Fréttablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 78
62 15. október 2009 FIMMTUDAGUR
Fjórtán þúsund manns hafa séð kvik-
myndina Stúlkan sem lék sér að eldin-
um síðan hún var frumsýnd 2. október.
Að auki hafa um sex þúsund eintök selst
af samnefndri bók sem var gefin út í
íslenskri þýðingu 18. september.
„Þetta er bara algjört æði, það hefði
enginn getað látið sig dreyma um þetta.
Þetta er bara mjög óvenjulegt,“ segir Guð-
rún Vilmundardóttir hjá útgáfunni Bjarti.
„Hún nær á mánuði því sem hin tók á ári,“
bætir hún við og á þar við fyrstu bókina í
Millennium-þríleiknum, Karlar sem hata
konur. Hún hefur selst í um sex þúsund
eintökum innbundin síðan hún kom út í
október í fyrra. Eftir að hún kom út í kilju
hafa níu þúsund eintök bæst við.
Þriðja og síðasta bókin, Loftkastalinn
sem hrundi, er væntanleg í íslenskri þýð-
ingu í næsta mánuði. Ensk þýðing hennar
er þegar komin í búðir og hefur selst vel.
Guðrún segir að þeir sem geti ekki beðið
eftir íslensku þýðingunni fái sér hana.
Engu að síður hefur hún heyrt kvartanir.
„Hann er allt öðruvísi þessi skandinavíski
heimur sem við höfum aðgang að. Mér
skilst að fólki finnist hann ekki komast
nógu vel til skila í ensku útgáfunni.“
Hvað varðar kvikmyndina er hún
skammt undan Körlum sem hata konur
í aðsókn miðað við jafnlangan sýningar-
tíma. Nítján þúsund manns sáu hana á
jafnlöngu tímabili og endaði aðsóknin í 52
þúsund gestum. Hún er önnur mest sótta
mynd ársins hjá Senu á eftir Hangover. Að
auki er DVD-mynddiskurinn með Körlum
sem hata konur uppseldur hjá útgefanda.
Sex þúsund eintök eru farin og er von á
nýrri sendingu von bráðar.
- fb
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég set alltaf á „shuffle“, þannig
að það getur verið allt frá
Hrekkjusvínum upp – eða niður
– í Queens of the Stone Age og
System of a Down. Rammstein
eða Abba, að ógleymdum S/H
draumi, Sprengjuhöllinni, Fræbb-
blunum, Mannakorni, Amy Wine-
house, Ramones, Noruh Jones og
AC/DC. Og fugl dagsins auðvitað.“
Ævar Örn Jósepsson rithöfundur.
LÁRÉTT
2. vegsama, 6. hljóm, 8. frestur, 9.
draup, 11. tveir eins, 12. mont, 14.
skýli, 16. átt, 17. dreift, 18. tæfa, 20.
tveir eins, 21. truflun.
LÓÐRÉTT
1. fita, 3. pot, 4. litur, 5. þróttur, 7.
naggrís, 10. kverk, 13. hólf, 15. sjá
eftir, 16. hlóðir, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lofa, 6. óm, 8. töf, 9. lak,
11. ll, 12. grobb, 14. skáli, 16. sv, 17.
sáð, 18. tík, 20. rr, 21. ónáð.
LÓÐRÉTT: 1. tólg, 3. ot, 4. fölblár, 5.
afl, 7. marsvín, 10. kok, 13. bás, 15.
iðra, 16. stó, 19. ká.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Kredia hf.
2 Westlife.
3 Veigar Páll Gunnarsson.
STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM Millennium-æðið er heldur
betur í fullum gangi hér á landi. Íslendingar fá ekki nóg af Lisbeth
Salander.
Líf og fjör. Músík og útlendingar á
hverju götuhorni. Jebb, Airwaves
er gengin í garð og miðbærinn
fær vel þegna vítamínsprautu.
Yuka Ogura, sem býr í Yokohama
í nágrenni Tókýó í Japan, er mætt
á sína sjöundu Airwaves-hátíð og
fer fyrir 22 japönskum ferða-
mönnum sem komnir eru gagn-
gert til að upplifa Airwaves.
„Ég kom reyndar með aðeins
fleiri í fyrra,“ segir Yuka. „Ég
held að fréttir af óeirðunum sem
voru hérna í kjölfar efnahags-
hrunsins hafi fælt frá. Að minnsta
kosti í Japan. Bandarískum og
evrópskum ferðamönnum hefur
þó ekkert fækkað, held ég.“
Yuka er mikill Íslandsvinur og
er búin að sinna áhuga sínum á
íslenskri músík af mikilli elju síð-
ustu árin. Hún rekur netverslun
og selur tónlist sem hún pantar
frá Íslandi og bloggar um íslenska
tónlist og allt annað sem íslenskt
er á icelandia1.exblog.jp. „Það er
japanskt fólk á landinu núna sem
er ekki á mínum vegum heldur
hefur bara lesið bloggið mitt og
komið af sjálfsdáðum,“ segir hún.
„Fólkið sem ég er með er mest í
kringum þrítugt, en sá yngsti er
nítján ára og sá elsti 49 ára. Þetta
er alls konar fólk. Það fæst við
ýmis störf heima í Japan, en þau
eiga sameiginlegan þennan mikla
áhuga á Íslandi og þá sérstaklega
á tónlistinni.“
Yuka segir aðdráttarafl
Airwaves-hátíðarinnar mikið.
„Fólk er búið að hlakka til þess-
arar ferðar lengi. Þetta góða
andrúmsloft sem ríkir á hátíð-
inni hefur spurst út og öll þessi
góða tónlist sem er í boði. Ekki
skemma allir þessir frábæru veit-
ingastaðir fyrir. Svo förum við
auðvitað líka í „Golden circle“-
ferðina og í Bláa lónið.“
Yuka hefur komið árlega á Air-
waves síðan 2003, en hún hefur
líka komið til Íslands fyrir utan
hátíðina, nú síðast í sumar þegar
hún fylgdi japönsku poppstjörn-
unni Tomoyo Harada til landsins.
Sú var mjög vinsæl á 9. og 10. ára-
tugunum, bæði sem leik- og söng-
kona. „Hún tók upp eitt lag með
Valgeiri Sigurðssyni og tvö lög
með múm. Þessi lög ásamt fleir-
um eru á nýjustu plötunni henn-
ar sem heitir „Eyja“, af því hún
var tekin upp á tveimur eyjum,
Íslandi og Japan. Hún tók upp
myndband á Íslandi og plötuum-
slagið var tekið hér.“
En hvað með gestsaugað glögga?
Hvernig líst Yuku á kreppuþjóð-
ina? „Mér fannst nú vera miklu
fleiri auð rými við Laugaveginn
þegar ég kom í sumar,“ segir hún.
„Mér finnst eins og það sé ekk-
ert að, eins og ekkert hafi breyst.
Enginn sem ég tala við er eitt-
hvað langt niðri. En það er svo
sem fullt af auðum húsum og
hálfbyggðum þegar maður fer
eitthvað út úr miðbænum.“
YUKA OGURA: MÆTT Á SJÖUNDU AIRWAVES-HÁTÍÐINA SÍNA
Japönsk innrás á Airwaves
JAPANSKIR ÍSLANDSÁHUGAMENN Á RÁNARGÖTUNNI Yuka Ogura (með hvíta veskið) og galvaskir Íslandsfarar á hennar vegum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Maður var brosandi út að eyrum þangað til í gær,
þá bara búmm!“ segir Sæþór Ágústsson, bassaleik-
ari hljómsveitarinnar Hoffman.
Tveir meðlimir Hoffman hafa greinst með
svínaflensu og liggja nú heima í bælinu. Hoffman
var ein af fáum hljómsveitum sem áttu að koma
tvisvar fram á Iceland Airwaves-hátíðinni, sem
hófst í gær.
„Bjarki vill reyndar meina að hann sé að bragg-
ast, en Óli liggur bara,“ segir Sæþór svekktur.
Hoffman átti að koma fram á Sódómu í gær og
Grand Rokki í kvöld. Þá átti hljómsveitin að koma
fram á utandagskrártónleikum á Dillon á föstudag
á undan hljómsveitinni Klink.
Róbert Aron Magnússon, upplýsingafulltrúi Ice-
land Airwaves-hátíðarinnar, segir að aðrar hljóm-
sveitir hafi ekki hringt sig inn veikar. „Vonandi
sleppur þetta fram yfir helgi,“ segir hann og bætir
við að leitt sé að horfa á eftir Hoffman. „Flensan
hefur herjað illa á þá. Við vonum að þeir nái bata
sem fyrst.“ - afb
Svínaflensa hindrar Hoffman
VEIKIR Hljómsveitin Hoffman varð að hætta við tvenna tón-
leika á Iceland Airwaves.
Ótrúlegar vinsældir Stiegs Larsson
Páll Óskar kemur fram með
hljómsveitinni Hjaltalín á Iceland
Airwaves-hátíðinni í Hafnarhúsinu
á laugardagskvöld. Palli syngur
ekki aðeins ofursmellinn Þú komst
við hjartað í mér með
hljómsveitinni, heldur
ætlar Hjaltalín
að flytja með
honum nokkur
af allra vinsæl-
ustu lögum
popparans. Þá
heyrist að Palli
komi til með að
syngja nýtt lag
af óútkominni
plötu Hjaltalín
á tónleikunum.
DV greindi frá því í gær að sjón-
varpsmaðurinn Helgi Seljan
myndi flytja tímabundið til Akur-
eyrar um áramótin þar sem hann
væri kominn með nóg af Reykjavík
í bili. Ekki kom fram hvað verður
um starf hans í Kastljósi Sjónvarps-
ins, en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er hann ekki að
hætta þar. Hann verður
reyndar minna áber-
andi á skjánum, en á
móti verður hann nýr
liðsmaður svæðis-
útvarps Norðurlands
svo að þeir sem eru
með óhreint mjöl
í pokahorninu
ættu að kaupa
lyktareyði áður en
sporhundurinn
mætir á svæðið.
Þjófinn, sem stal útprentaðri
þýðingu á Týnda tákninu eftir Dan
Brown úr höfuðstöðvum Bjarts,
hefur væntanlega rekið í rogastans
þegar hann skoðaði eintakið betur.
Kaflarnir voru aðeins
125 talsins en alls
eru 134 kaflar í
bókinni. Vantaði því
sögulokin í próförk-
ina og von-
brigðin hafa
því vafalítið
verið mikil
þegar
þjófurinn
komst
að hinu
sanna.
- afb, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Fundur um
SORG OG SORGARVIÐBRÖGÐ
Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur hjá áfallamiðstöð Landspítalans fl ytur erindi um
sorg og sorgarviðbrögð í safnaðarheimili Háteigskirkju í kvöld, fi mmtudagskvöld kl. 20.
Allir velkomnir.
nydogun@nydogun.is