Vaka - 01.01.1927, Page 20
14
AGÚST 13JARNAS0N:
[ vaka]
unum, um 15, 20 og 30% af flestu því, er þeir hafa til
fæöis, klæða og skæða; þetta nemur ef til vill 200—300
kr. á mann frá l(i ára aldri til sextugs á ári hverju, og
menn mögla alls ekki gegn því. En ef talað er um skyldu-
tryggingu, þar sem menn eiga að horga máske innan
við 10 kr. á ári í 40 ár eða 450 lcr. samtals i 3 ár, gegn
því að fá 250—500 kr. útborgaðar á ári hverju á gamals-
aldri og þá jafnframt skapa landinu þann höfuðstól,
er gerir það fjárhagslega sjálfstætt um aldur og ævi, —
þá æja menn upp yfir sig og kalla slíkt blóðug rangindi
eða annað verra. Réttlátt væri þó, að hver maður tryggði
sig fyrir slysum og elli, áður en hann gjörðist borg-
ari í landinu, svo að hann yrði hvorki sveit sinni né
landi til þyngsla, á meðan hann Iifði. En með þessu
fengi landið höfuðstól, sem gæti hæði tryggt sjálfstæði
þess og lyft atvinnuvegum þess og gjört það að miklu
leyti óháð erlendu fjármagni.
Að tilhlutun Stjórnarráðsins reiknaði dr. Ólafur
Danielsson það út, árið 1917, hvað almenn ellitrygging,
sem raunar var ekki há, liðugar 200 kr. á mann, mundi
kosta, og á hinn bóginn hvaða höfuðstól til handa land-
inu og þjóðinni hún gæfi af sér í aðra hönd. Hann
byrjaði á því að reikna út almenna líftryggingu eins og
á sér stað um allan heim i venjulegum líftryggingarfé-
lögum og fékk út, að hún mundi verða jafn-dýr, ef
ekki dýrari, og í samskonar líftryggingarfélögum er-
lendis. En svo sneri hann sér að almennri ellitryggingu.
Það er óneitanlega skemmtileg tilhugsun, að hver mað-
ur eigi heimtingu á lífeyri, Jiótt ekki sé hann hár, þegar
hann er kominn á efri ár og er hættur að geta unnið
fyrir sér; en þó er hitt enn skemmtilegra, að menn með
þessu skapa landi og Jjjóð nokkurslconar Jijóðbanka,
sem gjörir landið og Jijóðina fjárhagslega sjálfstæða í
hráð og lengd og gelur risið svo að segja undir öllum
framfarafyrirtækjum í landinu, ef þau eru ekki bein á-
hættufyrirtæki, en þó sérstaklega veitt löng og ódýr fast-