Fréttablaðið - 07.11.2009, Side 48
7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR4
„Ég hef haft áhuga á fornmunum
frá því að ég var unglingur, ætli ég
hafi ekki smitast af mömmu,” segir
Gunnar, en heimili hans skreyt-
ir afskaplega fallegur,ljós skenk-
ur sem er vel yfir 100 ára gam-
all. „Mér finnst svo falleg andlitin
sem hafa verið skorin út í hliðum
hans. Ég á von á sófasetti í stíl, á
armana hafa verið rist sams konar
andlit og í skenkinn en sófasettið
er nokkrum áratugum eldra eða
140-150 ára.“ Gunnar er greinilega
hrifinn af andlitum í húsgögnum
því fyrir viku keypti hann borð-
stofuborð og stóla sem einnig hafa
útskorin andlit. „Sá sem seldi mér
það sett sagði að það hefði verið í
eigu eins af núverandi ráðherrum
en vildi nú ekki segja mér hvers,“
segir hann og glottir.
Gunnar á í fórum sínum
skemmtilega sögu af forngrip.
„Þannig var að ég fór í Góða hirð-
inn og sá þar skál, sem var gyllt og
efst var eins og málaður blár borði.
Eftir nokkra umhugsun festi ég
kaup á henni og ekki var hún dýr,
300 krónur. Þá gerðist hið ótrú-
lega. Tveimur vikum seinna kom
hingað erlendur maður á vegum
Þjóðminjasafnsins, og til þess að
gera langa sögu stutta kom í ljós að
skálin er úr einhverju konunglegu
safni síðan árið 1826.“ Og hvar er
skálin? „Ég gaf mömmu hana.”
En söfnun fornminja er ekki eina
áhugamál Gunnars. Hann hefur
áhuga á að komast eins nálægt
því að upplifa fortíðina og hægt
er, það er að segja víkingatímann.
„Íslendingar átta sig ekki á því að í
víkingaheiminum og menningunni
sem henni fylgir sé litið á Ísland
sem mekka víkingaheimsins. „Við
höfum stofnað félag hér á landi
sem heitir Einherjar í Reykjavík
(www.einherjar.is) og þar er ég
formaður og jarl en það er æðsta
embætti í víkingasamfélaginu.
Næsta embætti við hann er goði
og svo koma hersir. Þetta er alveg
eins og til forna. Við mætum í
víkingabúningum eins og þeir
voru til forna, með járnhjálm, í
skikkju og með járnsverð og berj-
umst af karlmennsku. Stundum
förum við út í náttúruna og þá
finnum við virkilega til þess að
vera víkingar og jafnvel að látnir
víkingar séu að tala við okkur og
gefa orku. Nokkrir úr félaginu fóru
út í Drangey og voru þar í sólar-
hring, klæddir og útbúnir eins og
Grettir Ásmundsson. Allir töldu
okkur brjálaða og vissulega var
þetta vosbúð en okkur tókst þetta
og fengum tilfinninguna fyrir því
hvernig Gretti leið. Já, það má ef
til vill segja að ég sé lifandi forn-
gripur og svo á ég nokkra aðra,“
segir Gunnar og hlær.
Ég er lifandi forngripur
og safna þeim líka
Gunnar Ólafsson er jarlinn í Víkingafélaginu Einherjum í Reykjavík. Hann lætur sér þó ekki nægja að fara
sjálfur aftur í aldir heldur safnar hann einnig fornmunum á heimili sitt.
Gunnar Ólafsson er jarlinn í Víkingafélaginu Einherjum. Hann hefur mikinn áhuga á
forngripum enda telur hann sjálfan sig til þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Á skemmtilegri uppákomu í Þjóðminjasafninu á sunnudag getur fólk komið með forn-
gripi og gamla muni í skoðun og greiningu. Sérfræðingar um gamla gripi munu taka vel
á móti öllum í forsalnum á 3. hæð safnsins.
Tekið skal fram að einungis verður reynt að greina muni með
tilliti til aldurs, efnis, uppruna o.s.frv. en starfsmenn safna
meta ekki verðgildi gamalla gripa. Eigendur taka gripina
með sér aftur að lokinni skoðun.
Þriðjudaginn 10. nóvember kl 12:05 gefst áhugasöm-
um síðan kostur á að fræðast um meðferð gamalla
gripa í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafninu. Þá mun
Nathalie Jacquement forvörður gefa góð ráð um með-
höndlun og varðveislu gripa og listaverka í heimahúsum.
Áttu forngrip í fórum þínum?
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS BÝÐUR UPP Á GREININGU Á GÖMLUM GRIPUM SUNNUDAGINN
8. NÓVEMBER MILLI 14 OG 16.
bfo.is
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
bfo@bfo.is
BGS VOTTUÐ ÞJÓNU
STA
BGS
VOTTUÐ ÞJÓNUSTA
Þjónustuverkstæði fyrir
eftirtaldar bifreiðar
reynsla – þekking – góð þjónusta
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af ódýrum skóm á alla fjölskylduna
Opið virka daga 12:00 - 18:00 - laugardaga 12:00 - 16:00
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 13. nóvember n.k.
Smáauglýsingar
Fréttablaðsins
eru einnig á visir.is