Fréttablaðið - 15.10.2009, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 15. okt-
óber 2009, 288. dagur ársins.
8.18 13.13 18.07
8.08 12.58 17.47
Mér fannst fall Berlínarmúrs-ins ekkert svo merkilegt.
Að minnsta kosti man ég ekkert
hvað ég var að gera þegar frétt-
in barst. Ég man hins vegar ljós-
lifandi eftir 11. september 2001.
Maður var alveg í smá sjokki,
fyrst og fremst vegna þess að
ég og Lufsan áttum pantaða New
York-ferð í desember. Við höfð-
um skoðað myndir af mollinu sem
var í kjallara World Trade Cent-
er. Hún vildi hætta við ferðina
en ég náði að lempa hana til að
fara. Maður tók fyrst og fremst
eftir því hvað ameríski fáninn
var úti um allt. Blakti alls staðar
á húsum og á bílum.
MAÐUR hélt að allt myndi breyt-
ast. Að lífið yrði aldrei aftur eins.
Svo gerðist ekki neitt nema helst
að það varð ævintýralega mikið
vesen að komast í gegnum flug-
velli. Á flugvellinum í Las Vegas
árið 2002 komu tvær löggur og
tóku mig afsíðis eftir ábend-
ingu vænisjúks flugvallargests.
Ég gæti náttúrulega alveg eins
verið brjálaður hryðjuverkamað-
ur með þennan hökutopp. Lögg-
urnar voru kurteisin uppmáluð og
ég auðvitað með allt tandurhreint
í mínu pokahorni. Þetta var upp-
lifun mín af stríðinu gegn hryðju-
verkum.
SÖMU „nú breytist allt“-tilfinn-
inguna fékk maður þarna fyrir
ári þegar þjóðin vaknaði upp
við vondan draum. Ég var með
í maganum í viku á meðan Geir
Haarde kom daglega flóttalegur
til augnanna með nýjustu tíðindi
af heimsenda. Ég fékk martraðir
um AGS og missti nokkur kíló af
áhyggjum. Í sturtunni í Laugum
heyrði ég menn helst binda vonir
við að annars staðar færi allt til
andskotans líka svo við litum ekki
út eins og algjörir aumingjar. Ég
sá fram á að líf mitt færðist aftur
til ársins 1980. Ég vonaði bara að
internetinu yrði ekki lokað vegna
skulda. Öfugt við í New York
blakti hvergi íslenski fáninn hjá
okkur. Við klikkuðum á því.
ÉG hefði auðvitað getað sagt mér
það strax að slappa af. Ári síðar
er maður í svipuðum sporum,
stritandi til að borga reikningana,
úti er haustsuddi og það styttist í
jólin. Í þessu eins og öðru ræður
maður því sjálfur hvort glasið
er hálftómt eða hálffullt. Það er
helst að maður sakni sígaunanna
sem voru alltaf að spila á harmón-
íkur fyrir framan matvörubúðir í
mesta góðærinu. Þeir sjást ekki
lengur.
Þegar allt
breyttist ekki
TAKTU OPNUNA ÚR BLAÐINU MEÐ ÞÉR ÞEGAR ÞÚ FERÐ AÐ VERSLA