Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 17
FÖSTUDAGUR 9. október 2009 17
Á HELLISHEIÐI Átta af ríkjum Bandaríkj-
anna búa að jarðvarmavirkjanakostum
líkum þeim sem þekkjast hér.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN Horfur á sviði jarð-
varmavirkjana í Bandaríkjun-
um eru góðar, þrátt fyrir að nú
um stundir kunni að vera erfitt
að tryggja fjármögnun. Þetta er
ein af niðurstöðum þriðju árvissu
skýrslu Íslandsbanka (áður Glitn-
is) um jarðvarmaiðnað vestra sem
út kom í gær.
Fram kemur að orkuframleiðsla
með jarðvarma hafi aukist um sjö
prósent milli ára, en 82 prósent
framleiðslunnar séu í Kaliforníu.
Verkefni sem eru í gangi þarfn-
ast fjármögnunar upp á um 26
milljarða dala (yfir 3.200 millj-
arða króna), samkvæmt skýrsl-
unni. Afla þarf upphæðarinnar að
tveimur þriðju á árunum 2012 til
2014. - óká
Íslandsbanki um orku í BNA:
Bjart yfir en lít-
ið um peninga
DÓMSMÁL Fjórir einstaklingar
sem brutust inn í hesthús, stálu
fjölda hnakka og seldu suma hafa
verið dæmdir til fimm, sex og níu
mánaða fangelsisvistar. Refsing-
in er í öllum tilvikum skilorðs-
bundin.
Fólkið, karlmaður og þrjár
konur, braust inn í tuttugu og
fjögur hesthús. Það stal hnökk-
um og fleiru að andvirði um
tólf milljónir króna, að því er
fram kemur í dómi Héraðsdóms
Reykjaness.
Þar segir að þau hafi gengið
„ákveðin og skipulega til verks
og hafa þannig sýnt af sér mikinn
og einbeittan brotavilja“.
- jss
Hnakkaþjófar dæmdir:
Stálu fyrir tólf
milljónir króna
HEILBRIGÐISMÁL Niðurskurði til
Sjúkrahússins Vogs var mótmælt
harðlega á baráttu- og samstöðu-
fundi Samtaka um áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann,
SÁA. Húsfyllir var á fundinum
þar sem meðal annars Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra
ræddi um fyrirhugaðan niður-
skurð í ríkisfjármálum. Álykt-
un stjórnar samtakanna gegn
niðurskurðinum var lesin upp en
þar kemur meðal annars fram að
skert framlög til Vogs bitni ein-
ungis á þeim sem eru í brýnustu
þörf fyrir sjúkrahúsvist.
Formaður SÁÁ, Þórarinn Tyrf-
ingsson, átti síðasta orðið en hann
hvatti fólk til að þjappa sér saman
og standa vörð um áfengis- og
vímuefnameðferð á Íslandi. - sbt
Niðurskurði til SÁÁ mótmælt:
Skert framlög
bitna mest á
þeim veikustu
Birkir spyr um fækkun starfa
Birkir Jón Jónsson Framsóknarflokki
hefur lagt fram fyrirspurn til fjár-
málaráðherra um hve ætla má að
opinberum störfum fækki miðað við
forsendur fjárlagafrumvarps næsta
árs.
Og um skattstjóra
Þá spyr hann ráðherra hvort hann
ætli að beita sér fyrir að aðsetur
embættis ríkisskattstjóra verði á
landsbyggðinni, til dæmis, á Akur-
eyri, gangi áform um breytingar á
skattumdæmum eftir.
ALÞINGI
SAMGÖNGUR Gert er ráð fyrir að í
lok þessa mánaðar liggi fyrir tillög-
ur Vegagerðarinnar um hvar borið
verði niður með niðurskurðarhníf-
inn vegna tíu prósenta sparnaðar-
kröfu sem lögð hefur verið á stofn-
unina vegna næsta árs. Þetta segir
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri.
„Það hefur hins vegar ekki enn
verið ákveðið hvar nákvæmlega
verður borið niður,“ segir Hreinn
og áréttar að reynt verði eftir
megni að láta niðurskurð ekki bitna
á þáttum sem snúa að umferðarör-
yggi. Þannig verði götur saltaðar og
snjómokstur stundaður í samræmi
við þær reglur sem Vegagerðin
hefur stuðst við.
Hann segir hins vegar ljóst að
ekki sé svigrúm til að veita meiri
þjónustu en regl-
urnar kveða á um.
Þannig geta stað-
ir sem skilgreind-
ir hafa verið utan
vetrarmoksturs-
svæða ekki vænst
þess að fá slíka
þjónustu, þótt
það kunni að hafa
gerst í einhverj-
um tilvikum áður.
„Þarna eru undir
Norðurstrandir, Hrafnseyrarheiði,
Dynjandisheiði, Öxi og Mjóafjarð-
arheiði, svona til að nefna einhver
dæmi,“ segir Hreinn. „En að baki
eru bæði snjólétt ár og menn höfðu
kannski rýmri fjárhag og þá leyfðu
menn sér kannski að gera ýmis-
legt fram yfir stífustu reglur. En
nú skoða menn hvernig hægt er að
halda í þær reglur sem í gildi eru,
en ná samt um leið fram þessum
sparnaði.“ - óká
Vegagerðin vegur og metur sparnaðarkosti vegna kröfu um sparnað:
Niðurskurður liggi fyrir í lok mánaðar
SNJÓMOKSTUR Vegagerðin heldur úti söltun og snjómokstri þrátt fyrir tíu prósenta
niðurskurð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HREINN
HARALDSSON
SJÁÐU HEIMINN
Í NÝJU LJÓSI
með OSRAM
Jóhann Ólafsson & Co
m
yn
d
u
n
: .
S
n
æ
þ
ó
r
H
a
lld
ó
rs
s
o
n
(
e
fr
i m
yn
d
)
o
g
G
e
o
rg
T
h
e
o
d
ó
rs
s
o
n
(
n
e
ð
ri
m
yn
d
)
Friðarsúla Yoko Ono í Viðey verður tendruð á ný
í dag. Friðarsúlan er samansett úr níu 7000 W
OSRAM XBO perum sem mynda sterka ljóssúlu til
himins. Auk þess eru sex 2000 W OSRAM XBO perur
sem lýsa lárétt inn göng sem vísa að ljósbrunninum
sjálfum og er endurkastað upp á við með speglum
innan í brunninum. Þéttleiki ljóssins er háður
sífelldum breytingum á ögnum í andrúmsloftinu
sem hegða sér í takt við margbreytilega veðráttu
sem einkennir Ísland.
- umboðsaðili OSRAM á Íslandi frá árinu 1948
00 | www.olafsson.is
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI