Ljósberinn - 01.06.1946, Qupperneq 29

Ljósberinn - 01.06.1946, Qupperneq 29
ljósberinn 109 íbúðarhússins. Mesta ánægja Steves var að gera liúsið hreint. Jim var oft með honum, ekki eingöngu vegna þess, að honum þætti gaman að dúfunum, heldur af því, að hann hafði ánægju af að vera ^eð jafnaldra sínum. Og svo var þarna uppi prýðilegt útsýni yfir töluverðan hluta Eastends. í grennd við höfnina héldu dúfurnar sig jafnan. Þar tíndu þær Upp korn, er fór til spillis. Stundum kom fyrir, að ein og ein dúfa skilaði sér ekki heim í dúfnahúsið. Þá reiddist Steve og óskaði þeim alls hins versta, er rændi dúfunum hans. En Jim mátti ekki fórna miklum tíma til leika með Steve. Hann varð að liugsa Um munn og maga. Hann hafði lofað Ant- hony því hátíðlega að létta undir með Jane. Blómin, sem hann bjó til á kvöld- m, fékk hann að selja á götunni sjálfur. Hann komst brátt að raun um, að það var ekki alltaf auðvelt að vera verzlun- armaður. Oft kom fyrir, að liann gengi götu eftir götu, án þess að honmn áskotn- aðist nokkur skildingur. En stundum hafði liann selt öll blómin áðjir en hann vissi af. Þá var liann ánaégður og ráð- gerði í huganum kaup á nýjum fötum, minnsta kosti fötum frá veðlánara. En daginn eftir var eins og oftast treg sala °g kaupum á nýjum fötum varð að fresta. Svo skeði atburður, sem orsakaði mjög miklar breytingar á lífi Jims. Dag nokkurn kom hann heim í rökkr- mu með stóran poka af kolamolum og sPýtum, er hann hafði safnað saman nið- við hafnarbakkann. Hann var ánægð- m með dagsverkið og hlakkaði til að sjí gleðibros á andliti Janes, þegar hún kæmi Leim. Hann fór með pokann inn í skúr- inn sinn og beið þar eftir Jane. Steve kom og vildi fá liann með sér til dúfn- anna. Nú saknaði Steve dúfu, er ekki hafði sézt allan daginn. Þeir voru uppí í dúfnahúsinu klukkutíma, en þegar þeir komu niður, var Jane ennþá ókomin. Við þessu var ekkert að gera. Jim fór á stúf- ana að ná sér í matarbita. Það var dimmt og drungalegt, þegar liann kom aftur. Honum þótti undarlegt að engin Ijósglæta skyldi sjást hjá Jane. Nú hlaut hún þó að vera komin heim. Þegar liann stóð fyrir framan dyrnar hjá henni, lieyrði hann greinilega lijartslátt sinn. Ef hún væri nú ennþá ókomin? Hvað átti hann þá að gera? Jú, hann gat auðvitað farið niður í kanínuskúrinn og skriðið ofan í kassann. En hvar var Jane? Hann barði einu sinni ennþá, en enginn kom til dyra. Jane var ekki heima. Það hafði aldrei komið fyrir um þetta leyti dags. Hann barði aftur. Árangurslaust. Hvar gat hún verið? Jim hljóp út á götu og skimaði í allar áttir eftir henni. En livergi sá liann Jane. Klukkustund eftir klukkuStund ráfaði hann um fram og aftur. Það byrjaði að rigna og hann varð gegnblautur á skömmum tíma, en hann sinnti því engu. Lögregluþjónn kom auga á hann. Hvers konar piltur var þetta? Það var víst bezt að liafa tal af lionum, en áður en af því yrði, var Jim horfinn. Hann fór heim að gá, livort Jane væri máske komin. En þar var sama myrkrið og þögnin. Alla nóttina gekk Jim um göturnar, holdvotur og þreyttur. Hann fór alla leið til St. Pauls-kirkju og niður að höfn, en hvergi kom liann auga á Jane. Það var eins og jörðin liefði gleypt hana.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.