Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 4

Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 4
4 9. október 2009 FÖSTUDAGUR ALÞINGI Stjórnarandstaðan gaf fjárlagafrumvarpinu falleinkunn í umræðum á Alþingi í gær. Fund- ið var að tekjuöflunar- og sparn- aðaráformum, sem og hugmynda- fræði frumvarpsins. Í framsögu sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra nauð- synlegt að ráðast að gríðarlegri skuldaaukningu ríkissjóðs. Það yrði ekki gert nema með því að auka tekjur og minnka útgjöld. Steingrímur sagði frumvarp- ið vitaskuld taka mið af erfið- um aðstæðum í samfélaginu. Hljóp hann á nokkrum tölu- legum stað - reyndum og bent i meða l a n n a r s á að r ú m lega tuttugu millj- arða útgjöld kæmu til beinlínis vegna hruns- ins og afleiðinga þess. Snar- hækkuð framlög til Atvinnu- leysistryggingasjóðs bæri þar hæst. Þá gerði hann grein fyrir fimmtán milljarða niðurskurði á bótum af ýmsu tagi og tólf millj- arða niðurskurði á framkvæmd- um. Kvaðst Steingrímur óska sér þess að breið samstaða næðist um fjárlagagerðina sem nú fer í hönd á vettvangi Alþingis. Kristján Þór Júlíusson Sjálf- stæðisflokki sagði að í fjár- lagafrumvarpinu væri vegið að fyrirtækjum og heimilum. Þjóð- inni væri ekki gefið færi á að vinna sig út úr kreppunni enda stæði ríkisstjórnin í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu. Markmið- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um jöfnuð í ríkisfjármálum ætti að ná með eitraðri blöndu skatta- hækkana og niðurskurðar. Kristján fjallaði um vaxta- kostnað ríkisins, sem í fjárlaga- frumvarpinu er sagður nema 100 milljörðum á næsta ári. Inn í töl- una vantaði vexti vegna Icesa- ve-lána og endurfjármögnunar Seðlabankans. Þeir næmu tæpum fimmtíu milljörðum á næsta ári. Vaxtagjöldin yrðu því nær 150 milljörðum en 100. Birkir Jón Jónsson Framsókn- arflokki átaldi lítið samráð við stjórnarandstöðuna við gerð frumvarpsins og lýsti þeirri skoðun að forsendur þess væru brostnar. Kvaðst hann efast um að fjöl- skyldurnar kæmust klakklaust frá aukinni skattlagningu ofan í tekjuskerðingu og harmaði að stjórnvöld „þvældust fyrir“ atvinnuuppbyggingu. Þór Saari Hreyfingunni sagði niðurskurðaráform frumvarps- ins allt of brött til að samfélagið þyldi þau. „Veikir munu ekki lifa af, krakkarnir fá ekki þá mennt- un sem þeir þurfa og löggæslan molnar,“ sagði hann. Guðbjartur Hannesson Sam- fylkingunni lagði í máli sínu áherslu á að frumvarp ráðherra væri aðeins frumvarp. Það væri Alþingis að ákveða fjárlög. Tugir þingmanna tóku þátt í umræðum um fjárlög í gær. Álit stjórnarandstæðinga var samdóma: frumvarpið er alvont. bjorn@frettabladid.is Vegið að velferðinni Stjórnarandstaðan tætir í sig fjárlagafrumvarpið og hafnar mörgum niður- skurðar- og tekjuáformum. „Veikir munu ekki lifa af,“ segir Þór Saari. Fjármála- ráðherra kallar eftir samstöðu. Vaxtagreiðslur ótaldar um tæpa 50 milljarða. LÚSLESIÐ Sigmundur Ernir Rúnarsson virtist einbeittur þegar hann glöggvaði sig á fjárlagafrumvarpinu í þingsalnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þór Saari gagnrýndi að stjórn- málaflokkar ættu að fá tæpar 400 milljónir í ríkisstyrki á næsta ári. Steingrímur J. Sigfússon kvaðst sammála; eðlilegt væri að stjórn- málaflokkar sættu lækkunum eins og aðrir. SAMMÁLA ÞÓR SAARI VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 26° 13° 23° 13° 11° 14° 18° 18° 11° 12° 27° 15° 21° 34° 8° 21° 28° 10° Á MORGUN 5-18 m/s, hvassast norð- vestan til. SUNNUDAGUR 3-8 m/s 7 6 4 4 3 4 4 6 6 9 0 21 16 13 16 11 16 18 30 20 13 13 4 3 4 88 86 4 1 1 STORMUR Í dag verður austan stormur eða jafnvel ofsaveður sunnan- lands og vestan með snörpum vindhviðum allt upp undir 40m/s í námunda við fjöll og háhýsi, þar á meðal í Reykjavík. Það verður hvasst nær allan dag- inn á þessum slóðum en fer að lægja sunn- an til með kvöldinu. Vindur verður hægari á Norður- og Austur- landi. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Borgar- nesi tók í fyrrakvöld tvo karl- menn með rúmlega 100 e-töflur auk annarra fíkniefna í bíl sem hún stöðvaði. Ökumaðurinn var undir áhrif- um fíkniefna, og hafði innbyrt „nánast alla flóruna“, eins og lögregla komst að orði. Farþeg- inn í bílnum reyndist einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Í kjölfarið var farið í tvær húsleitir á dvalarstöðum þeirra á Akureyri. Þar fannst einnig nokkurt magn fíkniefna og íblöndunarefni, svo og tæki og tól þeim tengd. Efnin voru í sölu- pakkningum og er talið fullvíst að mennirnir hafi ætlað að selja þau. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. - jss Fíkniefnasalar stöðvaðir: Í vímu með 100 e-töflur í bíl DÓMSTÓLAR Hæstiréttur hefur sýknað karlmann sem héraðsdóm- ur hafði áður dæmt í tveggja ára fangelsi og til þess að greiða stefn- anda rúmar sjö hundruð þúsund krónur í bætur. Maðurinn var ákærður fyrir lík- amsárás og rán. Hann hefði í félagi við óþekktan mann slegið annan mann nokkrum sinnum í andlitið og rænt hann farsíma og seðla- veski sem í voru 100 þúsund krón- ur. Hæstarétti þótti ósannað að maðurinn væri sekur. Við mynd- sakbendingu hefði fórnarlambið bent á mynd sem ekki var af ákærða. Ekkert hefði komið fram við húsleit eða rannsókn á sím- notkun og öðru sem tengja mætti við ákæruatriðin. -jss Meintur ofbeldismaður: Sýknaður af ráni í Hæstarétti LÖGREGLUMÁL Þrír piltar um tví- tugt, sem voru á ferð í Kópavogi í fyrrakvöld, voru með kannabis- efni á sér, samkvæmt frétt frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu. Fjórði pilturinn var tekinn í Reykjavík. „Það var um kvöldmatarleytið sem för þeirra var stöðvuð en piltarnir voru grunaðir um fíkni- efnamisferli. Þeir voru sakleysið uppmálað en reyndust engu að síður hafa kannabisefni í fórum sínum. Piltur á svipuðu reki var einnig stöðvaður í miðborginni í gærkvöld en í bíl hans fundust sömuleiðis kannabisefni,“ segir lögreglan í frétt sinni. - gar Sakleysislegir piltar á ferð: Reyndust vera með kannabis SAMGÖNGUMÁL Skoðanir á öku- tækjum hafa aukist töluvert í ár samkvæmt tölum frá Umferð- arstofu. Um 28 prósentum fleiri ökutæki hafa verið skoðuð á síðastliðnum tólf mánuðum saman- borið við sama tímabil í fyrra. Umferðarstofa telur að nýtt van- rækslugjald hafi mikil áhrif, en í apríl var í fyrsta skipti heimilt að sekta eigendur um 15 þúsund krónur létu þeir ekki skoða öku- tæki sín. Þá var í fyrsta skipti í ár skylt að láta skoða ferðavagna á borð við fellihýsi og hjólhýsi, sem skýrir aukninguna að hluta. - bj Fleiri láta skoða ökutæki sín: Forðast nýtt vanrækslugjald Lissabon-sáttmáli staðfestur Lech Kaczynski, forseti Póllands, ætlar að undirrita Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins á morgun. Þar með vantar aðeins undirskrift frá Vaclav Klaus Tékklandsforseta til þess að sáttmálinn taki gildi. PÓLLAND ÍSRAEL, AP Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, segir engar líkur á því að friðarsamn- ingar takist við Palestínumenn næstu árin. „Hver sem segir að innan fárra ára geti náðst samningur sem bindur enda á átökin hefur ein- faldlega ekki skilning á ástand- inu og breiðir út blekkingar, sem á endanum leiða af sér vonbrigði og allsherjar uppgjör hérna,“ sagði Lieberman. Annars staðar í heiminum hafi stríðsátökum lokið með því að aðilar þeirra hafi tekið erfiðar ákvarðanir um að afneita ofbeldi. Í framhaldinu hafi komið tímabil friðar, sem síðar hafi gert þeim mögulegt að klára samninga. Ekki er víst að þessi skoðun Liebermans ráði úrslitum um fram- hald samningaviðræðna við Palest- ínumenn, því það er Benjamín Net- anjahú forsætisráðherra sem hefur ákvörðunarvald um það. Ummælin verða þó ekki til að auðvelda Mitchell, erindreka Bandaríkjanna, það verk að reyna að koma samningaviðræðum Ísra- ela og Palestínumanna af stað á ný. Þeir Lieberman og Mitchell ræddust við í gær. Mitchell hefur mánuðum saman reynt að fá Ísraela til að stöðva framkvæmdir ísraelskra land- tökumanna. Palestínumenn segja stöðvun þeirra framkvæmda ófrá- víkjanlegt skilyrði fyrir frekari viðræðum. - gb Utanríkisráðherra Ísraels segir fólk verða að horfast í augu við raunveruleikann: Engar friðarlíkur næstu árin GEORGE MITCHELL OG AVIGDOR LIEBERMAN Lieberman gerir erindreka Bandaríkjamanna erfiðara fyrir. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti er sagður kom- inn á þá skoðun að breyta þurfi áherslum í stríðinu í Afganist- an, þannig að baráttan beinist einkum gegn Al Kaída, sem nú er með höf- uðbækistöðv- ar í Pakistan, en ekki í jafn ríkum mæli gegn talibana- hreyfingunni í Afganistan og verið hefur. Þetta er haft eftir háttsettum embættismanni í Bandaríkjastjórn, sem þó er ekki nafngreindur. Samkvæmt honum er Obama reiðubúinn að leyfa talibönum að taka í einhverjum mæli þátt í stjórn Afganistans. - gb Áherslubreyting hjá Obama: Gegn Al Kaída, ekki talibönum BARACK OBAMA GENGIÐ 08.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,7845 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,52 125,12 200,24 201,22 183,84 184,86 24,692 24,836 21,989 22,119 17,828 17,932 1,4070 1,4152 197,97 199,15 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.