Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 22
22 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Gallaðar vörur gjaldþrota fyrirtækja
fást yfirleitt ekki bættar og sitja
kaupendur því uppi með skaðann,
segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir
lögfræðingur Neytendasamtakanna.
Fyrirspurnum um málið hefur rignt
yfir Neytendasamtökin undanfarið ár í
takt við fjölgun gjaldþrota. Hildigunn-
ur segir fólk forvitnast um hvort það
fái bætur fyrir gallaða vöru vilji svo til
að fyrirtækið sem það keypti vöruna
af sé farið í gjaldþrot. Hildigunn-
ur segir að hægt sé að
leggja kröfu í þrotabú
vegna gallaðrar vöru
en slík krafa falli í flokk
almennra krafna sem
allur gangur sé á hvort
fáist greiddar. Auk þess sé
töluvert flókið að leggja fram
kröfu í þrotabú og margir heykist
á því. Almennt gilda þær reglur að
hægt er að skila vöru vegna galla í allt
að fimm ár eftir að hún var keypt.
■ Gallaðar vörur:
Engar bætur frá
gjaldþrota búðum
Útgjöldin
> Kílóverð á skinku í ágúst ár hvert.
2005 2006 2007 2008 2009
1.
8
2
5
1.
91
0
1.
9
4
4
2
.2
5
4
2
.4
8
8
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Allt að 5.000 króna verð-
munur er á dekkjaskipt-
ingu, umfelgun og jafnvæg-
isstillingu samkvæmt nýrri
verðkönnun ASÍ. Reyni
bara að vera sanngjarn,
segir eigandi eins ódýrasta
verkstæðisins á höfuðborg-
arsvæðinu.
Mikill verðmunur er á skiptingu,
umfelgun og jafnvægisstillingu bíla
eins og ný verðkönnun ASÍ leiðir
í ljós. Mestur í krónum er hann á
jeppum á sautján tommu stálfelg-
um, eða 5.000 krónur, sem er 67%
verðmunur. Í þeim flokki var dýr-
asta verkstæðið Bílabót á Sauðár-
króki en það ódýrasta Hjólbarða-
verkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði.
Dekkjaskipti, umfelgun og jafn-
vægisstilling á smábílum á fimmt-
án tommu felgum, eins og til dæmis
Toyota Yaris, var dýrast hjá Hjól-
barðaþjónustu Áhaldaleigunnar
í Vestmannaeyjum þar sem hún
kostaði 7.500 krónur en ódýrast hjá
Hjólbarðaþjónustu Hafnarfjarðar,
eða 4.990 krónur. Verðmunurinn er
2.510 krónur, eða 50 prósent. Þjón-
ustan fyrir smábíla hefur hækk-
að að meðaltali um sex prósent frá
könnun sem ASÍ gerði hinn 17. apríl
síðastliðinn.
Hjólbarðaþjónusta Hafnarfjarð-
ar var einnig ódýrasta verkstæð-
ið fyrir skipti á minni meðalbíl á
sextán tommu dekkjum, eins og til
dæmis Ford Focus. Þeir taka 4.990
krónur fyrir verkið, en hæsta verð-
ið þar var einnig hjá Hjólbarðaþjón-
ustu Áhaldaleigunnar í Vestmanna-
eyjum, eða 8.000 krónur.
„Ég hef svo sem ekki verið að
gera neitt sérlega út á að vera
ódýr,“ segir Hörður Þráinsson,
eigandi Hjólbarðaþjónustu Hafn-
arfjarðar. „Ég reyni bara að vera
sanngjarn og meta hvað hver ein-
ing kostar, við keyrum líka bara á
einu verði, án afsláttar.“
Hæsta verðið á þjónustu fyrir
jepplinga með sautján tommu álf-
elgum var hjá Hjólbarðaverkstæði
Kaldasels í Kópavogi, 9.980 krónur,
en lægsta verðið er hjá Hjólbarða-
verkstæði Óskars, Fáskrúðsfirði,
6.000 krónur. Munar þar nær fjög-
ur þúsund krónum, eða 69 prósent-
um.
Þjónustan fyrir jepplinga á sautj-
án tommu stálfelgum var ódýrust
hjá Bílabjörgun á Akureyri, 5.900
krónur, en dýrust hjá Hjólbarða-
verkstæði Kaldasels, eða 7.290
krónur.
Í hálkulausri tíð er lítið að gera í
dekkjaskiptum segir Hörður. „Það
kom gott skot um daginn þegar
snjórinn kom, en svo um leið og
tíðin batnar þá hugsa Íslendingar
ekki um dekkjaskipti, það tekur
enginn við sér fyrr en menn eru
fastir á planinu heima hjá sér.“
sigridur@frettabladid.is
Sjötíu prósenta verðmunur
RÓLEGT Í HLÝINDUNUM Yfirleitt er lítið að gera á hjólbarðaverkstæðum þegar tíðin er
góð eins og nú er, segir Hörður Þráinsson, eigandi Hjólbarðaþjónustu Hafnarfjarðar,
sem kom vel út úr verðkönnun ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MEÐALVERÐ Á DEKKJASKIPTUM
Það borgar sig að kanna verð áður en farið er af sumardekkjum yfir á vetr-
ardekk, verðmunur á milli verkstæða er það mikill. Hér er meðalverðið sem
ágætt er að hafa til hliðsjónar áður en haldið er af stað.*
smábíll15“ minni meðalbíll 16“ jepplingur 17“ jeppar 17“
álfelgur stálfelgur álfelgur stálfelgur álfelgur stálfelgur álfelgur stálfelgur
6.552 6.127 6.639 6.166 8.164 7.817 10.016 9.556
*KÖNNUNIN VAR GERÐ HJÁ 49 HJÓLBARÐAVERKSTÆÐUM UM LAND ALLT Á SKIPTINGU, UMFELGUN OG JAFNVÆGISSTILLIGU,
DEKKJAHÖLLIN VILDI EKKI TAKA ÞÁTT. SJÁ NÁNAR WWW.ASI.IS.
Verðandi foreldrar þurfa að tryggja
sér bílstól áður en barn kemur í heim-
inn. Bílstólar fyrir yngstu börnin eru
yfirleitt fyrir börn allt að 13 kílóum
að þyngd og gefið upp að þeir dugi
fyrsta árið þó að fæstir noti þá senni-
lega lengur en níu mánuði. Bílstólar
fást í ýmsum sérverslunum með
barnavörur. Stólar fyrir þau yngstu
kosta 25.990 krónur í Baby Sam og
29.990 í Fífunni. Í Ólivíu og Óliver
eru ungbarnastólar á bilinu 21.000 til
64.900, sá síðastnefndi endist reynd-
ar upp í 18 kíló. Viðskiptavinir Sjóvár
og Varðar fá afslátt í þeirri verslun.
Hjá VÍS er hægt að leigja slíka barna-
stóla og kostar það 950 á mánuði
fyrir viðskiptavini og 1950 fyrir aðra. Á
ári þýðir það 11.400 fyrir viðskiptavini
og 23.400 kr. fyrir aðra. Þar er einnig
hægt að gera svokallaðan kaupsamn-
ing, greiða eina upphæð, 34.900 fyrir
viðskiptavini, eða 44.900 og fá þá
nýja stóla handa börnum þegar þau
vaxa upp úr þessum litlu og eignast
fólk þá síðasta stólinn sem er fyrir
börn þyngri en 15 kíló.
■ Hvað kostar?
Bílstóll fyrir ungbarn
Þar sem ég rek
hvorki stórt
heimili né er með
barnaskara tengj-
ast mín húsráð
ekki heimilinu.
Húsráðin eru samt
óbrigðul og frábær
redding. Ég lenti í
því einu sinni að
að ég átti fallegan loðkeip sem fór úr
hárum – í einu ónefndu brúðkaupi var
ég varla viðræðuhæf, því hárin fuku
upp í og framan í fólk. Ég brá á það
ráð að setja keipinn í sólarhring í frysti,
og viti menn – hárlosið hætti. Einnig
getur verið ferlega vandræðalegt og
leiðinlegt að fá tyggjó í buxur eða
jakka – málið er þá að skella flíkinni
inn í frysti og mylja tyggjóið úr.
GÓÐ HÚSRÁÐ
LOÐKEIPINN Í FRYSTINN
■ Erla Tryggvadóttir
Neytendasamtökin halda námskeið
í heimilisbókhaldi fyrir félagsmenn
sína um næstu helgi. Aðgangur
að námskeiðinu er ókeypis fyrir
félagsmenn en ársgjald fyrir aðild
að samtökunum er 4.300 krónur.
Stuðst er við heimilisbókhaldsforrit
sem félagsmenn fá aðgang að við
skráningu í samtökin.
■ Heimilisbókhald
Námskeið og forrit
„Ég held að bestu kaupin hafi verið þegar ég
keypti trampólín í garðinn,“ segir Matthías
Imsland, forstjóri Iceland Express. Trampólínið
keypti hann fyrr í ár. „Þetta er búið að veita
börnunum mínum svo ótrúlega mikla ánægju.
Þau virðast ekki þreytast á að hoppa
og skoppa á þessu og ánægjuhrópin
létta manni lundina mjög mikið,“ segir
hann. Björgunarsveitir brýna reglulega
fyrir fólki að tjóðra slík trampólín föst
svo þau fjúki ekki í illviðrum. Þetta
hefur ekki truflað Matthías. „Það er svo
skjólsælt hjá mér að það sleppur alveg,“
segir hann. „Allavega hingað til. Maður
þarf kannski að koma aftur í þennan
dálk eftir ár þegar þetta hefur fokið.
Þá verður það komið í verstu
kaupin.“
Verstu kaupin segist Matthías
hafa gert þegar hann var við nám í Svíþjóð. „Ég
flutti út og var tölvulaus. Þá sá ég auglýstan
tölvuturn sem var samsettur af einhverjum
ódýrum íhlutum. Þetta var samt glænýtt og alveg
hræódýrt og ég hélt ég væri að gera hrikalega
góð kaup. Það endaði með því að ég keypti
þetta apparat, það kostaði nokkra tugi þús-
unda. Það tók mig tvær vikur að fá þetta til
að virka, það var alltaf eitthvað bilað.
Síðan var ég að skrifa lokaritgerðina
mína á þessa tölvu. Það endaði með
því að hún hrundi það olli mér nokkurra
vikna tjóni í ritgerðarsmíðum. Ég fékk
hana aldrei til að virka
aftur. Þetta var bara svona
fjórum vikum eftir að ég
keypti hana. Þetta kennir
manni að velja ekki allt-
af ódýrasta kostinn.“
NEYTANDINN: MATTHÍAS IMSLAND, FORSTJÓRI ICELAND EXPRESS
Tapaði ritgerðarvinnu í ónýtri tölvu
Húsgagnahöllinni, sími: 585 7239
Í kvöld
verðum við með opið hús fyrir alla
skot- og stangveiðimenn í verslun
okkar í HÚSGAGNAHÖLLINNI.
Léttar veitingar í boði.
Allir velkomnir.