Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 18
18 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 18 Velta: 213,4 milljónir
OMX ÍSLAND 6
802 +0,81%
MESTA HÆKKUN
EIK BANKI +12,22%
FØROYA BANKI +1,08%
MESTA LÆKKUN
ATLANTIC PETR. -16,67%
ÖSSUR -2,44%
MAREL FOOD SYS. -1,3%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 200,00
-16,67% ... Bakkavör 1,65 +0,00% ... Føroya Banki 140,50 +1,08% ...
Icelandair Group 2,45 +0,00% ... Marel Food Systems 65,00 -1,37%
... Össur 120,00 -2,44%
„Við höfum unnið að þessu megnið af árinu,“ segir Finn-
ur Árnason, forstjóri Haga, móðurfélags Hagkaupa, Bón-
uss og fjölda annarra verslana en greint var frá því í gær
að félagið hafi undirritað samning við Nýja Kaupþing
og Landsbankann (NBI) um endurfjármögnun á skulda-
bréfaflokki sem er á gjalddaga 19. október næstkomandi.
Hagar gáfu skuldabréfin út í kringum 2003. Nafnvirðið
nam sjö milljörðum króna og bera skuldabréfin 5,6 pró-
sent verðtryggða vexti. Uppreiknað verð þeirra nemur
tíu milljörðum króna. Þetta jafngildir rúmum áttatíu pró-
sentum af fjármögnun Haga, að sögn Finns Árnasonar
forstjóra.
Samningurinn er með fyrirvara um áreiðanleikakönn-
un og samþykki lánanefnda bankanna. Það mun vera á
lokametrunum. Hagar áttu 43 prósenta hlut í Húsasmiðj-
unni en Vestia, dótturfélag Landsbankans, tók hann yfir
á þriðjudag. Við það varð eignahlutur Haga að engu og
hefur það verið afskrifað. - jab
HAGKAUP Í SKEIFUNNI Hagar áttu tæpan helmingshlut
í Húsasmiðjunni þar til á þriðjudag þegar Landsbankinn
gekk að veðum.
Bankar endurfjármagna Haga
Bankastjórn evrópska seðlabank-
ans og peningastefnunefnd Eng-
landsbanka ákváðu báðar í gær að
halda stýrivöxtum óbreyttum.
Stýrivextir á evrusvæðinu
eru 1,0 prósent en 0,5 prósent í
Bretlandi. Vextirnir voru lækk-
aðir hratt þegar fjármálakrepp-
an herti tök sín á efnahagslífi
heimsins í fyrrahaust og hafa
þeir aldrei verið lægri.
Jean-Claude Trichet, seðla-
bankastjóri evrópska bankans,
sagði á vaxtafundi í gær rétt að
halda vöxtum lágum og gaf í skyn
að bankinn muni ekki auka pen-
ingalegt aðhald á evrópskum fjár-
málamörkuðum fyrr en aðildar-
ríki myntbandalagsins ná að rétta
úr kútnum. Þá tók hann undir með
AGS og sagði að þótt vísbending-
ar séu um efnahagsbata í Evrópu
verði vegferðin upp á við hæg og
vandasöm. - jab
Enn lágir stýrivextir í Evrópu
TRICHET Bankastjóri evrópska seðla-
bankans segir ekki verða gerðar breyt-
ingar á vaxtastigi á evrusvæðinu fyrr en
efnahagsbati verði varanlegur.
Ný skýrsla um áhrif orku-
sölu til orkufreks iðnaðar
á raforkuverð til heimila
sýnir að hagræðing hefur
leitt til lægra raforkuverðs.
Ein af forsendum skýrsl-
unnar er að virkjanafram-
kvæmdirnar standi undir
sér og ekki sérstakt tillit
tekið til skuldsetningar
orkusölufyrirtækja.
Stærra raforkukerfi með meiri
sölu til orkufreks iðnaðar hefur
leitt til lækkunar á almennu verði
raforku.
Þetta er meðal niðurstaðna
Jóhannesar Geirs Sigurgeirsson-
ar, fyrrverandi stjórnarformanns
Landsvirkjunar, í nýrri skýrslu
AtvinnuLífsinsSkóla um raforku-
verð á Íslandi á árunum 1997 til
2008. Niðurstöðurnar voru kynntar
á fundi Samorku um miðja vikuna.
Fram kemur í skýrslunni að
meðalfjölskyldan hafi greitt 30
prósentum lægra verð fyrir heim-
ilisnotkun á raforku í fyrra, en
hún gerði árið 1997. Á verðlagi
síðasta árs voru greiddar 52.400
krónur fyrir 4.400 kílóvattsstund-
ir á ári, í stað 74.500 króna árið
1997.
„Í skýrslunni er sett fram sú
kenning að lækkunin sé að miklu
leyti komin til vegna þess að með
stóraukinni sölu til orkufreks iðn-
aðar verði til reiðu- eða umfram-
afl sem hægt sé að nýta til að
framleiða fyrir orkutoppana á
almenna innlenda markaðinum,“
segir á vef Samorku.
Jóhannes Geir segir að í
útreikningunum sé ekki tekið
sérstakt tillit til þeirrar skuld-
setningar sem fylgir uppbygg-
ingu stærra raforkukerfis. „Það
breytir í sjálfu sér ekki þessari
mynd þó maður gefi sér að þær
framkvæmdir sem farið hefur
verið í og orkusala þar að baki
standi undir skuldsetningunni. Og
bendir svo sem ekkert til annars
þó að einstaka fyrirtæki geti lent í
vandræðum með endurfjármögn-
un ef við verðum áfram einangruð
eyja í fjármálalegu tilliti. Ef það
gerist verður nú margt annað sem
við þurfum líka að hafa áhyggjur
af,“ segir Jóhannes Geir.
Í skýrslunni kveðst hann
reyna að kafa ofan í eðli orku-
markaðarins og hvort þar sé að
finna orsakasamhengi. „Niður-
staðan er sú að það sé til stað-
ar því þarna geta menn samnýtt
dýrustu þættina í aflinu, annars
vegar aukaaflið sem þarf að vera
til staðar til að mæta sveiflunni á
innanlandsmarkaði og svo er það
þannig með orkufreka iðnaðinn
að hann tekur 80 prósent aflsins
og tekur jafnt allt árið, en virkj-
anirnar geta ekki framleitt allt
árið. Þær þarf að stoppa vegna
viðhalds og af ófyrirséðum orsök-
um og þurfa því líka að hafa upp-
sett afl umfram sína notkun og sé
hægt að samnýta þetta fæst af því
ávinningur,“ segir hann og kveður
að í skýrslunni nýju sé komist að
þeirri niðurstöðu að sá ávinning-
ur hafi skilað sér til hins almenna
notanda síðustu ár.
olikr@frettabladid.is
JÓHANNES GEIR SIGURGEIRSSON
Í KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Verðið sem meðalfjölskyldan borgaði fyrir rafmagnsnotkun
sína í fyrra er sagt 30 prósentum lægra en árið 1997. Í skýrslu sem kynnt var á fundi
Samorku á miðvikudag er lækkunin að stórum hluta rakin til hagræðingar vegna
orkusölu til orkufreks iðnaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Borga minna
vegna stóriðju
Gott og slæmt að mati Gauta
Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur við seðlabanka
New York-ríkis í Bandaríkjunum, hefur tekið saman
lista á bloggsíðu sinni yfir verstu mistökin sem
gerð voru í aðdraganda hrunsins hér í fyrra. Ástar-
bréf Seðlabankans, endurhverf viðskipti sem gerðu
bönkum kleift að sækja sér fé hjá Seðlabankan-
um í skiptum fyrir misgóðar tryggingar, vermir
toppsætið. Gauti segir Seðlabankann hafa tapað
þrjú hundruð milljörðum króna á viðskiptunum og
gert hann gjaldþrota. Gjaldþrot seðlabanka er
einsdæmi í vestrænni sögu, að því er hann
best telur. Í öðru sæti eru neyðarlögin.
Gauti telur að tryggðar innistæður hafi átt
að vera forgangskröfur líkt og víða tíðkist.
Við það hefðu allar eignir Landsbankans
fyrst gengið upp í Icesave-skuldina.
Skaði þjóðarbúsins hefði því orðið
nær enginn og deilur við Breta og
Hollendinga aldrei orðið. Viðtal Kast-
ljóssins við Davíð Oddsson, þáver-
andi seðlabankastjóra, vermir þriðja sætið. Gauti
segir það heimshneyksli og valdið vatnaskilum
enda hafi það í raun verið yfirlýsing um að íslenska
ríkið myndi ekki standa við alþjóðlegar skuldbind-
ingar sínar. Icesave-málið allt fellur sömuleiðis í
þriðja sætið yfir verstu mistökin.
Jákvæðir póstar
Þrátt fyrir neikvæðan tón segir Gauti nokkra
jákvæða punkta í hrunadansinum. Neyðarlögin
segir hann jafnt verst sem best. Þrátt fyrir galla á
lögunum hafi þau nægt til að halda bankakerfinu
hér gangandi. Það sé afrek. Á meðal annarra
jákvæðra pósta, að mati Gauta, er skipan sér-
staks saksóknara og Rannsóknarnefndar Alþingis
og val á þeim Gylfa Magnússyni og Rögnu Árna-
dóttur í ráðherrastóla. Þótt Gauti lýsi ánægju
sinni yfir ráðningu Más Guðmundssonar
í starf seðlabankastjóra telji hann Þorvald
Gylfason, annan umsækjanda um stöðuna,
ekki hafa verið síðri kost.
Peningaskápurinn ...
Aðstoðarmaður við greiðslustöðvun og skilanefnd Kaupþings banka hf. boða til kröfuhafafundar
kl. 10:00 þriðjudaginn 20. október 2009 á hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2,
Reykjavík.
Skilanefndin mun gefa yfirlit yfir rekstur bankans og skýra frá þróun mála frá síðasta fundi með
kröfuhöfum sem haldinn var í febrúar 2009. Kynntur verður samningur um uppgjör á milli Kaupþings
og Nýja Kaupþings banka sem undirritaður var 3. september 2009. Einnig fá kröfuhafar kynningu
á nýjustu fjárhagsupplýsingum um bankann.
Í lok fundarins verður rætt um mögulega framlengingu á heimild Kaupþings banka hf. til
greiðslustöðvunar. Eins og kröfuhöfum er kunnugt veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Kaupþingi banka
heimild til greiðslustöðvunar 24. nóvember 2008 og fól Ólafi Garðarssyni hrl. að gegna starfi
aðstoðarmanns við greiðslustöðvun. Verði ákveðið að óska eftir áframhaldandi greiðslustöðvun fer
þinghald fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 13. nóvember 2009. Af þessum sökum og með vísan til laga
nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. er aðstoðarmanni við greiðslustöðvun skylt að boða til fundar
með kröfuhöfum bankans til að fjalla um áframhaldandi greiðslustöðvun og fjárhagslega
endurskipulagningu.
Á fundinum munu hvorki fara fram atkvæðagreiðslur né teknar ákvarðanir, enda er ekki mælt fyrir um
slíkt í lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.
Rétt til fundarsetu eiga þeir sem eiga kröfu á hendur Kaupþingi banka hf. Skráningarform á heimasíðu
Kaupþings banka, www.kaupthing.com, skal fylla út í síðasta lagi 17. október til að öðlast aðgang að
fundinum.
Fyrir hönd Kaupþings banka hf.
Ólafur Garðarsson hrl., aðstoðarmaður
við greiðslustöðvun, og skilanefnd Kaupþings banka hf.
Fundur með kröfuhöfum 20. október 2009
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
FP
Álrisinn Alcoa, sem meðal annars
rekur Fjarðarál, hagnaðist um 77
milljónir Bandaríkjadala, jafn-
virði 9,6 milljarða króna, á þriðja
ársfjórðungi. Þetta er þvert á
væntingar helstu greinenda, sem
bjuggust almennt við taprekstri
hjá fyrirtækinu.
Flestir þeirra erlendu fjöl-
miðla sem fjölluðu um málið í
gær eru sammála um að hagnað-
ur fyrirtækisins liggi að mestu í
hagræðingaraðgerðum stjórnenda
fyrirtækisins gegn kreppunni.
Fyrirtækið hafi dregið úr fram-
leiðslu og sagt upp tæpum þriðj-
ungi starfsfólks síðasta árið.
Bjartsýni gætti í kjölfar
afkomufréttarinnar og hækkuðu
hlutabréf á flestum mörkuðum í
gær. - jab
Alcoa yfir spám