Fréttablaðið - 09.10.2009, Síða 48

Fréttablaðið - 09.10.2009, Síða 48
24 9. október 2009 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Maria Shramko, sem starfar sem köku- skreytingarmeistari hjá Myllunni, vann til tveggja gullverðlauna og einna bronsverðlauna í alþjóðlegu matreiðslu- og bakarakeppninni The International Kremlin Culinary Cup sem var haldin í Rússlandi fyrr í mánuðinum. Keppn- in er sú umfangsmesta sinnar tegund- ar í Rússlandi og er keppt í hinum ýmsu greinum köku- og matargerðarlistar. Maria hlaut gullverðlaun fyrir brúðar- tertu og sykurskreytingu og brons fyrir karamelluskreytingu. Maria er úkraínsk að uppruna. Eig- inmaður hennar Sergei Shramko kom hingað til lands til að vinna fyrir Marel árið 1999 og fylgdu hún og börnin tvö á eftir. Maria er með meistarapróf í kökuskreytingum frá Rússlandi og hefur unnið hjá Myllunni æ síðan. En hvernig kom það til að hún ákvað að taka þátt í keppninni? „Kennarinn minn í Rússlandi hafði samband og hvatti mig til að taka þátt en ég sagði henni að ég teldi mig ekki tilbúna. Hún var á ann- arri skoðun og ákvað ég að slá til enda frábær áskorun og gott tækifæri fyrir mig til að halda áfram að þroskast í starfi,“ segir Maria en á meðan aðrir keppendur höfðu marga mánuði til að undirbúa sig hafði hún bara nokkr- ar vikur. Maria sótti um að taka þátt í tertuskreytingarhluta keppninnar en hver umsókn fer fyrir sérstaka inntöku- nefnd og er um sextíu prósentum um- sækjenda hafnað. Maria komst áfram og yfirgaf svæðið með fangið fullt af verðlaunum. „Það tók mig þrjá daga og svefnlaus- ar nætur að verða klár fyrir keppnis- daginn. Ég var harðákveðin í því að gera mitt besta en taldi ólíklegt að ég myndi vinna enda samkeppnin hörð. Velgengnin kom mér því skemmtilega á óvart,“ segir Maria, sem er staðráðin í því að fara aftur út að ári og koma þá heim með þrefalt gull. Hún er stolt af því að keppa fyrir hönd Íslands en var spurð að því ytra af hverju hún keppti ekki fyrir Rússland. Svarið var einfalt: „Ég bý og starfa á Íslandi. Þar eru börn- in mín alin upp og því keppi ég fyrir Ísland.“ Maria gerir mikið af veislutertum, sykur- og karamelluskrauti fyrir Myll- una. Hún er sannur listamaður og getur mótað nánast hvað sem er úr súkku- laði og sykri. Hana langar gjarnan til að kenna Íslendingum að gera fleira en sykurblóm enda hefur hún sitthvað fram að færa. vera@frettabladid.is MARÍA SHRAMKO: VANN TVÖ GULL OG BRONS Í BAKARAKEPPNI Í RÚSSLANDI Stefnir á þrefalt gull að ári STOLT AF ÞVÍ AÐ KEPPA FYRIR ÍSLAND Hér má sjá Mariu við sykurskreytinguna sem hún hlaut önnur gullverðlaunin fyrir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Kristmundar Finnbogasonar Hraunvangi 3, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeild- ar Landspítalans í Kópavogi og heimahlynningar Landspítalans fyrir frábæra umönnun og stuðning. Jóhanna Daðey Kristmundsdóttir Lárus Grímsson Pálmar Kristmundsson Sigríður Hermannsdóttir Ágústa Kristmundsdóttir Örn Bjarnason Hafdís Bára Kristmundsdóttir Þórir Ingibergsson Guðmundur Kristmundsson Kristín Sördal barnabörn og barnabarnabörn. Elsku faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Árnason Suðurbyggð 1, Akureyri, lést sunnudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 12. október kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hans er bent á Mæðrastyrksnefnd á Akureyri, reikningur 0302 13 175063, kt. 460577-0209. Þórarinn Stefánsson Sigurbjörg Jónsdóttir Sigrún Stefánsdóttir Yngvar Björshol Gunnhildur Stefánsdóttir Árni Björn Stefánsson Árni Stefánsson Herdís Klausen Páll Stefánsson Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir Ólöf Stefánsdóttir Ágúst Birgisson og barnabörn og barnabarnabörn. Útför ástkærs eiginmanns míns og föður okkar, Friðriks Árna Kristjánssonar Túngötu 23 Tálknafirði, fer fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 10. októ- ber kl. 14.00. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði. Nanna Júlíusdóttir, börn og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín,móðir, tengdamóðir, systir og amma, Susie Bachmann Depluhólum 10, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 4. okt- óber. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. október kl. 13.00. Páll Friðriksson Stefán Jóhann Pálsson Kristín Lilliendahl Regína Gréta Pálsdóttir Einar Sveinn Hálfdánarson Páll Heimir Pálsson Bryndís Skaftadóttir Gréta Bachmann og barnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, unnusta og amma, Sigríður Ólöf Sigurðardóttir Jörfagrund 25, Kjalarnesi, lést á heimili sínu sunnudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. október kl. 13.00. Sigurður Ólafur Oddsson Sandra Dögg Jónsdóttir Sigþrúður Oddsdóttir Jón Oddsson Oddur Már Oddsson Atli Björgvin Oddsson Davíð Trausti Oddsson Gústaf Jóhann Gústafsson barnabörn og aðrir aðstandendur. JOHN LENNON (1940-1980) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Lífið er það sem hendir þig er þú upptekinn skipulegg- ur annað.“ John Lennon stofnaði hina heimsfrægu hljómsveit Bítlana. Hann var myrtur 8. desember árið 1980 af geð- sjúkum aðdáanda. MERKISATBURÐIR 1962 Úganda hlýtur sjálfstæði frá Bretlandi. 1963 Skáldatími eftir Halldór Laxness kemur út. Bókin vekur mikla athygli, enda gerir höfundurinn upp við sósíalismann. 1965 Dagur Leifs Eiríkssonar hins heppna er í fyrsta skipti haldinn hátíðlegur á Íslandi. 1992 Ný brú yfir Markarfljót er vígð. Hún stytti hringveg- inn um fimm kílómetra. 2006 Norður-Kóreumenn til- kynna að þeir hafi fram- kvæmt sína fyrstu kjarn- orkutilraun. 2007 Yoko Ono afhjúpar Friðar- súluna í Viðey á afmælis- degi Johns Lennon. Fyrsta einkarekna sjónvarpsstöðin á Íslandi, Stöð 2, tók til starfa þennan dag árið 1986. Hún var stofnuð að frumkvæði Jóns Óttars Ragnarssonar og Hans Kristjáns Árnasonar. Valgerður Matthíasdóttir gekk svo til liðs við þá og var áberandi í út- litshönnun og dagskrárgerð stöðvar- innar frá upphafi. Dagskráin var byggð upp á að- keyptu afþreyingarefni, leiknu ís- lensku skemmtiefni og fréttum. Í byrjun árs 1987 voru áskrifend- ur um fimm þúsund, en þeir voru svo orðnir tæplega 30 þúsund fyrir árslok. ÞETTA GERÐIST: 9. OKTÓBER 1986 Sjónvarpsstöðin Stöð 2 tekur til starfa AFMÆLI BRANDON ROUTH leikari er 31 árs. NICKY BYRNE söngvari í Westlife er 31 árs.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.