Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 70
54 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabla-
KÖRFUBOLTI Keppni í Iceland
Express-deild karla hefst í kvöld
með þremur leikjum. Íslands-
meistarar KR sækja FSu heim, ÍR
fær Njarðvík í heimsókn og Snæ-
fell tekur á móti Hamri.
KR á titil að verja frá síðasta
tímabili en mætir til leiks með
mikið breytt lið. Grindavík er
spáð titlinum í ár og Benedikt Guð-
mundsson er sammála þeirri spá.
„Grindavík er augljós kostur í
fyrsta sætið enda með sterkasta
liðið eins og staðan er í dag. Það
hafa orðið litlar breytingar á lið-
inu og ef Kaninn er góður verður
erfitt að stoppa þá. Það eina sem
þeir eiga eftir að sakna er Helgi
Jónas. Ég held að liðið eigi eftir að
sakna hans meira en margur held-
ur,“ sagði Benedikt.
Snæfelli var spáð öðru sæti
deildarinnar á árlegum kynning-
arfundi KKÍ en KR aðeins þriðja
sæti. Benedikt er ekki alveg sam-
mála þeirri spá.
„Ég set KR í annað sætið en
Snæfell í það þriðja. Ég er kannski
pínuhlutdrægur en ég hef mikla trú
á þessum strákum hjá KR. Menn
eru mikið að bera liðið saman við
það sem var í fyrra en þá gleym-
ist stundum að flestir þessara
stráka voru í liðinu 2007 sem þá
varð einnig meistari,“ sagði Bene-
dikt sem hefur einnig trú á fyrr-
um aðstoðarmanni sínum, Inga
Þór Steinþórssyni, sem nú stýrir
liði Snæfells.
„Snæfelli hefur gengið mjög vel
á undirbúningstímabilinu. Þeir
verða samt að fá sér Kana ef þeir
ætla að eiga möguleika á titlinum,“
segir Benedikt. „Svo er eðlilegt
að Breiðablik og FSu sé spáð falli.
Bæði lið hafa misst mikið. Vetur-
inn verður þungur fyrir bæði lið.“
henry@frettabladid.is
Grindavík er með sterkasta liðið
Benedikt Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari karlaliðs KR og núverandi þjálfari kvennaliðs félagsins, spáir
því að Grindavík hirði Íslandsmeistaratitilinn í ár. Hann segir eðlilegt að spá Breiðablik og FSu falli.
MUNU LYFTA OFTAR Leikmenn Grindavíkur munu lyfta fleiri bikurum í vetur ef spá
þjálfara, fyrirliða og forráðamanna gengur eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Charlie Davies, leik-
maður Sochaux í Frakklandi og
fastamaður í bandaríska lands-
liðinu, slasaðist þegar hann lenti
í slæmu bílslysi í Virginíu-ríki í
Bandaríkjunum.
22 ára gömul kona lést í
árekstrinum en ástand Davies er
sagt vera alvarlegt en stöðugt.
Hann fótbrotnaði illa og fór í
aðgerð vegna þessa.
Meiðslin eru ekki lífshættuleg
en óvíst er nú um þátttöku hans
á HM í Suður-Afríku á næsta ári.
Það yrði nokkur blóðtaka fyrir
Bandaríkjamenn ef Davies getur
ekki spilað.
Bandaríkjamenn hafa þegar
tryggt sér þátttökurétt í úrslita-
keppni HM en liðið mætir Kosta-
ríku í undankeppninni í kvöld.
- esá
Áfall fyrir Bandaríkjamenn:
Landsliðsmað-
ur í bílslysi
FÓTBOLTI Forráðamenn Barcelona
segja ekkert vera hæft í þeim
ásökunum að nýr samningur
Lionels Messi stríði gegn reglum
FIFA.
Samningur Messi er til árs-
ins 2016 en forseti heimssam-
taka knattspyrnumanna segir að
samningar megi ekki vera lengri
en til fimm ára í senn. Hafa sam-
tökin kvartað til FIFA vegna
þessa samnings.
Forráðamenn Barcelona segj-
ast ekki hafa fengið nein skeyti,
hvorki frá leikmannasamtökun-
um né frá FIFA.
Í yfirlýsingu félagsins kemur
einnig fram að samningurinn sé
í samræmi við öll lög og þar á
meðal lög FIFA en þeir segja að
þar komi fram að samningur geti
verið lengri en til fimm ára.
Ekki fylgir sögunni hvort
Messi sjálfur hafi kvartað til
leikmannasamtakanna en það
verður að teljast ólíklegt að
hann hafi verið neyddur til þess
að skrifa undir samninginn við
spænska risann. - hbg
Forráðamenn Barcelona:
Samningurinn
er löglegur
LIONEL MESSI Er ánægður í Barcelona.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> McShane og Jón Gunnar skiptu um treyju
Sérkennileg félagaskipti áttu sér stað á íslenska leikmanna-
markaðnum í knattspyrnu í gær þegar tveir miðjumenn
einfaldlega skiptu um treyjur. Paul McShane fór til Kefla-
víkur og Jón Gunnar Eysteinsson til Fram. Bein skipti. Jón
Gunnar er þar með aftur kominn undir stjórn
Þorvaldar Örlygssonar sem þjálfaði hann hjá
Fjarðabyggð. Einnig hittir Jón Gunnar fyrir
hjá Fram gamlan félaga að
austan, Halldór Hermann
Jónsson, en sá hefur slegið
í gegn með Fram síðustu
tvö tímabil.
Íslenska landsliðið í handbolta tapaði í gær fyrir Frökkum ytra
í fyrsta leik liðanna í undankeppni EM kvenna sem fer fram
á næsta ári, 32-23. Staðan í hálfleik var 16-12, Frökkum í vil.
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari var ánægður með margt í
leik íslenska liðsins.
„Ég er auðvitað ekki sáttur við að tapa með níu marka
mun en við vorum að spila við frábært lið í troðfullri höll. Við
byrjuðum illa og lentum undir, 7-1. Við það þurftum við að
eyða miklum kröftum í að koma okkur aftur inn í leikinn
en það tókst og ég var mjög ánægður með það,“ sagði
Júlíus.
„Eftir það var munurinn lengi vel aldrei meiri en
3-4 mörk. Við áttum svo möguleika á að koma
okkur enn betur inn í leikinn á 11. mínútu seinni
hálfleiks. Þá var staðan 21-18 og við einum fleiri.
En í stað þess að við skoruðum tvö mörk feng-
um við tvö mörk á okkur. Þær fór svo að stinga
okkur af á síðasta korterinu. Við vorum að gera
mikið af mistökum í sóknarleiknum og það má
ekki gegn jafn sterku liði og því franska. Þær voru mjög fljótar
að refsa okkur.“
Ísland er einnig með Bretlandi og Austurríki í riðli en Júlíus
segir engan vafa leika á því að Frakkar séu með sterkasta lið
riðilsins. „Þetta er lið í hæsta gæðaflokki og gríðarlega sterkt.
En við gáfumast aldrei upp og vorum að skapa þeim smá
vandræði. Við byrjuðum frekar illa og síðustu tíu mínúturnar
voru heldur ekki góðar. Þess á milli var ég talsvert ánægðari
með leik liðsins.“
Ísland mætir næst Austurríkismönnum í Vodafone-
höllinni og segir Júlíus að um algeran lykilleik sé að
ræða.
„Þessi leikur skiptir gríðarlega miklu máli upp á
framhaldið að gera. Við höfum nú nokkra daga til
að sleikja sárin og undirbúa okkur fyrir
það einvígi. Við ætlum okkur að leggja
allt sem við eigum í leikinn og hvetj-
um alla til að koma og styðja við bakið
á okkur. Við þurfum á því að halda.“
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Í UNDANKEPPNI EM 2010: NÍU MARKA TAP Í FRAKKLANDI
Gáfumst aldrei upp gegn sterkum Frökkum