Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 35

Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 35
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 9 Á undanförnum árum hefur notendastýrð þjónusta verið að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum og þá helst í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þessi þrjú lönd hafa minnst 15 ára reynslu af slíkri þjónustu sem snýst um það að fatlaðir fá vald til að ráða sér aðstoðarmenn þurfi þeir á þeim að halda til að lifa sjálfstæðu lífi í samfélaginu. Meg- inhugsunin á bak við breytinguna, sem á rætur að rekja til Danmerk- ur á áttunda áratug síðustu aldar, er að fólk með mikla líkamlega fötlun geti áfram búið á venjuleg- um heimilum og sótt frístundir og vinnu en sé ekki bundið við þjón- ustu sérstakra búsetustofnana sem ætlaðar eru fötluðu fólki. Fyrir tilstilli Evald Krog í Dan- mörku var byggt upp fyrirmynd- arkerfi þarlendis til að þjóna fólki með vöðvarýrnunarsjúkdóma. Alls 1.200 einstaklingar njóta slíks fyr- irkomulags og á ferðum mínum í Danmörku hef ég kynnst því hvernig þjónustan ræður úrslit- um um lífsgæði fólksins en einnig lífsmöguleika. Sjálfur er Evald 66 ára, elsti núlifandi einstaklingur- inn í heiminum með sjúkdóminn, og ljóst að hann væri ekki á lífi ef aðstoðarmannakerfisins danska nyti ekki við. Hann er ekki að- eins hreyfihamlaður fyrir utan einn fingur sem hann getur hreyft heldur líka í öndunarvél. Slíka til- veru hefði hann aldrei tekið í mál ef honum hefði verið gert að liggja inni á stofnun það sem hann ætti eftir ólifað. Í staðinn er hann kom- inn í áttunda skiptið til Íslands á fjórum árum til að boða fagnaðar- erindi aðstoðarmannakerfis í stað stofnanavistar og hann nýtur hvers einasta augnabliks lífsins. Svíar eru komnir lengst í þróun notendastýrðrar þjónustu. Þar starfa nú 50.000 aðstoðarmenn í fullu starfi sem mundi samsvara um 2.000 aðstoðarmönnum á Ís- landi. Með þessu móti hafa Svíar getað lagt niður búsetustofnan- ir og þar er skilningurinn einna lengst kominn á því að afstofnana- væðing er mannréttindastefna. Í Svíþjóð eiga andlega fatlaðir jafnt sem hreyfihamlaðir rétt á notenda- stýrðri þjónustu. Það er stefna sem mikilvægt er að marka frá upphafi hér á landi einnig. Veik- leiki allra norrænu kerfanna er aldursaðgreining. Þannig eiga þeir sem orðnir eru 67 ára ekki rétt á notendastýrðu kerfi nema þá að þeir hafi áður áunnið sér slíkan rétt. Hér getum við gert betur. Öll hin Norðurlöndin hafa fært þjónustu við fatlaða og aldraðra yfir til sveitarfélaga og til stend- ur að flytja málefni fatlaðra hér á landi til sveitarfélaga árið 2011. Það skiptir miklu máli að sú yfirfærsla verði ekki fyrst og fremst tæknileg afgreiðsla heldur taki þá við alveg nýtt fyrirkomulag sem bætir þjón- ustuna, gerir hana einstaklingsmið- aða og notendastýrða í stað stofn- anaþjónustu. Í dag þurfa fatlaðir og aldraðir að sæta ýmiss konar frels- isskerðingum umfram annað fólk vegna þess að þau þurfa að laga sig að reglum og þjónustu stofnana. Frá þessu verður að hverfa hið allra fyrsta eins og gerst hefur á hinum Norðurlöndunum. Vegna smæðar Íslands getum við gert enn betur en þau og jafnvel með minni tilkostn- aði. Í öllu falli er ljóst að stofnana- vistun er dýrasta og ósveigjanleg- asta þjónustuformið. Við höfum allt að vinna, fordæmin eru til staðar og nú skulum við hefjast handa með góðri hjálp Evald Krog og fleiri. Sigursteinn Másson geðhjálp ● Hópur notenda geðheilbrigðisþjón- ustunnar í Svíþjóð heimsótti Geð- hjálp fimmtudaginn 8. október og kynnti sér starfsemi félags- ins auk þess að kynna sín sam- tök. Þau heita Riksförbundet för social och mental hälsa, skamm- stafað RSMH, eru landssamtök með 140 félögum í 21 héraði og telja um 10.000 félaga. Samtökin eru mjög virk í Svíþjóð, standa til dæmis fyrir námskeiðum, upplýs- ingaöflun í geðheilbrigðismálum og rannsóknum og gefa út blaðið Revansch. Fram kom í máli gestanna að þótt búið væri að koma á fót að- stoðarmannakerfi í Svíþjóð væri nokkuð langt í land að allir nytu fullnægjandi stuðnings. Það var sameiginlegt mat hópsins og Geð- hjálparfólks að mikilvægasta verkefnið væri að rjúfa einangrun geðsjúkra og stokka upp starfsemi geðdeilda og geðsjúkrahúsa. Lyfja- gjafir jafngiltu stundum pynting- um og beita þyrfti mannúðlegri aðferðum við að hjálpa fólki að ná fótfestu í lífinu frekar en að neyða það til inntöku stórra og sterkra lyfjaskammta. Einnig var rætt um nauðung og þvingun og kom það fram hjá gestunum að enn væri algengt í Svíþjóð að sjúklingar væru bundnir með ólum í rúm. Á Íslandi eru slíkar aðfarir bannað- ar. Sænsku gestirnir töldu að ein stærsta hindrunin í málaflokkn- um í þeirra landi væri almennir fordómar í garð geðsjúkra. Góð grannaheimsókn Meðlimir sænsku samtakanna RSMH heimsóttu Geðhjálp í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● AUGLÝST EFTIR GÖGNUM Fundargerða- bækur Geðhjálpar frá fyrstu árum félagsins hafa glatast á vegferð þess milli húsa og er hér með lýst eftir þeim. Ef einhver fyrri rit- ari eða formaður félagsins kannast við að hafa þær í sínum fórum eru þau vinsamlegast beðin að koma þeim til félagsins svo hægt sé að halda sögu þess til haga. Norðurlöndin hafa nokkra reynslu af notendastýrðri þjónustu. NORDICPHOTOS/GETTY Sjálfstætt líf fólks utan stofnana Vefsíðan www.umhuga.is er síða þar sem hægt er að nálgast alls kyns upplýsingar er varða geð- heilsu barna og unglinga, uppeldi þeirra og hvert leita má eftir að- stoð. Vefurinn er ætlaður foreldr- um og uppalendum sem og fagfólki sem vinnur með börnum og ungl- ingum en ekki síður börnum og unglingum sem vilja fræðast um málefnið. Umhuga.is er hluti af forvarn- arverkefninu Þjóð gegn þung- lyndi sem Landlæknisembættið hefur starfrækt síðan vorið 2003. Á síðunni má finna allt frá dæmum um meðferðarúrræði til ítarlegra fyrirlestra. - jma Vefsíða um geðheilsu barna Umhuga.is aðstoðar meðal annars foreldra í leit að meðferðarúrræðum fyrir börn sín. Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Sel javeg 2. Frí heimsendingarþjónusta til eldri borgara og öryrkja. Reykjavíkur Apótek býður NOW vítamín og bætiefni með 20% afslætti út september. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. Apótekið er í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2. Sel javegur 2 | S ími : 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.