Fálkinn - 06.06.1966, Qupperneq 12
AUKA GÁFU
LLT frá síðustu heims-
styrjöld hafa þekktir
sálfrœðingar fengizt
við rannsóknir á sam-
bandi milli frum-
reynslu og þess hvern-
ig við öðlumst, skipu-
leggjum, geymum, notum og
miðlum þekkingu — í stuttu
máli hvernig við hugsum.
Rannsóknir þeirra hafa leitt
í ljós möguleika sem eru
jafnbyltingarkenndir og
beizlun atomorkunnar: að
leysa úr viðjum meira af
hæfileikum mannsheilans.
Einn af frumkvöðlum þess-
ara rannsókna er dr. Joseph
MeVicker Hunt, prófessor í
sálfræði við háskólann í Illi-
nois og höfundur bókarinn-
ar „Greind og reynsla“. í
samtali við blaðamanninn
John Kord Lagemann um
breytingar á hugtakinu
greind og möguleikana sem
þær opna til þess að ala upp
gáfaðri börn, lagði prófessor
Hunt fram álit sitt og niður-
stöður af athugunum, sem
hér fara á eftir.
Að áliti prófessors Hunt
og samstarfsmanna hans
mun mögulegt að auka með-
aitalsgáfur jarðarbúa um 30
greindarvísitölustig næstu
eina til tvær kynslóðir, —
svo framarlega sem hægt
yrði að fá börnin nógu
snemma til meðhöndlunar.
Þetta er mjög mikilvægt
vegna þess að það er á
fyrstu fjórum eða fimm ævi-
árum barnsins, sem þroskinn
er örastur og næmastur fyr-
ir áhrifum. Á þessu tímabili
mótast þeir. haefileikar hjá
barnipu,. sem síðari hæfni
þess byggist á. Um 20%
af þessum grundvallarhæfi-
leikum myndast þegar á
fyrsta aldursári, um það bil
helmingúr þeirra áðúr en
barnið nær fjögurra ára
aldri.
Áður en lengra er farið
út í það hvernig auka megi
greindina, er ef til vil) rétt-
ara að skilgreina hugtakið
greind.
Greind er hæfileiki til að
leysa vandamál, en hún er
ekki óbrotinn, sjálfstæður
eiginleiki. Hún er samveldi
hæfileika, sem menn til-
einka sér einn af öðrum, þar
sem hinir síðfengnari sam-
lagast þeim sem áður eru
fengnir. Hægt er að ímynda
sér heilann sem voldugaupp-
lýsingaþjónustu, óendanlega
miklu flóknari en nokkurn
rafeindaheila. Upplýsingar
flæða inn í hann um skiln-
ingarvitin fimm. Heilinn
virðist þjappa þessum gífur-
lega sæg, sem hann veitir
viðtöku, saman í flokkuð
tákn, sem hægt er að beita
rökrétt til lausnar verkefn-
um, ná settum takmörkum
og finna lífinu tilgang.
. Það er því hægt að skil-
greina greind þannig að hún
sé sú tækni sem barnið öðl-
ast til að vinna úr upplýs-
ingum' þeim sem skilningar-
vitin færa því.
Þessi skilgreining er ný að
því leyti að hún er í mótsögn
við fyrri hugmyndir um
að greind sé eitthvað sem
ákveðist strax við getnað
eins og kynferði. Barninu er
ekki gefin tilbúin greind
heldur aðeins hæfileikinn til
að öðlast greind. Það verð-
ur bókstaflega að læra að
læra, og hversu vel því tekst
til, byggist á hæfileikum
þeim til úrvinnslu upplýs-
inganna, sem það öðlast með
reynslu frumbernskunnar.
Þess vegna eru fyrstu
bernskuárin mikilvægust.
Við vitum að dýr, alin
sem heimilisvinir, eru yfir-
leitt færari um að leysa
verkefni en dýr sem alin eru
í búrum. Á líkan hátt ná
börn, alin upp á heimilum
þar sem leikið er við þau
og þeim gefinn kostur á fjöl-
breyttum sjónar- og heyrn-
arskynjunum, betri þroska
en hin sem alin eru upp í
stofnunum þar sem þau fara
á mis við þessi réttindi. Til
dæmis geta allflest fjöl-
skyldualin börn setið upp-
rétt tíu mánaða gömul og
gengið tveggja ára. En ný-
legar athuganir sem Dr.
Wayne Dennis gerði á mun-
aðarleysingjaheimili einu í
Teheran, þar sem starfslið-
ið var ónóg, leiddu í ljós að
60% barnanna gátu ekki
setið upprétt á öðru ári og
84% voru ekki farin að
ganga þriggja ára gömul.
Ekki er ólíklegt að aðstæð-
urnar hafi haft álíka lam-
andi áhrif á almenna greind.
Víða hefur það komið í ljós
að börn sem alin eru upp
á munaðarleysingjaheimil-
um hafa yfirleitt lægri
greindarvísitölu en þau mun-
aðarlaus börn sem eignazt
hafa fósturheimili. Jafnvel
eftir að komið er fram á
unglingsaldur, dragast slík
börn aftur úr um eftirtekt,
þrautseigju við úrlausnir og
við að tileinka sér nýjar
hugmyndir.
Megnið af millistéttarfor-
eldrum gerir sér nú þegar
mikið far um að hjálpa börn-
um sinum á veg að læra, en
þeir geta gert meira. Ein
grundvallarstefnan, sem
þeir geta tekið, er að gefa
ungbörnum sínum kost á
fjölbreyttu (en ekki ofboðs-
legu) úrvali hluta til að
hlusta á, horfa á og hand-
fjatia. Það þurfa ekki að
vera dýr leikföng. Kassar,
pottar, pappírsarkir og ein-
föld heimilisáhöld í ýmsum
litum, stærðum af mismun-
andi lögun og efni — allt
mun það verka á skilningar-
vit barnsins og hjálpa því að
gera sér hugmyndir um
styrk, lögun, vídd og fjölda.
Auk tækifæra til að nota
skilpingarvit sín, er aðallega
tvennt, sem barninu er nauð-
synlegt til að ná andlegum
þroska. í fyrsta lagi þarf
það að hafa frelsi til þess
að reyna sjálft sig gegn um-
heiminum, að ganga, klifra,
stökkva, stjórna og fleygja
-hlutum. í öðru lagi þarfn-
ast það ástúðlegrar nær- •
veru fullorðinna, sem eru
því áhugasamir áheyrend-
ur, svara endalausum spurn-
ingum þess, eru því fyrir-
myndir til eftiröpunar og
spyrja það spurninga, sem
það verður að nota tungu-
mál til að svara.
Barnið byrjar að Jæra
strax og það fæðist. Það sem
það sér, er í fyrstu ekki í
neinu skyldleikasambandi
við það sem það heyrir og
finnur. Það verður að læra
að samhæfa skilningarvit
sín og binda þau eigin lík-
amshreyfingum. Foreldrarn-
ir geta hjálpað með því að
veita barninu nóg tækifæri
til að líta eftir hlutum sem
það heyrir í — hringlu til
dæmis — reyna að ná í hluti
sem það sér og til að sjúga
hluti sem það nær í. Tökum
til dæmis samhæfingu auga
og handar. í fyrstu slær
barnið til hlutarins með
krepptum hnefa. Smám
saman nær augað stjórn á
hendinni, barnið teygir sig
eftir hinum þráða hlut og
grípur föstu taki um hann.
MEÐ því að koma fyr-
ir litskærum hlut-
um í sjónmáli við
vöggur barnanna í
Tewksbury State
Hospital, í Massa-
chusetts, tókst Dr.
Burton White að lækká
meðalaldur barnanna er þau
reyndu fyrst að slá eftir
hlutum, úr 65 dögum niður
í 55 og aldur þeirra er þeim
tókst að grípa hlutinn, úr
145 dögum niður í 85.
Með því að ná valdi á
hinum einfaldari aðferðum
til upplýsingaöflunar opnast
barninu leið til að læra ná-
kvæmari og flóknari aðferð-
ir. Samhæfing handar og
auga gerir því kleift að læra
meira um hlutina með því
að gera eitthvað við þá. í
fyrstu er hringlan því að-
eins raunveruleg meðan það
horfir á hana eða heldur á
Í2
FALKINN