Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 16
16 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
Flestir sem hafa séð kvikmyndina Ferðalag keisaramör-
gæsanna, sem Yvon le Maho stóð að ásamt öðrum
vísindamönnum, minnast þess að hafa séð stóra hópa
af mörgæsum hjúfra sig saman til þess að halda á sér
hita í fimbulkulda Suðurskautslandsins.
Síðan myndin var gerð hefur Maho haldið áfram
rannsóknum á þessu atferli og gert ótrúlegar og óvæntar
uppgötvanir.
„Með því að hjúfra sig saman búa mörgæsirnar til
hitabeltisloftslag í miðju hópsins,“ segir Maho. Þó að á
Suðurskautslandinu sé nístandi frost er hitinn í miðju
hópsins nálægt 37 gráðum á Celsíus.
Hitinn er raunar svo mikill að mörgæsirnar halda það
ekki lengi út í hlýjunni, og er hver fugl yfirleitt ekki leng-
ur í hópknúsinu en 45 mínútur áður en hann yfirgefur
miðjuna til að kæla sig niður, segir Maho.
Ómögulegt hefði verið að komast að þessu með því
að fylgjast með fuglunum sjálfum, enda mörgæsirnar
hver annarri líkar. Maho segir að þar hafi verkfræðingar
komið honum til aðstoðar og hannað ljósmæla og hita-
mæla sem hægt var að festa á mörgæsirnar.
Með því að mæla birtumagnið í kringum fuglana
mátti sjá hvenær þær tróðu sér inn í hópinn, og um leið
hvenær þær fengu nóg af hitasvækjunni og fóru aftur út
í kuldann.
FRÉTTAVIÐTAL: Umhverfismál á heimskautasvæðum
Mörgæsir í vanda vegna hækkandi hita
HÓPUR Þegar þúsundir mörgæsa hópast saman í þétta
þvögu verður hitinn í miðju þvögunnar um 37 gráður, og
þurfa mörgæsirnar að kæla sig niður eftir um 45 mínútur í
þessu tilbúna hitabelti. NORDICPHOTOS/AFP
HITABELTISLOFTSLAG HJÁ MÖRGÆSUNUM
Ótrúlega margir þekkja vel
til verka Yvons le Maho,
þótt fæstir Íslendingar
hafi heyrt minnst á þennan
hægláta Frakka. Hann er
einn af vísindamönnunum
sem stóðu að kvikmyndinni
Ferðalag keisaramörgæs-
anna og á að baki áratuga-
rannsóknir á heimskauta-
svæðum. Hann berst nú
fyrir því að þjóðir heims
átti sig á vaxandi vanda
vegna hækkandi hitastigs
sjávar.
Þótt mörgæsir og ísbirnir hittist
aldrei í sínu náttúrulega umhverfi
eiga þessar heimskautategund-
ir það sameiginlegt að ef hitastig
sjávar hækkar þó ekki sé nema um
nokkur brot úr gráðu getur það
gjörbreytt lífslíkum þeirra, og jafn-
vel orðið til þess að þessar tegundir
deyi út.
Franski náttúruvísindamaður-
inn Yvon le Maho er einn helsti
sérfræðingur heims um umhverf-
ismál á heimskautasvæðum, og
hefur tileinkað síðustu tæpa fjóra
áratugi rannsóknum á lífverum á
heimskautasvæðum. Hann berst
nú fyrir því að þær dýrategund-
ir sem kunna best við sig í frosti
og snjó eigi möguleika á því að
blómstra og dafna á komandi árum
og áratugum.
Maho hefur haldið fyrirlestra
víða um heim undanfarið um hlýn-
un jarðar og það hvernig mörgæsir
á Suðurskautslandinu takast á við
umhverfisógn og loftslagsbreyt-
ingar. Hann hélt fyrirlestur hér á
landi í gærkvöldi á vegum Alliance
Française.
„Ég valdi þetta umræðuefni
til þess að taka dæmi um hvern-
ig breyting á loftslagi jarðarinnar
getur haft bein áhrif á þær lífver-
ur sem hér búa. Öfugt við það sem
maður myndi halda er kuldinn ekki
helsta vandamál mörgæsa á Suður-
skautslandinu heldur hitinn,“ segir
Maho.
Örlítil breyting hefur slæm áhrif
„Þrátt fyrir frábæra aðlögunar-
hæfni, sem hefur gert keisara-
mörgæsum og konungsmörgæsum
kleift að lifa og dafna á Suður-
skautslandinu, lenda þessar tegund-
ir í miklum vanda þegar hitastig
sjávar hækkar, þótt ekki sé nema
um brot úr gráðu,“ segir Maho.
Hækki meðalhitastig sjávar
um 0,3 gráður á Celsíus minnka
lífslíkur mörgæsanna úr 95 pró-
sent í 85 prósent vegna minna
fæðuframboðs.
„Þessi örlitla breyting ein og sér
hefur nægjanleg áhrif til að breyta
fæðukeðjunni við Suðurskautsland-
ið,“ segir Maho. „Við vitum auðvit-
að að það eru sveiflur í árferði,
það koma hlý ár og það koma köld
ár. Þrátt fyrir það hafa stofnarnir
haldist í jafnvægi þar til nú.“
Það sama má raunar segja um
norðurheimskautið, þar sem hlut-
fallslega lítil hækkun á sjávarhita
getur minnkað hafísbreiðuna veru-
lega. Það getur haft þær afleiðing-
ar að hvítabirnir eigi erfiðara með
að nálgast fæðu. Vandamálið er
það sama á báðum pólum, sem og
orsökin, segir Maho.
Munurinn á stöðu hvítabjarna og
mörgæsanna er sá að hvítabirnirnir
eru nú þegar í útrýmingarhættu, en
keisara- og konungsmörgæsir eru
ekki í svo aðkallandi hættu. Enn
sem komið er.
Mikilvægir fiskistofnar í hættu
Þótt vandi mörgæsa og hvítabjarna
sé aðkallandi, og ætti í raun að vera
nóg til að gripið verði til aðgerða,
hefur mannkynið fleiri hvata til
að reyna að stöðva hlýnun sjávar,
segir Maho.
Ef 0,3 gráðu hækkun á meðal-
hita sjávar dugir til að breyta hegð-
un fisks sem mörgæsir við suður-
skautið reiða sig á til átu ættu þeir
sem reiða sig á fiskveiðar að hug-
leiða alvarlega hvaða áhrif hækk-
andi hitastig hefur á þá fiskistofna
sem halda heilu þjóðunum uppi,
segir Maho.
Þau vandamál muni koma fyrst
og verst við fátækustu þjóðir heims,
sem megi sannarlega ekki við því
að fiskistofnar hrynji.
Fjárhagslegur hvati lykillinn
Þrátt fyrir alvarlega stöðu segist
Maho bjartsýnn á að hægt verði að
hægja á hækkun hitastigs á jörð-
inni. Hann segir þær leiðir sem
farnar hafi verið hér á landi gott
dæmi um það, áherslan verði að
vera á endurnýjanlega og umhverf-
isvæna orkugjafa.
„Rík lönd bera mikla ábyrgð gagn-
vart fátækari ríkjum,“ segir Maho.
Þrátt fyrir efnahagslegt hrun hér á
landi verði Íslendingar að átta sig á
því að þeir hafi það mjög gott sam-
anborið við margar aðrar þjóðir.
Hann segir lykilinn að því að fá
fólk til að breyta um lífsstíl hratt
vera fjárhagslegan hvata. Gríðar-
legri orku sé sóað í Bandaríkjunum
með því að nýta ekki almennings-
samgöngur og lestir meira, og með
því að einangra hús illa eða ekki.
Þessu sé hægt að breyta með því að
koma í gagnið sköttum eða skatta-
afslætti til að hvetja fólk til þess að
velja umhverfisvæna kosti.
„Það eru alltaf til leiðir til að
minnka þau áhrif sem við höfum
á umhverfið. Í Frakklandi er verið
að hanna háhraðalestarkerfi sem á
að verða betri valkostur en innan-
landsflug. Svona verða þjóðir heims
að fara að hugsa,“ segir Maho.
Verði ekkert gert til að koma í
veg fyrir hækkandi hitastig mun
það hafa hörmulegar afleiðingar,
segir Maho. Ekki bara fyrir fjöl-
breytileika dýralífs á jörðinni, held-
ur einnig fyrir efnahag jarðarbúa.
Við því verði að sporna.
ÞEKKTUR Þótt fáir þekki Yvon le Maho í sjón þekkja margir kvikmynd sem hann tók
þátt í að gera um 70 kílómetra göngu sem keisaramörgæsir á Suðurskautslandinu
leggja á sig ár hvert í fimbulkulda og myrkri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FUGLABREIÐA Hvorki konungsmörgæsir né keisaramörgæsir eru í útrýmingarhættu, en það gæti breyst hækki hitastig sjávar
áfram á næstu árum. NORDICPHOTOS/AFP
FRÉTTAVIÐTAL
BRJÁNN JÓNASSON
brjann@frettabladid.is
Rúðuþurrkur
NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico
NÝ ÚTGÁFA af rúðuþurrkum frá
„Ég hef eytt megninu af mínum ferli
sem vísindamaður í að rannsaka
hvernig mörgæsir og önnur heim-
skautadýr hafa aðlagast erfiðum
aðstæðum,“ segir Yvon le Maho.
Ein aðferðin sem mörgæsir nota
er að geyma mat í maganum svo
vikum skiptir. Þannig geymist fiskur
án þess að skemmast í maga þeirra,
þrátt fyrir að hitastigið þar sé um 37
gráður, segir Maho.
„Ég komst að því nýlega að mör-
gæsirnar framleiða efni í maganum
sem drepur sveppi og bakteríur sem
myndast þegar fiskur er geymdur í
37 gráðu hita lengi,“ segir Maho.
Undir venjulegum kringumstæð-
um yrði fiskurinn óhæfur til átu eftir
margar vikur, og jafnvel eitraður, en
þessi einkennilega leið mörgæs-
anna sýnir að þær hafa aðlagast vel
og geta geymt mat lengi án þess að
hann frjósi eða skemmist.
„Við höfum fundið heila,
óskemmda fiska í maganum á mör-
gæsum allt að fjórum vikum eftir að
þær átu fiskinn,“ segir Maho.
Hann bendir á að mögulega verði
niðurstöður þessarar rannsóknar á
mörgæsum til þess að nýjar aðferðir
verði þróaðar til að geyma fisk og
önnur matvæli í framtíðinni. Þá
sé mögulegt að þær geti nýst við
þróun lyfja í framtíðinni.
GEYMA MAT VIKUM SAMAN Í MAGANUM
SÍLSPIKAÐIR Ungar konungsmörgæs-
arinnar eru stríðaldir af foreldrum
sínum, en á ákveðnum tímapunkti fer
í gang líffræðilegt ferli hjá foreldrunum
og þeir yfirgefa ungana.
NPRDICPHOTOS/AFP