Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 42

Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 42
 15. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● sófar Þegar hönnuðir gefa hugmyndafluginu lausan tauminn verður útkoman oft æði skrautleg. Sófum er oft ætlað meira og göfugra hlutverk en að standa sem nytjahlutir fyrir framan sjónvarpið. Fagur- kerar hafa notað þá til að veita rými vissa stemningu og skipta þá þægindin oft síður máli en útlitið. Hér má líta nokkra sófa sem vissulega eru sérstæðir þótt litlum sögum fari af notagildi þeirra. - sg Sérstæð form og fögur Þessi sófi heitir Woush og er eftir Zaha Hadid. Sófinn er nærri fjögurra metra langur og mjög sérstakur í laginu. Lockhead Lounge er álstóll úr smiðju Marcs Newson. Eitt eintak hans var á dögunum selt fyrir 1,1 milljón punda. Stóllinn komst fyrst í fréttirnar þegar söngkonan Madonna notaði hann í tónlistar- myndbandi árið 1999 við lag sitt Rain. Segulstál heitir þessi sófi og dregur heiti sitt vafalaust af löguninni. Sófinn Moraine eftir hina bresk/íröksku Zaha Hadid. Joe sofa eftir ítölsku hönnuðina Lomazzi, D’Urb ino og De Pas var hannaður til heiðurs horna- boltamanninum Joe DiMaggio. Sykurpúðasófi eftir George Nelson. Marilyn kallast þessi sófi sem alsettur er Swarovski-kristöllum. Dalilips heitir þessi skemmtilegi sófi úr smiðju spænska listmálar- ans Salvadors Dalí. Listamaðurinn hannaði sófann í samvinnu við Oscar Tusquets árið 1972, fyrir hið svokallað Mae West hebergi á Dalí-safninu í Figueres á Spáni. Meira en þrír áratugir liðu þar til hafist var handa að framleiða sófann fyrir almennan markað og fæst hann nú í nokkrum útgáfum: í þeim bleika lit sem þeir Dalí og Tusquets hugsuðu sér hann upp- haflega og svo rauðum, svörtum og hvítum að auki. Sjá heimasíðu Bd Barcelona de- sign, www.bdbarcelona.com/. Kúrt í kyssilegum vörum Dalí hugsaði sér sófann upphaflega í bleiku en hann er nú fáanlegur í fleiri litum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.