Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 11

Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 11
Nú gerast ævintýri - skuggar lengjast, stjörnur blika og norðurljósin dansa. Í vetur verða viðburðir víðsvegar um Reykavíkurborg undir yfi rskriftinni Ljómandi borg. Sinfóníutónleikum verður útvarpað í sundlaugum borgarinnar, kaffi húsið í Hljómskálanum verður opið á aðventunni, ísilögð Tjörnin verður samkomustaður skautaunnenda, efnt verður til snjó- listaverkakeppni, skemmtileg dagskrá fyrir börnin í bókasöfnum, útimarkaðir verða í miðborginni og fj ölmargt fl eira. Enda getur margt gerst í ljómandi borg eins og Reykjavík. Um leið og kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey fagnar Reykjavíkurborg vetrinum með því að tendra hvít ljós á samkomustöðum víðsvegar um borgina. Taktu þátt í Ljómandi borg og lýstu upp þitt nærumhverfi með því að kveikja á kerti eða hvítum ljósum. Í tilefni tendrunar Friðarsúlunnar 2009 verða ókeypis ferðir til og frá Viðey dagana 9., 10. og 11. október í boði Yoko Ono. Hún býður einnig á tónleika til heiðurs John Lennon í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi 9. október kl. 22.00. www.reykjavik.is/ljomandi www.9oktober.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.