Vaka - 01.01.1927, Síða 29
i vaka]
LÖG OG LANDSLÝÐUR.
2^
á það, að eins og mannlíf í fullkominni einangrun sé
óhugsandi, eins sé allt menningarlíf manna samlíf við
aðra menn, þjóðlíf. Einstaklingurinn lifi ekki lífi sínu
einn heldur með öðrum og persónuleikur hans njóti sín
einmitt hezt með þeim hætti. Hæztum þroska nái sam-
lif manna enn sem komið er í þjóðlífinu. Því nái líf
einstaklingsiris líka hæztum þroska þar, með því að
vera éinri liður í heildinni, þjóðinni, og lifa lífi sínu með
henni og fyrir hana. Því öflugri sem tilhneigingin til
þess verði, því ríkari og fegurra verði þjóðlífið, þvi
sterkara og öflugra þjóðfélagið og því betur l'ái það
innt hlutverk sín af hendi. Þessa tilhneigingu kalla ég
þjóðfélágshneigð. Hversu rík er sú hneigð hjá oss,
liversu rík er sú skoðun hjá landsmönnum, að líf þjóð-
arinnar sé þeirra líf, sæmd liennar og vansæmd þeirra
sæmd og vansæmd, velferð hennar þeirra eigin velferð?
Hér er ekki rúin til að ræða það mál til neinnar hlítar, en
ekki hvgg ég, að það sé ofmælt, að oss sé of mjög áfátt í
Jjví efni, enda hefir l'yrri skoðunin verið höfð mjög í
hávegum hér á landi um nokkurt skeið, og studd óspart
ineð misskilningi á sögu vorri og þjóðareðli, því sönnu
er það næsl, að félagshneigðin hafi verið rík í eðli þjóð-
ar vorrar í fyrstu, eins og frændþjóða vorra. En þar sem
þjóðfélagshneigð brestur, hrestur og skilning á hlut-
verki þjóðfélagsins og áhuga á málefnum þess. Og svo
ei hjá oss. Pólitiskur áhugi er hér nokkur, en hann er
frekar áhugi á málefnum flokkanna en málefnum þjóð-
félagsins. Sá áhugi miðar ekki til þjóðþrifa. Sú skoð-
un er alltof almenn, að þjóðl'élagið sé eitthvert óvið-
lcomandi, jafnvel fjandsamlegt afl, sem ekki sé skylt
að sýna neina rækt og hezt sé að hafa sem minnst við að
skifta. Þar sem svo er ástatt er ekki að húast við mikl-
um áhuga eða skilningi á rétti þjóðarinnar, mikilli virð-
ingu fyrir honum eða þekkingu á honum. Oss er líka á-
fátt i öllu þessu. Menn líta altof oft á lögin svo sem þau
séu eitthvað, er sér komi eigi við. Menn eru sér einhvern-