint um kvöldið.
6. ágúst: Dvalið í Gautaborg. Má eyða hluta
dagsins til að skoða Volvoverksmiðjurnar.
7. ágúst: Dagsferð um nágrenni Gautaborg-
ar. Þetta er sunnudagur og tilvalið að áka.
um héruðin norður af Gáutaborg, en þar er
m.a. vatnið Vánern, Tröllháttan og margir
aðrir rómaðir staðir.
8. ágúst: Flogið snemma morguns frá Gauta-
borg til Feneyja. Þar er lent skömmu eftir
hádegið. Á flugvellinum bíður okkar lang-
ferðabíll og hefst nú sjálf Ítalíuferðin. Að
sjálfsögðu er fyrsta dagleiðin stutt, en farið
er um Verona til Flórens.
9. —10. ágúst: Tveir dagar í Flórens Bæði'
skoðum við sjálfa borgina og nágrennið.
Toscana-héraðið er bæði frægt fyrir Chianti-
vínin og fegurð Appeninafjallanna. Borgin,
sem kennd er við þá Dante og Boccacio,
geymir mörg ódauðleg listaverk.
11. ágúst: Ekið er um hinn frjósama Arno-
dal og eftir tvo tíma.komið.til Pisa. Eftir að
hafa skoðað borgina er haldið áfram með
ströndinni allt til Rómar.
12., 13., 14. ágúst: Þrír dagar í Róm. Að
vísu mundi ekki veita af lengri tíma til að
skoða þennan stað, en við gerum okkar.
bezta. Við notum bílinn til að skoða allt
það helzta, þ. á m. Páfaríkið.
15. ágúst: Fyrir hádegi er ekið til Napoli,
þar sem við' stönzum og borðum hádegis-
mat. Síðan er haldið út með Napoliflóanum
þar sem við höfum útsýn bæði til Capri og
Ischia- og komum að síðustu til Sorrento,
sem er einn frægasti baðstaður Ítalíu.
16. —17. ágúst: Um kyrrt á ströndinni. Geta
nú. sóldýrkendur notið sín.
18. ágúst: Um Napoli til Assisi.
19. ágúst: Stutt dagleið en skemmtileg til
smáríkisins San Marino.
20. ágúst: Til Feneyja. Ekið eftir austur-
strönd Ítalíu um Rimini og Ravenna.
21. —22. ágúst: Um kyrrt í Feneyjum Seinni
hluta dags þ. 22. er flogið til Gautaborgar,
þar sem skipt er um flugvél, sem lendir í
Kaupmannahöfn um kl. 8 e.h.
23., 24., 25. ágúst: Um kyrrt í Kaupmannah.
26. ágúst: Flogið um Gautaborg til íslands.
Brottför: Frá Beykjavík 5. ágúst.
Heildarverð: kr. 21.900.
INNIFALIÐ í VERÐI:
Flugferðir og ferðalag um Ítalíu í lang-
ferðabíl, allar gistingar, fullt fæði alla
Ítalíuferðina, en morgunverður i Kaup-
mannahöfn og Gautaborg, fararstjórn og
söluskattur.
SÉRSTAKAR GREIÐSLUR:
Eins manns herb. alla Ieiðina kr. 500,00.
Flugvallarskattur í Gautaborg SKR
kr. 15.00.
Flugvallarskattur i Khöfn DKR 20,00.
EKKI INNIFALIÐ I VERÐI:
Drykkir með mat og önnur persónuleg
útgjöld.
GISTISTAÐIR:
Gautaborg: Hotell Volrat Tham.
Flórens: Hótel Milano Terminus.
Róm: Hótel Columbus.
Sorrento: Grand Hotel Flora.
Assisi: Hotel Umbra.
San Marino: Hotel Titano.
Feneyjar: Hotel Cavaletto.
Kaupmannahöfn: Saxohus Hotel.
Fararstjóri: Helgi Skúlason, leikari.
LÖIMD & LEIÐIR
Aðalstræti 8, símar 20800 - 24313
Kortið sýnir
leiðina, sem
farin er
í ÍTALÍU.
ÍP“Pel.._
'Pnmrv»niu
FALKINN
5