Fréttablaðið - 07.11.2009, Qupperneq 40
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
Anna Margrét Björnsson skrifar
FJALLASNJÓRINN
DÝRKAÐUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Forsíðumynd La Boca hverfi í Buenos Aires
Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Hólmfríður Helga
Sigurðardóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið, Getty
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson bjf@365.is
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
M örgum dettur fyrst í hug tangó þegar minnst er á Buenos Aires. Og skyldi engan undra, tangóinn er inngróinn í menningu lands og þjóðar, mun dýpra en ætla mætti. Þá gildir einu hvort íbúar borgar-innar kunna fótafimi tangósins eða ekki, enda fer því fjarri að allir séu fagmenn á því sviði. En tangóinn birtist með þrenns konar hætti; að horfa á tangó, að hlusta á tangó og að dansa tangó. Að horfa á atvinnumannasýningar í þar til gerðum húsum og áhugamanna-sýningar útí á götu eða á barnum, hlusta á tangótónlist á götunni, á veitingahúsum og börum, í leigu-bílum og frá einkaheimilum.
Sjarminn við tangó í Argentínu er að allir dansa tangó og öllum er
alvara. Enginn gerir grín að þeim sem „reynir“ að dansa tangó, því það er líkt og allir séu sama sinnis; það eiga allir að dansa tangó. Allir eiga að hlusta, heyra, sjá og njóta.Ekki þarf heldur að kynna arg-entínska nautakjötið, en þó er ákveðinni forvitni svalað með því að láta reyna á það fyrir alvöru. Og já, trúið mér, það stendur undir öllu því lofi sem yfir það hefur verið ausið. Lomo a la parilla, eða grilluð nautalund, er nokkuð sem allir veitingastaðir eru stoltir af. Grillið er reyndar í hávegum haft hér um slóðir, lykilatriði allra veit-ingastaða.
„Evrópsk“ borg
Buenos Aires er án efa „evrópsk-asta“ borgin í Rómönsku-Ameríku. Í ljósi sögunnar er það kannski ekki
skrýtið, því um 90 prósent þjóðar-innar eru afkomendur Evrópu-búa, sem er mun hærra hlutfall en í nokkru öðru landi Suður-Amer-íku. Fyrir utan hin hefðbundnu og rótgrónu spænsku tengsl, þá fjölg-aði innflytjendum mjög til Argent-ínu á 19. öld og voru ítalskir suð-vesturfarar þar fremstir í flokki. Af þeim sökum eru mörg ættar-nöfn í Argentínu ítölsk og ekki leynir hann sér ítalski söngland-inn í hinum sérstaka spænsku-hreim hér um slóðir.
En það er ekki bara fólkið sem er „evrópskt” í hinum klassíska, miðalda, skilningi. Allt borgar-skipulagið minnir á evrópskar stórborgir, jafnvel þær allra stór-kostlegustu á borð við París og Madríd. Sá sem þetta skrifar hefur
búið bæði í Frakklandi og á Spáni og fyllist vellíðunar-nostalgíu við það eitt að ganga um stræti og torg Buenos Aires.
Þetta er vel skiljanlegt þegar haft er í huga að stór hluti borg-arinnar var byggður upp á fyrstu áratugum 20. aldar og gengu helstu arkitektar beint í reynslu glæsileg-ustu borga Evrópu.
Stundum hefur jafnvel verið bætt um betur frá fyrrnefndum borgum Evrópu. Skýrasta dæmið er líklega Avenida 9 de Julio, sem hlotið hefur titilinn „breið-asta breiðgata heims“. Er hún raunar svo breið að hin fræga Avenue des Champs-Elysées í París er bara hálfdrættingur á við hana. Almennt eru tíu akreinar í
NÓVEMBER 2009
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Skíðað í ítölsku ölpunum Spennandi ferðir til Madonna og Selva SÍÐA 8
TANGÓ, TÍSKA OG NAUTAKJÖTGlæsilegar byggingar,
breiðgötur, mannþröng
á strætum og torgum,
gosbrunnar, kaffi hús á
hverju strái, listasöfn og
gallerí, hátískuhús og
hönnun, tónlist við hvert
fótmál. Við erum ekki í
París eða Róm, heldur
í Buenos Aires, syðstu
stórborg Suður-Ameríku.
Þorfi nnur Ómarsson veitir
okkur innsýn í þessa
óvæntu borg.
Jól á fjarlægum slóð-
um Öðruvísi hátíðarhöld
SÍÐA 10
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
2 FERÐALÖG
M
itt í hipp og kúl-hverf-
inu Mitte í Berlín
er barinn Absinthe
Depot en þar er, eins
og nafnið gefur til kynna, hægt
að smakka hið dularfulla abs-
inthe. Á 19. öld var absinthe vin-
sælt meðal skálda og listamanna
eins og Verlaine, Rimbaud, Van
Gogh og Toulouse-Lautrec en talið
er að geðheilsu þeirra allra hafi
nokkuð hrakað við að drekka það.
Alvöru absinthe inniheldur nefni-
lega plöntuna „wormwood“ eða
remmu sem getur reynst hættuleg
við langvarandi notkun og valdið
ofskynjunum. Í dag er absinthe
oftast framleitt án þessarar jurtar
og hægt að dreypa á ótal tegund-
um sem eru framleiddar í Mið og
Austur-Evrópu. Í Absinthe Depot
er líka geysilega mikið úrval af
alls kyns bjórum en besta ástæðan
til að setjast þangað inn er til þess
að upplifa andrúmsloft fortíðar-
innar og dást að hinum fallegu 19.
aldar innréttingum. Ef eigandinn
er í stuði er hann líklegur til að
segja þér allt um hina dularfullu
sögu drykkjarins sem eitt sinn var
kallaður „ græna álfkonan“. - amb
Absinthe Depot,
Weinmeisterstrasse 4,
Mitte, Berlín.
AFTUR TIL FORTÍÐAR
Dásamlegur 19. aldar bar í Berlín býður upp á mikið úrval hins sögufræga absinthe-drykkjar.
Art Déco-stemning Innréttingarnar á Absinthe Depot eru næg ástæða til að setjast inn fyrir.
LONDON OFARLEGA Á
LISTA LONELY PLANET
Í vikunni bárust Frónbúum þær ánægjulegu fréttir
að Lonely Planet, umsvifamesti útgefandi ferða-
bóka í heiminum, hefði sett Ísland í efsta sæti á
lista yfir þá staði sem hagkvæmast yrði að ferðast
til á næsta ári í nýjustu ferðabók sinni, Best in
Travel 2010.
Minna hefur verið fjallað um þá staði sem koma
næst á eftir Íslandi á listanum. Lonely Planet setur
Taíland í annað sætið, og segir þann áfangastað
vera „hagkvæman eins og ávallt“.
Einhverjum öðrum en Íslendingum gæti komið á
óvart að London, höfuðborg Englands, skuli prýða
þriðja sætið á téðum lista. „London hefur lengi
verið fáránlega dýr borg en er orðin mun ákjós-
anlegri áfangastaður fyrir gesti frá útlöndum. Það
gildir þó ekki fyrir heimamenn,“ segir í bókinni.
„Vegna hagstæðs gengis geta ferðamenn nú oft
fundið hótel og veitingastaði sem kosta helmingi
minna en fyrir nokkrum árum.“
Sögufrægur drykkur Vertinn á barnum.
E
in þau skemmtilegustu frí sem ég var svo
heppin að njóta í barnæsku voru skíðaferðir
til austurrísku Alpanna með fjölskyldunni
minni. Það jafnaðist ekkert á við að eyða
heilum degi með bróður mínum í skíðaskólanum og
koma svo heim á hótel á kvöldin svöng, sæl og þreytt
til að gæða sér á dásamlegu ostafondue og öðrum
alpamat. Síðar á ævinni, þegar ég bjó í Frakklandi,
brunaði ég upp í frönsku Alpana til að upplifa svip-
aða stemningu og allar þessar minningar einkenn-
ast af einstaklega fallegu umhverfi, stórfenglegum
fjöllum, sætum alpahótelum, góðum mat og mikilli
útiveru. Nú er farið að selja í skíðaferðir hjá flestum
ferðaskrifstofum landsins og slíkar ferðir eru virki-
lega góð tilbreyting frá endalausum sólarlandaferð-
um. Í stað þess að flatmaga við sundlaugina allan
daginn er skíðaíþróttin iðkuð af kappi og því verður
fríið bæði gott fyrir líkama og sál.
Kannski finnst mörgum skrýtið að fara frá snævi
þöktu Íslandi yfir í evrópsku Alpana eða bandarísku
Klettafjöllin í enn meiri snjó. En málið er bara að
því miður er skíðaupplifunin allt önnur hér á landi.
Brekkurnar eru stuttar og það sem verra er þá snjó-
ar svo lítið nú til dags. Það er hreinlega ekki hægt að
stóla á það að það verði hægt að skíða að ráði í vetur.
Það sem ég vildi líka sjá á íslensku skíðasvæðunum
væri meira lagt upp úr stemningunni – sumsé eitt-
hvað girnilegra en kók og pylsa. Í Evrópu eru oft
lítil fjallakaffihús sem bjóða upp á ljúffengar pönnu-
kökur, risastórar og matarmiklar eggjakökur og
úrval af heitum drykkjum. Hvers vegna ekki að
auka úrvalið í Bláfjöllum og Skálafelli? Annars er
alveg hægt að útbúa frábærlega kósí vetrarfrí fyrir
alla fjölskylduna hér á klakanum. Hvort sem haldið
er norður í land eða bara í bústaðinn er kjörið að
endurskapa alpastemninguna með hituðu rauðvíni,
heitu kakó, „crepes“-pönnukökum löðrandi í Nutella-
súkkulaði og svo er auðvitað kjörið ef foreldrarnir
luma á gömlu Raclette eða Fondue setti frá áttunda
og níunda áratugnum því ekkert er jafn seðjandi og
unaðslegt í kuldanum en bráðinn ostur! Stundum
getur verið jákvæðara að fagna vetrinum en að flýja
hann.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/A
NT
ON