Fréttablaðið - 09.10.2009, Síða 31
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
Allir þekkja hugtakið sjálfsvörn út
frá því að verja líkama sinn fyrir
utanaðkomandi árás. Á síðasta
ári fór ég að velta því fyrir mér
hvort og þá hvernig hægt væri að
tengja slíka sjálfsvörn hinu and-
lega. Það hefur lengi legið fyrir
að dýpstu örin sem fólk ber á
sinni sálu eru gjarnan vegna fjöl-
skylduaðstæðna, framkomu ann-
arra, vanrækslu, niðurlægingar
og árása með orðum og jafnvel
hreinu afskiptaleysi og tilfinninga-
kulda sem nákomnir sýna þeim.
Við erum eins og páfagaukar og
ýmis önnur dýr að því leyti að við
getum ekki verið ein. Maðurinn er
ekki eyland. Við þurfum nauðsyn-
lega á tilfinningasamskiptum við
annað fólk að halda til að þrífast
og þroskast. Það veldur því að við
lendum stundum í árekstrum og þá
er spurningin hvernig við getum
lágmarkað slíkt en einnig og ekki
síður hvernig við verjum okkur
þegar á okkur er ráðist.
Ég hef nú haldið um 30 fyrir-
lestra á vegum Geðhjálpar um
þetta efni bæði norðan og sunnan
heiða við góðar undirtektir. Davíð
Kristinsson hjá heilsuþjálfun.is á
Akureyri hefur unnið efnið með
mér hvað snertir svefn, næringu
og hreyfingu. Ég set þetta upp sem
skútusiglingu þar sem markmiðið
með hverjum leiðangri er að kom-
ast í næstu höfn. Grundvallaratriði
er að búa sig vel til fararinnar en
einnig að gæta þess að áhöfnin
sé samhent og standi þétt saman
þegar gefur á bátinn. Ef við verð-
um fyrir skyndilegri og óvæntri
árás þá gilda í grundvallaratriðum
sömu lögmál og í líkamlegri sjálfs-
vörn. Fyrst þarf maður að reyna að
skapa ákveðna fjarlægð og þegar
maður er búinn að því að snúa þá
vörn í sókn og taka málið eða ein-
staklinginn föstum tökum. Mikil-
vægt er að reyna að hugsa þetta
tæknilega í stað tilfinningalega.
Þetta getur átt við neikvæð sam-
skipti eða eigin niðurbrjótandi
hugsanir. Oftast þegar um líkam-
legar árásir er að ræða þekkir ein-
staklingurinn árásarmanninn vel.
Ég gæti trúað að þegar um andleg-
ar árásir er að ræða sé sú einnig
raunin. Þess þá heldur er brýnt
að fólk tileinki sér meðvitaða og
skipulagða tækni við að lágmarka
skaðann af slíkum uppákomum.
Um leið mæli ég með útrás.
Heilbrigðri útrás og þá getur hag-
nýt líkamleg sjálfsvörn með and-
legri skírskotun verið tilvalin leið.
Fyrirlestur um efnið verður hald-
inn í húsnæði Geðhjálpar laugar-
daginn 10. október klukkan 16.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir. Nán-
ari upplýsingar og umsagnir má
nálgast á vefsíðu Geðhjálpar www.
gedhjalp.is og hægt er að bóka fyr-
irlestra fyrir vinnustaði og skóla
hjá Jóhönnu Erlingsdóttur í síma
570 1700 og á netfanginu johanna@
gedhjalp.is Sigursteinn Másson
Andsvar við tvíhyggju
„Grundvallaratriði er að búa sig vel til
fararinnar en einnig að gæta þess að
áhöfnin sé samhent og standi þétt
saman þegar gefur á bátinn,“ segir
Sigursteinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á undanförnum árum hafa verið
gerðar margar rannsóknir á sam-
bandi ómega-3 fjölómettaðra fitu-
sýra og geðhvarfaveiki, þunglyndi
og geðklofa.
Sigursteinn Másson, formað-
ur Geðhjálpar, segist sjálfur hafa
góða reynslu af áhrifum ómega-3
fitusýra, auk þess sem rannsókn-
ir á virkni þess hafi verið miklar
og vandaðar. Umræða um jákvæð
áhrif fitusýranna eigi því ekkert
skylt við hindurvitni.
Í ritrýndri fræðigrein sem birt-
ist í 3. tölublaði Læknablaðsins
árið 2003 var einnig greint frá nið-
urstöðum lyfleysustýrðrar saman-
burðarrannsóknar þar sem geð-
hvarfaveiki var meðhöndluð með
háum skömmtum af ómega-3 fjöló-
mettuðum fitusýrum. Þrjátíu sjúk-
lingar sem allir uppfylltu grein-
ingarskilyrði fyrir geðhvarfaveiki
tóku þátt í rannsókninni,
sem stóð í fjóra mánuði
og var tvíblind. Niður-
stöðurnar sýndu mark-
tækt lengra tímabil þar
sem oflætis varð ekki
vart hjá þeim sjúkling-
um sem meðhöndlaðir
voru með ómega-3.
Í greininni var þess
einnig getið að faralds-
fræðirannsóknir hefðu
sýnt fram á samband lítillar
fiskneyslu og þunglyndis. Þá er
einnig rætt um áhrif ómega-3 á
geðklofa. Segir að fáar rannsóknir
hafi verið gerðar þar sem geðklofa-
sjúklingar hafi verið meðhöndlaðir
með ómega-3 og/eða ómega-6 fjöl-
ómettuðum fitusýrum en greint
hafi verið frá tveimur mjög
vel rannsökuðum sjúkratil-
fellum þar sem alvarleg ein-
kenni geðklofa bötnuðu veru-
lega af meðferð með ómega-
3 fjölómettuðum fitusýrum
eingöngu. Nánar má lesa um
þessar rannsóknir á síðunni
laeknabladid.is en greinin
hefur titilinn Ómega-3 fjöló-
mettaðar fitusýrur: Hlutverk
í læknisfræði.
Jákvæð áhrif ómega-
fitusýra á geðraskanir
Rannsóknir sýna að inntaka ómega-fitu-
sýra getur haft jákvæð áhrif á geðsjúk-
dóma.
Hámarksupphæð 8 milljónir
Fastir vextir án uppgreiðsluákvæðis
Lántökugjald 0,5% af lánsupphæð
90% af kaupverði eða byggingarkostnaði
90% af viðbótar- og endurbótakostnaði
Þeir sem hafa skerta starfsorku, eru fatlaðir eða hreyfihamlaðir geta fengið aukalán til að gera
breytingar á íbúðarhúsnæði eða til að kaupa eða byggja húsnæði vegna sérþarfa sinna. Lánið
kemur til viðbótar 20 milljóna króna hámarksláni Íbúðalánasjóðs eða öðrum fasteignaveðlánum að
hámarki 20 milljónum. Einnig er heimilt að veita aukalán til forsvarsmanna þeirra sem búa við sérþarfir.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
HEFUR ÞÚ SÉÐ
SKAMMDEGIS-
ÞUNGLYNDI?
Ef vetrardrunginn dregur þig niður þá
getur hjálpað að auka hreyfingu og nýta
alla birtu sem gefst. Gönguferð í hádeginu
margborgar sig.