Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 80

Fréttablaðið - 15.10.2009, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 15. okt- óber 2009, 288. dagur ársins. 8.18 13.13 18.07 8.08 12.58 17.47 Mér fannst fall Berlínarmúrs-ins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar frétt- in barst. Ég man hins vegar ljós- lifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfð- um skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Cent- er. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. MAÐUR hélt að allt myndi breyt- ast. Að lífið yrði aldrei aftur eins. Svo gerðist ekki neitt nema helst að það varð ævintýralega mikið vesen að komast í gegnum flug- velli. Á flugvellinum í Las Vegas árið 2002 komu tvær löggur og tóku mig afsíðis eftir ábend- ingu vænisjúks flugvallargests. Ég gæti náttúrulega alveg eins verið brjálaður hryðjuverkamað- ur með þennan hökutopp. Lögg- urnar voru kurteisin uppmáluð og ég auðvitað með allt tandurhreint í mínu pokahorni. Þetta var upp- lifun mín af stríðinu gegn hryðju- verkum. SÖMU „nú breytist allt“-tilfinn- inguna fékk maður þarna fyrir ári þegar þjóðin vaknaði upp við vondan draum. Ég var með í maganum í viku á meðan Geir Haarde kom daglega flóttalegur til augnanna með nýjustu tíðindi af heimsenda. Ég fékk martraðir um AGS og missti nokkur kíló af áhyggjum. Í sturtunni í Laugum heyrði ég menn helst binda vonir við að annars staðar færi allt til andskotans líka svo við litum ekki út eins og algjörir aumingjar. Ég sá fram á að líf mitt færðist aftur til ársins 1980. Ég vonaði bara að internetinu yrði ekki lokað vegna skulda. Öfugt við í New York blakti hvergi íslenski fáninn hjá okkur. Við klikkuðum á því. ÉG hefði auðvitað getað sagt mér það strax að slappa af. Ári síðar er maður í svipuðum sporum, stritandi til að borga reikningana, úti er haustsuddi og það styttist í jólin. Í þessu eins og öðru ræður maður því sjálfur hvort glasið er hálftómt eða hálffullt. Það er helst að maður sakni sígaunanna sem voru alltaf að spila á harmón- íkur fyrir framan matvörubúðir í mesta góðærinu. Þeir sjást ekki lengur. Þegar allt breyttist ekki TAKTU OPNUNA ÚR BLAÐINU MEÐ ÞÉR ÞEGAR ÞÚ FERÐ AÐ VERSLA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.