Fréttablaðið - 09.10.2009, Qupperneq 36
9. OKTÓBER 2009 FÖSTUDAGUR
Kristján Ágúst Njarðarson er
nýfluttur í íbúð í íbúðarkjarna í
Reykjavík. Þar líður honum vel
enda í fínni íbúð eins og hann
segir sjálfur.
„Það er gott að hafa sína eigin íbúð
en hafa samt félagsskap af íbúum
í hinum íbúðunum. Ég þekki þá
nokkra en við vorum saman á
sambýli þar sem einungis voru
herbergi,“ segir Kristján. „Ég er
með geðfötlun en þetta verkefni,
Straumhvörf, er að hluta gert fyrir
peningana sem fengust þegar
Síminn var seldur, einn milljarð.“
Kristján segir mikinn mun
á því að búa í eigin íbúð en her-
bergi. „Nú get ég boðið fólki í kaffi
og mat, þótt ég geri ekki mikið af
því,“ segir hann og brosir.
Hann segist hingað til ekki hafa
verið duglegur við eldamennsk-
una en núna eldi hann oftar. „Við
erum með konu sem er að kenna
okkur. Á hinu sambýlinu fórum
við í gegnum verkefni sem heit-
ir VSL eða „virkja, styðja, leið-
sögn“ og það var mjög gott. Það
er þriggja ára prógramm í end-
urhæfingu og þar lærðum við til
dæmis að fara með peninga, elda
og fleira um persónulegt líf. Ég
var svo heppinn að komast hing-
að í kjölfarið og nú vinn ég tvisv-
ar í viku á trésmíðaverkstæðinu
Ásgarði og bý þar til tréleikföng í
anda Rudolfs Steiner. Það er mjög
fínt.“
Kristján fylgist vel með þjóð-
málum. „Ég horfði á stefnuræðu
forsætisráðherra á mánudag og
það er alvarlegt ástandið í þjóðfé-
laginu.“ Hans helsta áhugamál er
áhorf frétta, fræðslumynda og lest-
ur en hann á myndarlegt bókasafn.
„Ég hef mestan áhuga á bókum
um Íslandssöguna og öllu tengdu
henni.“ Inntur eftir því hvort hann
ætli kannski að verða sagnfræð-
ingur, neitar hann því brosandi.
„Ég lauk nú bara grunnskólaprófi
en ég hef gaman af þessu og hef
fræðst mikið.“
Nú ertu búinn að glíma við
þessa fötlun lengi, finnst þér þjón-
ustan hafa batnað? „Já, hún hefur
aukist. Á fyrsta sambýlinu sem ég
var á, árið 1995, var bara þveginn
af okkur þvottur en ekkert hugs-
að um okkur annars. En á seinni
árum hefur okkur verið hjálpað til
sjálfshjálpar,“ segir Kristján, sem
ekki segist finna á eigin skinni for-
dóma í garð geðfatlaðra. „Ég er
ekkert ósáttur við lífið.“ - uhj
Ég er ekkert ósáttur við lífið
Kristján Ágúst Njarðarson fylgist vel með þjóðmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kristján vinnur á trésmíðaverkstæðinu Ásgarði tvisvar í viku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Upphaf Straumhvarfa og hugmyndafræði
Að frumkvæði félagsmálaráð-
herra var á árinu 2005 hafinn
undirbúningur að átaki í upp-
byggingu þjónustu við geðfatlaða,
sem síðar fékk nafnið Straum-
hvörf. Á þeim tíma voru aðstæð-
ur og réttindamál geðfatlaðs fólks
í brennidepli. Mikil þörf var fyrir
fjölbreyttari úrræði og tækifæri
fyrir notendur til að hafa áhrif á
þjónustuna. Hugmyndum um að
færa ætti þjónustu við fólk með
geðraskanir út í samfélagið, frá
hefðbundnum sjúkrastofnunum,
hafði vaxið fylgi. Talið var að bú-
seta í einstaklingsíbúð með fjöl-
breyttri og sveigjanlegri þjónustu
veitti öryggi sem stuðlaði að
jafnvægi í heilsufari og drægi
úr líkum á endurinnlögnum á
sjúkrahús.
Samstarf var tekið upp milli
félags- og tryggingamálaráðu-
neytisins og heilbrigðisráðuneyt-
isins og ráðist í viðamikla könn-
un og stefnumótun í samstarfi við
hagsmunaaðila. Stefnumótunin er
birt í drögum á heimasíðu félags-
og tryggingamálaráðuneytisins.
Átaksverkefnið Straumhvörf nær
yfir árin frá 2006 til 2010 og nær
til 160 einstaklinga á landinu öllu.
Markmiðið er að bjóða fólkinu bú-
setu í einstaklingsíbúðum og stoð-
þjónustu er eykur virkni fólks og
lífsgæði. Fjármögnun var ákveð-
in með lögum nr. 133/2005 en þar
er kveðið á um ráðstöfun á sölu-
andvirði Landsíma Íslands hf. og
ákveðið að verja 1.000 milljónum
króna í þessu skyni og til viðbót-
ar 500 milljónum króna frá Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra eða samtals
1.500 milljónum króna til stofn-
kostnaðar á árunum 2006 til 2010.
Aukinn rekstrarkostnaður á þess-
um fimm árum var áætlaður 855
milljónir króna, þar af er nýtt
fjármagn 650 milljónir króna,
sem kæmi til ráðstöfunar með
fjárlögum á sama árabili.
Þegar við vitum í hverju vandamálið er fólgið
er fyrst grundvöllur fyrir að ná tökum á því.
Næsta byrjendanámskeið verður
23. - 25. október n.k.
Endurkomufólk er boðið sérstaklega velkomið
Þeir sem hafa áhuga hafi samband í síma 568 3868
eða sendið póst á matarfi kn@matarfi kn.is
BORGARTÚNI 3 - 105 RVK - SÍMI: 568 3868 - WWW.MATARFIKN.IS
Esther Helga Guðmundsdótt ir
B.M. , Msci (nemi) , ráðgjaf i
Leiðarljós, meðferðahús
Við lýsum þér leið
OFFITA • ÁTRÖSKUN • MATAR/SYKURFÍKN
Vilt þú fi nna varanlega lausn?