Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 10

Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 10
10 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR PALESTÍNA, AP Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, segir það ógna friðnum geri Mah- moud Abbas alvöru úr yfirlýsing- um sínum um að bjóða sig ekki fram til næsta kjörtímabils. Ahmet Davutoglu, utanríkis- ráðherra Tyrklands, sem var í heimsókn hjá starfsbróður sínum í Frakklandi, sagðist vona að ákvörðun forseta Palestínustjórnar væri ekki endanleg. Bjóði Abbas sig ekki fram í janúar gæti það aukið sigurlíkur Hamas-samtakanna, andstæðinga Fatah-hreyfingarinnar, sem Abbas hefur stjórnað síðan Jasser Arafat féll frá árið 2004. Fatah-hreyfingin mun líklega bjóða fram Nasser Al-Kidwa, fimm- tugan frænda Arafats, sem hefur verið fulltrúi Palestínustjórnar hjá Sameinuðu þjóðunum. Einna líklegast þykir þó að Mar- wan Barghouti, Fatah-maður sem hefur setið í fangelsi í Ísrael árum saman, beri sigur úr býtum. Barg- houti bauð sig fram árið 2004, þrátt fyrir að sitja í fangelsi, en dró framboð sitt til baka vegna þrýst- ings frá áhrifamönnum í Fatah. Abbas sagðist ekki hafa áhuga á að gegna embættinu lengur vegna pattstöðu í friðarmálum, sem hann sakar bæði Ísraela og Bandaríkin um að bera ábyrgð á. - gb Ákvörðun Mahmouds Abbas veldur uppnámi: Óvissa um fram- haldið hætti Abbas DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið dæmdur í Hér- aðsdómi Suðurlands í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft tvívegis mök við þrettán ára gamla stúlku. Þetta átti sér stað í september í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir að beita stúlkuna ólögmætri nauðung og með því að notfæra sér ölvunar- ástand og reynsluleysi hennar og yfirburðastöðu vegna aldursmunar og líkamsburða, svo hún gat ekki spornað við samræðinu. Hann var sýknaður af þeim hluta ákærunnar, þar sem hvorki þótti sannað að stúlkan hefði verið mjög ölvuð, né óviljug til samræðisins. Maðurinn hafði boðið tveimur stúlkum heim til sín. Hann sagði umrædda stúlku hafa sagt sér að hún væri fimmtán ára. Fyrir dómi játaði hann að hafa tvisvar haft samræði við hana umrædda nótt. Dómurinn taldi vafa leika á að maðurinn hefði vitað að stúlkan var ekki orðin fimmtán ára. Hins vegar hefði hann sýnt gáleysi með því að grennslast ekki fyrir um aldur hennar, þar sem útlit hennar svar- aði til aldurs. Maðurinn var auk ofangreinds dæmdur til að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í miskabætur og sak- felldur fyrir að hafa veitt tveimur ungum stúlkum áfengi. - jss SELFOSS Héraðsdómur Suðurlands á Selfossi dæmdi í málinu. Karlmaður á fertugsaldri dæmdur skilorðsbundið og til greiðslu miskabóta: Hafði samræði við þrettán ára barn FÆREYJAR Afgangur af rekstri Færeyjabanka fyrstu níu mánuði ársins var 146 milljónir danskra króna, eða tæpir 3,7 milljarðar íslenskra. Eftir skatt nemur hagn- aðurinn 118 milljónum. Í tilkynningu segir að tekjur af banka- og tryggingastarfsemi hafi verið 29 prósentum meiri en í fyrra. Meðal þess sem ráðist var í á tímabilinu voru meirihlutakaup í íslenska tryggingafélaginu Verði. Færeyja banki var einn af þeim bönkum sem fengu aðstoð danskra stjórnvalda í kreppunni þar. Eigið fé bankans er nú 1,62 milljarðar danskra, tæpur 41 milljarður íslenskra. - kóþ Fyrstu níu mánuðir ársins: Færeyjabanki skilar afgangi STYÐJA ABBAS Fjöldi Palestínumanna kom saman í Ramallah í gær til að lýsa stuðn- ingi við Mahmoud Abbas. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BÚRKUKLÆDDAR Í KANDAHAR Í Kandahar í Afganistan fengu þessar búrkuklæddu konur far ásamt brosmildri stelpu á litlum vagni dregn- um af asna. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.