Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2009, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 09.10.2009, Qupperneq 52
28 9. október 2009 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Rúmenska skáldkonan Herta Müller hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels í gær. Müller er fædd í Nitchidorf í Rúmeníu árið 1953 og tilheyrir þýskumælandi minnihlutahóp þar í landi. Faðir hennar barðist með þýska hernum og móðirin var flutt nauðungarflutningum til Sovétríkjanna í stríðslok og vann þar í þrælabúðum í fimm ár. Herta nam þýskar og rúmenskar bókmenntir við háskólann í Timisoara og hóf upp úr því að skrifa smásögur, sem gefnar voru út á bók árið 1982. Hún var tæplega þrítug og sætti þegar ritskoðun rúmenskra stjórnvalda, var hluti af hóp þýskumælandi höfunda sem kallaði sig Aktionsgruppe Banat. Árið 1984 var bókin gefin út óritskoðuð í Þýskalandi. Þremur árum síðar flúðu Müller og eiginmaður hennar síðan land árið 1987 af ótta við aðgerðir rúmensku leyni- lögreglunnar. Hennar höfuðverk er talið vera skáldsag- an Der Fuchs war damals schon der Jäger, sem kom út 1992. Bókin kom út hér á landi í þýðingu Franz Gíslasonar undir heitinu Enni- slokkur einvaldsins. Bókin fjallar um lokadaga kommúnistaeinræðisins í Rúmeníu. Í tilkynn- ingu akademíunnar segir að Müller hafi dregið upp mynd af landslagi hinna landlausu með einbeitni ljóðsins og hreinskilni hins lausa máls. Nóbelsverðlaun í bókmenntum BÓKMENNTIR Herta Müller Auglýsingasími – Mest lesið kl. 12 er uppboðsskrá birt á vefnum www.myndlist.is um hvað verð- ur selt á uppboði Gallerís Foldar á mánudagskvöld. Verkin verða til sýnis í Fold frá og með degin- um í dag fram á mánudag. Nýtt íslenskt verk um örlög ungrar stúlku sem hrekst að austan til velferðarríkis og lendir þar í mansali verður frumsýnt á Akureyri í kvöld. Höfundur og leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson, en það er lauslega byggt á kvikmynd Lukas Moodysson, Lilya 4ever. Handrit- ið byggði á örlögum rússneskrar stúlku í Stokkhólmi. Jón Gunnar vann leikritið meðan hann var við nám í Drama Centre í London. Lilja var frum- sýnd í The Contact Theatre í Manchester 2008 í leikstjórn Jóns Gunnars. Sýningin fékk mjög góða gagnrýni og meðal annars fimm stjörnur í Manchester Evening News. Verkið er sett upp í Rýminu, til- raunasviði LA í gömlu Dynheim- um. Leikmynd vinna þau saman, Jón Gunnar, Bjarki Árnason, Dýri Bjarnar Hreiðarsson, Sunna Björk Hreiðarsdóttir og Steingrímur Þorvaldsson. Búninga gerir Rann- veig Eva Karlsdóttir, en lýsingu annast Freyr Vilhjálmsson. Leikendur eru þau Jana María Guðmundsdóttir, María Þórðar- dóttir, Þráinn Karlsson, Atli Þór Albertsson, Ólafur Ingi Sigurðs- son og Hjalti Rúnar Jónsson. Þetta er saga um börn, fátækt, vændi, ást og svik. Þetta er mögn- uð saga um gamaldags þrældóm í nútímasamfélagi. – Saga sem verður að segja … Í leikskrá kemst leikhússtjórinn svo að orði: Man- sal hefur viðgengist í heiminum í áraraðir og hefur lengst af verið mest áberandi í löndum eins og Suður-Kóreu, Kambódíu, Taílandi og Kína. Eftir fall Berlínarmúrs- ins hafa fyrrum kommúnistarík- in þó tekið við sem stærsti mark- aður mansals. Mansal getur verið allt frá viðskiptum með börn til að stunda kynlíf til viðskipta með fólk til að stunda þrælkunarvinnu. Viðskipti með fólk í kynferðis- legum tilgangi er þó algengasta birtingarmynd mansals.“ Og hún klykkir út með þessum orðum: „Við verðum að horfast í augu við staðreyndir og opna umræðuna um þann vágest sem mansal og kynlífsiðnaður er. Við þurfum að fræða börnin okkar og varða veg- inn til framtíðar. Það er á okkar ábyrgð að í framtíðinni verði ekki hægt að nýta sér neyð barna, kvenna og karla og hneppa þau í ánauð.“ pbb@frettablaðið.is SAGAN AF LILJU Í RÝMINU LEIKLIST Natasja, vinkona Lilju, hefur lent í ógöngum. María Þórðardóttir í hlutverki sínu. MYND GRÍMUR BJARNASON/LA > Ekki missa af haustsýningu í Galleríi Ágúst. Sýningin markar upphaf þriðja starfsárs gallerísins. Listamannahópurinn er fjöl- breyttur en í honum eru Guð- rún Kristjánsdóttir, Hiroyuki Nakamura, Katrín Elvarsdóttir, Marta María Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð. Sýningin hefur fengið sérlega jákvæð viðbrögð en henni lýkur á morgun. Tilboðsmatseðill fyrir leikhúsgesti. Tilvalið fyrir stóra sem smáa hópa! Kringlukráin • Kringlunni 4-12 • 103 Reykjavík Sími:568 0878 • www.kringlukrain.is Við erum stolt af að geta boðið gestum okkar að sjá og heyra þessar goðsagnir íslensks skemmtanalífs og hvetjum því allt lífsglatt og sprækt fólk til að láta þetta ekki fram hjá sér fara! Ómar Ragnarsson Þuríður Sigurðardóttir Stórdans- leikur um helgina! Lúdó & Stefán Ath. aðeins þessa einu helgi! ! BJÓÐUM APÓTEKARANN Lyf á lægra verði í næsta nágrenni Apótekarinn hefur opnað í Þverholti, Mosfellsbæ, og býður lyf á lægra verði. Starfsfólk Apótekarans mun sem fyrr taka vel á móti þér og veita þér áfram góða þjónustu. Mjóddinni Reykjavík Melhaga Reykjavík Salavegi Kópavogi Smiðjuvegi Kópavogi Hafnarstræti Akureyri Þverholti Mosfellsbæ Opnunartími Mosfellsbæ mán.-fim. 10.00-18.00 föstudaga 10.00-18.30 laugardaga 10.00-14.00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.