Fálkinn - 06.06.1966, Page 20
Fran^oise og Pablo Picasso meðan allt lék í iyndi. Þau bjuggu saman í tíu ár.
og þá var Framjoise „gyðjan hans“
Paloma og Claude, börn Fran^oise og Picassos. Þessi mynd er tekin fyrir fimm
árum, en nú er Claude kominn í háskóla og Paloma í menntaskóla. Hvorugt
þeirra hefur áhuga á að leggja fyrír sig myndlist.
FRANCOISE GILOT er grannvaxin
kona og gengur oftast svartklædd
frá hvirfli til ilja. Hún er listmálari og
dreymir um frægð á þeim vettvangi.
En nafn hennar er á allra vörum af
öðrum orsökum. Fyrsta bók hennar,
LÍF MITT MEÐ PICASSO, hefur vakið
heimsathygli, og almenningur hefur
meiri áhuga á skrifum hennar um einka-
líf hins nafntogaða málara en mynd-
unum sem hún heldur sýningar á víðs
vegar um Evrópu og Bandaríkin.
Hún er fædd árið 1921 en bókin
fjallar um þau tíu ár — 1943—1953 —
sem hún bjó með Picasso. Á því tíma-
bili ól hún honum tvö börn, Claude og
Palomu, og minningar hennar eru bæði
bjartar og beiskar.. Hún lærði að þekkja
manninn Picasso, veikleika han og galla
ekki síður en kostina, og loks komst
hún að þeirri niðurstöðu, að fjörutiu
ára aldursmunur þeirra væri óbrúan-
legt bil.
Bókina skrifaði hún með aðstoð
bandaríska listgagnrýnandans Carlton
Lake. Þegar vikublaðið Paris Match
birti nokkra kafla úr henni í franskri
þýðingu ætlaði allt af göflunum að
ganga. Pablo Picasso fylltist skelfingu
og reyndi að hindra útkomu bókarinn-
ar. Hann stefndi vikublaðinu, en tapaði
því máli, og þegar hann leitaði aftur
til dómstólanna í því skyni að fá franska
útgáfu bókarinnar bannaða fór á sömu
leið. Hann áfrýjaði til hæstaréttar ár-
angurslaust. Aðdáendur hans skrifuðu
undir mótmælaskjal, en því var ekki
sinnt.
20
FALKINN