Fréttablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 18
18 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Ísland og Færeyjar, kreppur og framtíð FYRSTI HLUTI AF FJÓRUM
FRÉTTASKÝRING
KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARSON
klemens@frettabladid.is
Enginn mælti í móti kreppuláninu
Þegar færeyska landstjórn-
in vildi bjóða Íslendingum
umtalsvert lán, strax eftir
hrunið í október 2008, mót-
mælti því enginn færeysk-
ur stjórnmálamaður. Þeir
lentu sjálfir í bankakreppu
á tíunda áratugnum og efast
ekki um að Íslendingar
komist skjótt og vel upp úr
dalnum. Þeir fylgjast betur
með störfum ráðherra sinna
en þeir gerðu fyrir kreppu.
Færeyingar buðu Íslendingum þrjú
hundruð milljónir danskra króna
að láni, strax í október 2008. Allir
stjórnmálaflokkar eyjanna stóðu á
bak við tillöguna. Þeim þótti sjálf-
sagt að hjálpa „stóra bróður“, eins
og sumir þeirra kalla Íslendinga.
Lánið nemur um 2,4 prósentum af
þjóðarframleiðslu eyjanna.
„Við ræddum þetta í landsstjórn-
inni og hringdum í formenn stjórn-
arandstöðuflokkanna og bárum
þetta undir þá. Við fengum strax
að vita að þeir styddu málið, að
þetta ætti að gera,“ segir Kaj Leo
Johannesen, lögmaður Færeyinga
og formaður Sambandsflokksins.
Eftir að lánið var borið undir
íslenska ráðamenn, sem þáðu það
með þökkum, var það kynnt á þingi
Norðurlandaráðs í Helsinki, 28.
október 2008.
Misheppnaður þrýstingur
Høgni Hoydal, formaður Þjóð-
veldisflokksins, hefur lýst því hér
í blaðinu að hugmyndin hafi verið
að þrýsta á hinar Norðurlanda-
þjóðirnar að gera slíkt hið sama.
Þannig hefði mátt forða aðkomu
AGS að málum. Þessari hugmynd
var ekki vel tekið af hinum þjóð-
unum. Jørgen Niclasen, utanríkis-
ráðherra og formaður Fólkaflokks-
ins, staðfestir þessa fyrirætlun um
þrýsting.
„Við vildum ekki setja skilyrði og
héldum að með okkar litla framlagi
myndum við þrýsta á hinar þjóðirn-
ar. En þær fóru að tala um AGS. Við
fengum líka AGS í okkar kreppu.
Það sem kom út úr því var að
kreppan okkar varð dýpri, en um
leið styttri,“ segir Niclasen.
Spurður hvort aðkoma AGS hafi
þá verið jákvæð eftir allt saman,
segir hann: „Ja, það var kannski
gott þegar við komumst upp úr
kreppunni aftur [hlær]. En það
hefði verið betra fyrir okkur að
hafa hana lengri og mýkri, því við
misstum jú hátt í fimmtán prósent
af fólkinu okkar. Sex til sjö þús-
und manns. Þau komu ekki öll til
baka.“
Voru í svipaðri stöðu 1992
Lögmaður Færeyinga segir, spurð-
ur um orsakir þess að Færeying-
ar buðu Íslendingum lánið, að það
sé „afar sársaukafullt þegar einn
okkar bestu vina berst í bökkum.
Við skiljum þetta sérstaklega vel í
Færeyjum því við vorum í nákvæm-
lega sömu málum 1992. Þegar ein-
hver missir ættingja, þá er auðveld-
ara að ræða við hann um fráfallið,
ef þú hefur fundið fyrir því sama á
eigin kroppi,“ segir hann.
Færeyingar hafi staðið frammi
fyrir sömu spurningunni á sínum
tíma: „Hvernig gátu svona fáir
menn gert svona mikið gegn eigin
landi?“ Hann telur að Íslendingar
verði þó ein af fyrstu þjóðunum út
úr kreppunni, enda með margar
náttúruauðlindir.
Utanríkisráðherrann tekur í
sama streng. Lánið hafi verið „ofur-
eðlilegt“ fyrir Færeyinga.
„Þessar þjóðir hafa alltaf hjálpað
hvor annarri og staðið saman sem
bræðraþjóðir. Við höfum einnig
átt í erfiðleikum í Færeyjum og þá
var okkur rétt bræðrahöndin, sem
leyfði okkur að fiska við Ísland,“
segir hann.
Formaður hins kristilega Mið-
flokks, læknirinn Jenis av Rana,
var spurður hvort enginn í stjórn-
arandstöðu hefði sagt Íslendinga
geta sjálfum sér um kennt, að þeir
hefðu verið ábyrgðarlausir: „Nei,
það held ég ekki, kannski hefur ein-
hver sagt það úti í bæ. En ef einhver
er í neyð þá hjálpar maður honum.
Maður spyr ekki hví hann sé í neyð.
Það gerir maður kannski frekar
eftir á. Því þetta var líka mikið
áfall fyrir okkur. Ég held að Fær-
eyingar hafi alltaf litið á Íslendinga
sem stóra bróður. Við höfum verið
stoltir af ykkur. Það var ekki hinn
almenni Íslendingur sem skapaði
kreppuna. Hann hefur kannski
valið ranga stjórnmálamenn og for-
ingja, en ekki kreppuna.“
Lærdómur Færeyinga
Um hvað Færeyingar hafi helst
lært af kreppunni sinni, segir Kaj
Leo lögmaður: „Ég hef lært að
stundum er gott að koma of seint
út á lestarstöð. Öll gylliboð bank-
anna síðustu ár, við misstum af
þeim, sem betur fer. Við tókum
ekki áhættu. Þetta er íhaldssemi.
Reynslan af kreppunni okkar situr
enn í fólki. Þetta voru hörmungar
fyrir okkur,“ segir lögmaðurinn og
vísar til fólksflóttans.
„Við bentum á Danmörku í fyrstu,
en þetta voru okkar stjórnmála-
menn sem tóku rangar ákvarðan-
ir. Það er afar mikilvægt að kenna
ekki öðrum um þegar maður lendir
í vanda, en líta frekar í eigin barm.
Það geta allir dottið af reiðhjóli og
það er ekkert til að skammast sín
fyrir. En ef þú reynir ekki að reisa
hjólið við og byrja aftur, það er
skömm. Og það gerðum við og það
sé ég að Íslendingar eru að gera:
halda áfram.“ Þjóðirnar tvær á
hjara veraldar hafi oft lent í vanda,
en staðið saman. Í gengum tíðina
hafi Færeyingar starfað á Íslandi
þúsundum saman, þegar illa stóð á
heima fyrir.
Hlutur Danmerkur
Líkt og á Íslandi komu erlend-
ir bankar að málum, þegar hag-
kerfi frændþjóðanna lentu í vand-
ræðum. Danir áttu Færeyjabanka
og vörðu hagsmuni sína, svo ekki
kæmi til greiðslna úr tryggingar-
sjóði innistæðueigenda. Færeyska
landsstjórnin tók á sig stóran hluta
tapsins og voru ekki allir sáttir við
það.
Høgni Hoydal segir að ráðin hafi
einfaldlega verið tekin af löndum
sínum. Færeyjabanki hefði átt að
greiða eigin reikninga.
„Við vorum að reyna að bjarga
okkar málum en áttum þá líka að
borga fyrir danska bankann. Þetta
var eins og ef þið hefðuð krafist
bóta frá Bretum fyrir Icesave-
reikningana!“ segir hann.
Høgni er þó þeirrar skoðunar
að Færeyingar beri sína ábyrgð á
bankahruninu. Allar götur síðan
hefur flokkur hans unnið að því
að reisa veggi milli atvinnulífs og
stjórnmálamanna, sem voru þunnir
fyrir. Einnig að því að auka eftirlit
með ráðherrum, en kjördæmapot-
arar björguðu gjarnan fyrirtækj-
um í heimabyggð sinni um lán gegn
ótryggum veðum. Komu jafnvel
að rekstri sömu fyrirtækja líka.
Offjárfesting, sérstaklega í sjáv-
arútvegi, var því mikil, allt rekið á
fjármagni að utan.
Meðal þess sem gert var eftir kreppuna í
Færeyjum, til að koma í veg fyrir að hún gæti
endurtekið sig, var að styrkja eftirlit með fram-
kvæmdarvaldinu.
Ráðherrum var meinað að sitja á þingi og
settar voru reglur um ráðherraábyrgð,
en áður var ríkisstjórnin samábyrg
gagnvart ákvörðunum ráðherra. Kaj
Leo Johannesen lögmaður segir
að þetta sé það besta sem komið
hafi út úr kreppunni.
„Við styrktum stjórnsýsluna. Hver
ráðherra var látinn bera ábyrgð á
sínum gjörðum. Áður var ábyrgðinni
dreift á ríkisstjórnina í heild.
Síðan 1995 hafa 20 til 25
ráðherrar þurft að segja af sér
vegna þessa. Þetta er mjög
mikilvægt því þetta er lítið
land. Hér eru allir svo nánir.
Svona tengsl urðu einnig til vandræða í Dan-
mörku nýlega og þeir eru margar milljónir!“
Lögmaðurinn segir að þegar mál komi upp,
sem varða embættisfærslur ráðherra, séu þau
rædd í ríkisstjórn.
„Þá tölum við um það, hvort það færi okkur
frá markmiðum kjörtímabilsins. Það er ekki
bara jákvætt að reka ráðherra, það má mis-
nota í pólitískum tilgangi.
Við erum með umboðsmann Lögþings-
ins, því við þurfum að hafa algjörlega
hlutlaust embætti til að fara með þessi
mál. Allir flokkar þurfa að samþykkja hann.“
Einnig er til staðar landsstjórnarmála-
nefnd þriggja þingmanna sem
fylgist með ráðherrunum.
Hana má biðja um að
taka mál upp og athuga
hvort ráðherrar hafi gert
eitthvað af sér.
JUKU EFTIRLIT MEÐ RÁÐHERRUNUM
Utanríkisráðherra Færeyja, Jørgen Niclasen, komst fyrst á þing árið
1989.
Einmitt það ár segir hann Færeyinga hafa byrjað að finna fyrir
kreppunni sinni. Árið1992 hafi hún svo skollið á af fullum þunga.
„Síðan náðum við botninum 1994 en 1996 vorum við á góðri
uppleið. Segja má að 1998 hafi hún svo verið búin. Hún varði
í svona átta til tíu ár. Fyrri helminginn fórum við niður og þann
seinni upp,“ segir hann.
„En ég verð að segja að í miðri kreppu finnst manni að hún
geti einungis versnað og engin leið sé út. Maður sér ekki ljósið við
endann á göngunum. En mín reynsla, og það sem ég hef lesið í
færeyskri og íslenskri sögu, segir mér að það gefi alltaf á bátinn öðru
hverju. En við vestnorræna fólkið finnum leið út úr ógöngunum. Og
ef þú spyrð mig hverju ég trúi, þá trúi ég á íslensku þjóðina, ég held
að engin þjóð í heiminum sé jafn hugrökk og hún, og ég trúi því að
kreppan á Íslandi verði ekki langvinn. Þið finnið einhverja leið og þið
finnið réttu leiðina fyrir ykkur, það er ég viss um. Árið 1994 hélt
ég að kreppunni myndi aldrei linna, en það tók bara tvö
ár og þá hafði allt breyst að nýju. Við komumst út og
þið getið það líka,“ segir utanríkisráðherrann.
Í MIÐRI KREPPU VIRÐIST ENGIN LEIÐ ÚT
Annika Smith
treystir sér ekki til
að tala um færeysku
kreppuna, þegar
blaðamaður stoppar
hana á götunni í
Þórshöfn, því
hún var í skóla
í Danmörku
þegar kreppan reið yfir á tíunda
áratugnum. Hún segir að íslenska
hrunið beri oft á góma í Færeyj-
um: „Og fólk spyr sig: hvert fóru
allir þessir peningar?“
Fólk voni að Íslendingar komist
skjótlega upp úr kreppunni og að
það takist að ná glæpamönnun-
um sem ollu henni.
Ninni Danielsen er
ellilífeyrisþegi sem
segir í óspurðum
fréttum að maður
sinn hafi margoft
farið til Íslands
en hún ekki
komist lengra
en að setja slíka heimsókn á
stefnuskrána. Um hrunið segir hún
aðeins: „Við erum komin upp aftur
og það gerið þið líka.“
Þá nefnir Ninni að Íslend-
ingar séu líkir Færeyingum, en
Danir ekki. „Og ég hef heyrt að
Íslendingar vilji frekar að við tölum
færeysku við þá en dönsku.“
Anfinn rekur gistiheimilið Bládýpi
í Þórshöfn. Hann telur
að Íslendingar verði
snöggir að bjarga
sér út úr kreppunni,
enda séu þeir
drífandi fólk. „Og
þið eruð velkomin
til Færeyja til að vinna
á meðan,“ segir
hann.
YKKUR ER VEL-
KOMIÐ AÐ VINNA
Í FÆREYJUM
„Auðvitað verður maður hugsi þegar
svokallaðar vinaþjóðir, norrænu
þjóðirnar, með Svía í fararbroddi,
fínstilla hinn norræna kór sem
kyrjar núna einum rómi:
„Enga hjálp til Íslands,
nema þeir gangi áður að
afarkostum Hollendinga
og Breta.“ Það eru bara
Færeyingar sem
reynast vinir í
raun,“ sagði
Ögmundur
Jónasson,
þáverandi
heilbrigðisráðherra, í viðtali á Rás
tvö, 5. ágúst.
Árni Finnsson í Náttúruvernd-
arsamtökum Íslands sér hlutina
öðruvísi: „Til eru þeir þing-
menn sem halda að
Færeyingar séu okkar
einu vinir en þá er
vinátta skilgreind sem
skilyrðislaus lánveiting
til Íslands. En má ekki
líka segja að vinur sé
sá sem til vamms
segir?“
TVENNS KONAR VINÁTTA
ÞÓRSHÖFN
KLAKSVÍK
Straumey
Austurey
Viðey
Fuglaey
Svíney
Mykines Vágar
Karlsey
Konuey
Borðey
Nólsey
Sandey
Suðurey
Koltur
Hestur
Skúvoy
Stóra Dímun
Litla Dímun
Jarðgöng
Vegur
Færeyjar
ROLLAN OG RISINN Í sjónum til vinstri standa drangarnir frægu, Risinn og Kerlingin. Færeysk þjóðsaga segir að þau hjúin hafi
ætlað að draga eyjarnar til Íslands, en þá hafi sólin komið upp og þau orðið að steini. Því miður fyrir Færeyjar, segja sumir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ó
LM
FR
ÍÐ
U
R