Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 32

Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 32
 9. OKTÓBER 2009 FÖSTUDAGUR6 ● geðhjálp vinna með aðstandendum var að halda svokallaða fjölskyldudaga hjá Geðhjálp.“ Sigríður segir að Geðhjálp hafi strax fengið mikinn stuðning víðs vegar að, meira að segja frá heil- brigðisgeiranum. Á stofnfundi Geðhjálpar sýndi Tómas Helgason, þáverandi yfirlæknir á Kleppsspít- ala, stuðning sinn bersýnilega. „Með tilkomu Geðhjálpar var kominn vettvangur fyrir geð- sjúka og aðstandendur þeirra og þrátt fyrir að fordómarnir séu enn fyrir hendi hefur margt breyst. Ég er óhemju stolt af starfsemi Geð- hjálpar í dag, öllum sjálfshjálpar- hópunum, stuðningshópunum og húsnæði athvarfsins,“ segir Sig- ríður. Í dag fylgist hún með starf- inu úr fjarlægð en er um þessar mundir að undirbúa rekstur einka- rekins spítala og heilsuhælis í Mosfellssveit. - jma ÓRAÐI EKKI FYRIR ÁRANGRINUM Fleiri eldhugar komu að stofn- un Geðhjálpar á fundi í safnað- arheimili Langholtskirkju hinn 9. október 1979. Guðbjörg Björns- dóttir og Margrét Hlín Sveins- dóttur áttu frumkvæðið að því að boða til þessa fundar. „Við vild- um kynna þá neyð sem fólk lend- ir í undir þessum kringumstæðum og koma á framfæri hverju okkur þótti ábótavant í viðbrögðum hins opinbera við þeim aðstæðum,“ segir Guðbjörg. Þær stöllur settu á blað hug- myndir til úrbóta og hengdu upp auglýsingar um fundinn á sjúkra- stofnanir og skrifstofur sem störf- uðu að þessum málefnum. Þær óskuðu eftir áheyrnarfulltrú- um úr hópi þingmanna, einum úr hverjum flokki, og meðal þeirra sem mættu og lögðu gott til mál- anna voru Helgi Seljan og Stefán Jónsson. Helgi sótti síðar fundi fé- lagsins annað slagið og reyndist félaginu afar hjálplegur. „Við vildum benda á leiðir til úr- bóta frá sjónarhóli aðstandenda,“ segir Guðbjörg. „Það var af svo mörgu að taka. Sem dæmi vil ég nefna að við vildum bráðamóttöku fyrir geðsjúka á sjúkrahúsi í stað þess að notast við fangaklefa eins og gert var og við vildum stuðning inn á heimili sjúklinga þegar neyð- arástand skapaðist. Við vildum líka stuðla að umræðu sem gæti dregið úr fordómum í garð geðsjúkra og aðstandenda þeirra en þeir voru því miður afar miklir.“ Á stofnfundinn mættu áttatíu manns, aðstandendur, sjúklingar og fagfólk, og reyndist mikill áhugi vera á því að vinna að úrbótum á þessu sviði. Í fyrstu voru fundir félagsins haldnir í heimahúsum en síðar í húsnæði geðdeildar Land- spítalans við Hringbraut. Sífellt bættist í hóp félagsmanna og mis- munandi þarfir komu í ljós. Stofn- aðir voru hópar fólks með svip- aðar þarfir og kröftum beint að því að hafa áhrif á þjónustu hins opinbera. „Ég gleðst alltaf þegar ég heyri af framförum í málefnum geð- sjúkra og aðstandenda þeirra,“ segir Guðbjörg. „Aldrei hefði okkur órað fyrir að þetta félag ætti eftir að láta jafn mikið til sín taka og raun ber vitni. Ég minn- ist þess þegar ég sá hóp félaga í Geðhjálp ganga niður Banka- strætið með árituð spjöld í tilefni af afmæli félagsins fyrir mörgum árum. Þá rifjaðist snöggt upp fyrir mér stundin þegar þeirri ákvörð- un sló niður að stofna þetta félag. Göngunni gleymi ég aldrei og ég óska því duglega fólki sem stendur vörð um bættan hag geðsjúkra og aðstandenda þeirra áframhaldandi gæfu á göngu sinni.“ - as Saga geðsjúkdóma er umvaf- in hræðslu og misskilningi, sem gefur ranga mynd af geðfötluð- um einstaklingum. Það var því við ramman reip að draga hjá fyrstu félagsmönnum Geðhjálp- ar en síðan þeir tóku til starfa fyrir þrjátíu árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og góðir hlutir gerst. Það er því margs að minnast á þrjátíu ára afmæli samtakanna Geðhjálpar sem haldið verður upp á á morgun. „Þetta verður allt á rólegu og notalegu nótunum, svona í anda þess að nú erum við orðin full- orðin,“ segir Lárus Rögnvaldur Haraldsson, gjaldkeri Geðhjálp- ar, um dagskrá 30 ára afmælis samtakanna sem hefst klukkan fjögur á morgun í Iðnó. Samtökin Geðhjálp voru stofnuð þann 9. október 1979 eða fyrir nákvæmlega þrjátíu árum og var þeim ætlað að gæta hags- muna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig geðheilbrigð- ismál varða. Frá fyrsta degi var unnið að því að reyna að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða og auka skiln- ing samfélagsins á þessum veikindum. Sé þriggja áratuga starfi Geðhjálpar líkt við líf þrítugr- ar manneskju er ekki ofsögum sagt að henni hafi farnast vel um dagana þótt vitanlega hafi komið upp erfiðir dagar. Segir Lárus að hljómsveitin Tepokinn muni leika ljúfa tóna áður en einginleg dagskrá hefst. Frumkvæðisverðlaun Geðhjálp- ar verða veitt í fyrsta sinn en þau eru ætluð fólki sem með ein- hverju móti hefur haft frum- kvæði í geðheilbrigðismálum og skilað góðu starfi. Að auki mun fyrrverandi félög- um og stofnend- um Geðhjálp- ar verða veitt heiðursaðild, félagsmála- ráðherra mun flytja ávarp og auk þessa segir Lárus að svokall- að Geðhjálparlag verði kynnt. Fleira skemmti- legt verði á seyði auk þess sem ætlunin sé að gefa fólki tækifæri til sýna sig og sjá aðra. Dag- skráin hefst í Iðnó klukkan fjögur og eru félagsmenn og velunnarar Geðhjálpar velkomnir. - kdk Húsnæði Geðhjálpar við Veltusund 3b. Myndin er tekin árið 1989. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/365 Nú er Geðhjálp orðin fullorðin Félagið hefur gert ýmislegt til að vekja athygli á geðheilbrigðismálum á Íslandi. MYND/GEÐHJÁLP Lárus Rögnvaldur, gjaldkeri Geðhjálpar, segir dagrána verða í anda virðulegra þrítugsafmæla þar sem góður þroski hefur náðst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRAMHALD AF FORSÍÐU Auglýsingaefni og söfnunarbaukar fyrir Geðhjálp árið 1981. Á baukunum stendur: Hættum að nýta fangaklefana sem neyðarþjónustu fyrir geðsjúka. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/365 Auglýsingasími – Mest lesið Ég gleðst alltaf þegar ég heyri af framför-um í málefnum geðsjúkra og aðstand- enda þeirra,“ segir Guðbjörg Björnsdóttir, einn stofnenda Geðhjálpar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.