Fréttablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 15. október 2009 3
Tískuvika hófst í París 30. september með til-heyrandi fjöri jafnt innan sem utan sýning-
arpallanna og hvert kampavíns-
teitið fylgdi öðru með tilheyr-
andi stjörnustríði. Þó að tískan
hafi ekki þvegið af sér öll merki
kreppu og samdráttar gætti þó
ákveðinnar sköpunargleði og
mikil litaveisla var í boði hjá
mörgum hönnuðum.
Hjá Dior var John Galliano
innblásinn af sakamálamynd-
um Hollywood frá fjórða ára-
tug síðustu aldar og fyrirsæt-
urnar ljóshærðar með bylgjur
í hárinu í anda Övu Gardner og
Lauren Bacall. Kjólarnir voru
því margir síðir og afskap-
lega kvenlegir. Hönnunin var
litrík og glæsileg þó án þess
að vera of flottræfilsleg enda
þætti það ósmekklegt á þess-
um erfiðu tímum. Flíkurnar eru
mikið til úr léttu silkimússilíni
og stundum líkt og undirfötin
væru orðin að flíkum, allt meira
og minna gegnsætt. Silkið var
bleikt og grænt en einnig ljóst
og með stöku hlébarðamunstri.
Nokkuð síðan að John Galliano
leitar ekki beint í arfleið meist-
ara Dior heldur enn lengra aftur
í tímann.
Hvort það er nýjung sem
á eftir að ryðja sér til rúms í
tískuhönnun eða ekki þá fylgdi
nýjum hönnuði Ungaro, Estrellu
Archs, sérkennilegur aðstoðar-
maður, Lindsay Lohan sem á að
vera hönnuðinum til ráðgjafar.
Reyndar hafa hönnuðir komið
og farið hjá tískuhúsi Ungaro
síðan hann dró sig í hlé 2004.
Lindsay Lohan, sem reyndar er
þekktari fyrir afvötnunarmeð-
ferðir og nokkrar smámyndir í
Hollywood en tískuráðgjöf, á að
samræma hönnun og ráðgjöf frá
dæmigerðum glamúr-viðskipta-
vini og ekki verra að hafa smá
hneyksli í kaupbæti sem trygg-
ir umfjöllun í slúður- og tísku-
blöðum (sönnunin hér að þetta
virkar!). Reyndar ekki í fyrsta
skiptið sem framkvæmdastjór-
inn, Mounir Moufarrige, tekur
einkennilegar ákvarðanir en sá
hinn sami rak Karl Lagerfeld
frá Chloé árið 1997 og treysti
óþekktum hönnuði fyrir list-
rænni stjórnun Chloé en það var
Stella McCartney. Enginn efast
um þá ákvörðun í dag. Hönnun-
in hjá Archs var trygg Ungaro í
sterkum litum og suðrænum stíl.
En Stella McCartney var á
sinni sýningu innblásin af sjö-
unda áratugnum ,,ást og frið-
ur“ og mátti jafnvel ímynda sér
móður hennar, Lindu, klædda
að þessum hætti. Stella sem er
heitur andstæðingur loðfelda
og mjög upptekin af umhverf-
isvænni tísku fótar sig sífellt
lengra á þeirri braut í hönnun
sinni með efnisvali og fram-
leiðsluaðferðum
Á stærstu sýningarnar mætti
iðulega Anna Wintour, hinn
frægi ritstjóri bandaríska
Vogue, sem er fyrirmynd per-
sónu ,,Djöfullinn klæðist Prada“
en annars mátti víða sjá R‘n‘B-
stjörnuna Rihönnu, Janet Jack-
son og Catherine Deneuve.
bergb75@free.fr
Litagleði og kampavín á tískuviku
Nú gefst körlum kostur á að
hanna sínar eigin skyrtur á
Netinu.
Á vefsíðunni www.ShirtsMyWay.
com gefst körlum kostur á að
hanna sínar eigin skyrtur. Útfærsl-
urnar eru óteljandi og er hægt að
velja mismunandi efni, snið, kraga,
liti, ermahnappa og margt fleira.
Þeir Peter Crawfurd og Michael
Yang opnuðu síðuna fyrr á þessu
ári en hún er frábrugðin flestum
hefðbundnum sölusíðum sem ein-
ungis bjóða upp á tilbúna vöru.
Síðan er einföld og aðgengileg og
er hægt að leika sér fram og aftur
við að búa til stutterma, langerma,
aðsniðnar, víðar, skræpóttar og
einlitar skyrtur.
Skyrturnar eru framleiddar í
Kína en áttatíu prósent viðskipta-
vina hafa hingað til verið Banda-
ríkjamenn. Þar á eftir koma Norð-
menn. Þeir Yang og Crawfurd
binda vonir við að geta boðið upp á
sams konar síðu fyrir konur þegar
fram líða stundir. - ve
Karlar hanna
eigin skyrtur
Á síðunni er hægt að hanna skyrtur af
öllum stærðum og gerðum.
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Marc Jacobs og Naomi Camp-
ell vinna að nýju verkefni sem
styðja mun við góðgerðaverk-
efni.
Hvíti borðinn er eitt af þeim verk-
efnum sem Sarah Brown, eigin-
kona breska forsætisráðherrans,
hefur tekið sérstaklega undir sinn
verndarvæng.
Verkefnið er alþjóðlegt og er
samstarfsverkefni stofnana og ein-
staklinga í um 142 löndum. Með því
er stefnt að því að fækka dauðsföll-
um mæðra um víða veröld og gera
meðgöngu og fæðingu sem hættu-
lausasta fyrir konur og börn.
Þekktar stjörnur veita slíkum
verkefnum oft góðan meðbyr og
nú hafa Marc Jacobs, aðalhönnuð-
ur Louis Vuitton, og ofurfyrirsæt-
an Naomi Campell tekið höndum
saman til að styrkja átakið.
Mun Louis Vuitton gefa hluta
af söluágóða tösku úr nýju vor- og
sumarlínunni 2010 sem hönnuð
er af Jacobs. Naomi, sem er einn
talsmanna hvíta borðans, heim-
sótti höfuðstöðvar Louis Vuitt-
on í París nýlega til að velja tösk-
una. Hún valdi tösku úr kakíefni
og málmkenndu leðri. Taskan
kemur í verslanir Louis Vuitton í
mars, sama dag og 100 ár verða
liðin frá fyrsta alþjóðlega mæðra-
deginum.
Nánar má fræðast um verkefni
Hvíta borðans á vefsíðunni www.
whiteribbonalliance.org.
Marc og Naomi ljá
mæðrunum lið
Naomi með töskuna sem hún valdi en hluti af söluágóða rennur í sjóð Hvíta borðans.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY