Vaka - 01.01.1927, Síða 112
106
S. N.: STAFSETNING.
[vaka]
3; Rita skal samkvæmt uppruna tvöfaldan samhljóð á undan
samhljóði, að minnsta kosti þar sem tvöfaldur samhljóður kemur
enn fyrir í sama orði eða skyldum orðum: kenndi (kenna), innst-
ur (innri), dyggð (dyggur), bögglar (böggull), krypplingur
(kr.vppa), offra (offur), menntir (mann), heppni (heppinn).
Þess skal getið, að reglur þessar eru samþykktar af ýmsum
kennurum og málfræðingum, eftir tillögum nefndar, er kostin var
vorið 1924 til þess að rannsaka grundvöll islenzkrar stafsetning-
ar. í nefndinni áttu sæti þeir dr. Alexander Jóhannesson, dósent f
íslenzkri málfræði, Einar Jónsson, íslenzkukennari Stýrimanna-
skólans, og Jakob Jóhannesson Smári, islenzkukennari Mennta-
skólans. Hér er ekki rúm til þess að prenta greinargerð né rök-
semdir nefndarinnar, en vonandi verður þess ekki langt að liiða,
að nefndarálitið verði birt í lieild sinni.
S. N.
RITFREGNIR.
NÝl SÁTTMÁLI eítir Sigurð iJtiröarson fyrrum sýslumann.
Keykjavik 1925.
Eitt af ungu skáldunum liefir sagt, að þrátt fyrir allt hregði enn-
þá stundum fvrir hér á landi,
Egils orku,
Ófeigs hnefa, Gellis róm.
Mér komu þessi orð i liug, er ég las Nýja sáttmála, og virtust
þau sannast þar að nokkru.
Nýi sáttmáli er eftirtektarverð bók, ekki sízt höfundarins
vcgna, og þess, hvernig hann gengur að verki. Hann er aldraður
maður, hefir mestan hluta æfinnar setið í kyrlátu embætti, og lit-
ið komið nærri sjóförum og harðræðum stjórnmálanna. Á gam-
als aldri hertýgjast hann gegn stjórnmálaspillingunni. Gengur
hann með öðru borði aftur og öðru fram, á þjóðmáladrekanum,
og þykir fáuin fýsilegt að eiga náttból undir öxi hans. Má segja
uin hann, eins og sagt var um Ögmund sneis, sem var „á hinum
átta tigi vetra“, er hann fór siðustu herferðina, „at hann þætti
þar þá maðr vigligastr i þvi liði“.
Nýi sáttmáli er ádeilurit, óvenjulega harðort og berort. Stjórn-
niálamenn vorir geta sagt um höf. eins og Staðarhóls-Páll sagði
um konu sína, að hann hafi „sagt uppá þá marga óheyrilega
hluti“. Höf. ræðst á garðinn þar sem hann er hæztur. Hann kveð-
ur upp harða og þunga áfellisdóma yfir þvi, sem hann telur spillt